Fjórðungsúrslit
Fjórðungsúrslit er flott orð og miklu betra en 8-liða úrslit. Hins vegar væri fíflalegt að tala um helmingsúrslit í stað undanúrslita. Merkilegt.
Fótboltadagurinn mikli er runninn upp. Leikur Þýskalands og Argentínu er sá stærsti á mótinu til þessa. Úkraína gegn Ítalíu er heldur ekkert slor. Ég vil sjá þessi undanúrslit:
Argentína : Úkraína & Portúgal : Frakkland.
Hef fulla trú á að það verði að veruleika.
# # # # # # # # # # # # #
Nú eru fjöldamörg blöð og tímarit skönnuð inn á Tímarit.is hjá Landsbókasafni. Það eru þó ekki nema nokkur þeirra sem hægt er að skoða með orðaleitarvélinni. Hvað veldur? Er við því að búast að þeim blöðum sem hægt verður að leita í á þennan hátt fjölgi og hvað með þau sem eldri eru?
Nú er Morgunblaðið orðið það blað sem auðveldast er fyrir sagnfræðinga að leita í. Þetta mun þýða að sagnfræðingar sem skrifa um 20. öldina munu í vaxandi mæli geta fínkembt Moggann í heimildaöflun sinni en munu láta önnur blöð sitja á hakanum. Þetta getur augljóslega gefið villandi mynd.
Legg til að S-hópurinn taki upp veskið og kosti innskönnun á Tímanum eins og hann leggur sig. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið - og Framsóknarflokkurinn verður fljótlega bara sagfnræðilegt viðfangsefni…
Skyldi Mál og menning hafa geymt eitthvað af Rússagullinu? Nú væri gott að hafa það til að koma Þjóðviljanum á tölvutækt form.

June 30th, 2006 at 08:55
Mig minnir að 365 hafi verið að gefa eitthvað af þeim blöðum sem þeir hafa réttinn á og peninga til að fjármagna skönnun.
June 30th, 2006 at 09:10
Mogginn vill skrifa sögu 20. aldarinnar, bæði leynt og ljóst. Þetta sem þú nefnir er bara einn áfangi á þeirri leið.
June 30th, 2006 at 09:13
Tímarit.is orðaleitin helgast af undirbúningsvinnu sem þarf að leggja í áður en rit er tilbúið til leitar. Sökum fjármagnsins sem Morgunblaðið hefur lagt fram hefur það verið í forgangi.
Ritum sem hægt er að leita í mun fjölga en það er háð hinum grimmu herrum, tíma, tækjum og vinnu, hversu hratt það gengur.
June 30th, 2006 at 10:28
Ætli þetta verði ekki frekar til þess að menn leiti fanganna um það hvers kyns blað mogginn var frekar en að menn leiðara hans lita söguskilninginn.
June 30th, 2006 at 11:36
Ég er reyndar á því að skárra væri að not orðið helmingsúrslit yfir 16 liða úrslitin í þessari keppni. 16 verandi helmingur 32 sem er fjöldi liða í keppninni. Þetta væri hins vegar ekki hægt í öðrum keppnum þannig að þessi tillaga er líklega andvana fædd.
June 30th, 2006 at 23:07
Miðað við getspeki Stefáns í dag er sennilega nokkuð öruggt að tippa á England og Brasilíu í hinn undanúrslitaleikinn.
July 1st, 2006 at 01:08
Héðan úr MannshestahreppHinsvegar si er ekki spáð í úrslit. Okkar menn vinna!
Hinsvegar sakna ég Þjóðviljans og Alþýðublaðsins úr þessari flóru. Ég hefi gaman af Morgunblaðinu en Þjóðviljinn var mitt blað á áttunda áratugnum.
July 1st, 2006 at 18:02
Portúgalar komnir áfram. Verðurðu ekki að halda með þeim í næstu umferð?