0 eða 24
Fór að velta því fyrir mér í gærkvöldi klukkan hvað sólarhringurinn byrji. Eða öllu heldur - er til eitthvað sem heitir “klukkan núll”?
Af tölvuklukkum heimilisins segir um það bil helmingurinn að klukkan á miðnætti sé 0:00 en hinn helmingurinn að þá sé hún 24:00. Ætli þessi munur sé menningarbundinn? Nú er klukkan á ofninum frá Þýskalandi og segir 24 en þær japönsku veðja á 0:00.
Getur verið að þetta sé angi af stærra ágreiningsefni - svipað og karpið um hvenær aldamótin eru? Þannig telji hluti klukkuframleiðenda að 00:01 sé fyrsta mínúta sólarhringsins en 24:00 sú síðasta, meðan aðrir veðji á 00:00 og 23:59?
Treysti á lesendur mína að efna til lærðra umræðna um þetta mál í athugasemdakerfinu…
# # # # # # # # # # # # #
Sá FRAM vinna Fjölni í gær. FRAM og Þróttur eru því komin með fimm og fjögurra stiga forskot á næstu lið. Sýnist toppbaráttan farin að liggja nokkuð ljós fyrir nú þegar.
Á sunnudaginn mætum við Skagamönnum í bikarnum. Spurning hvort Óli Þórðar verði ennþá með liðið…

June 29th, 2006 at 09:46
0 er að vissu leyti eðlilegra, ef 24 er notað þá er til dæmis mínútan 24:00 væntanlega eina mínútan þar sem stendur 24, því ekki fara þær upp í 24:01. Ef 00:00 er notað er hins vegar jöfnuður og hver klukkustund fær jafn margar mínútur.
June 29th, 2006 at 09:56
Styð 00.00, þarna svissar á milli daga.
Pabbi var einu sinni tekinn við að fara yfir á rauðu ljósi (ekkert til að monta sig af, en gerðist nú samt). Lögregluþjónninn skrifaði tímann: 24.15. Pabbi tók eftir því. Neitaði síðan að borga sektina og var stefnt fyrir dóm. Þegar í dóminn kom, benti hann dómaranum á tímasetninguna og sagði sína klukku aldrei verða þetta. Dómarinn vísaði málinu að sjálfsögðu strax frá vegna formgalla.
June 29th, 2006 at 10:01
Ef við gefum okkur að sekúndan sé minnsta einingin í daglegum tímamælingum ætti sólarhringurinn með réttu að hefjast kl. 00:00:01. Að sama skapi þá ætti honum eiginlega að ljúka kl. 24:00:00, þ.e. 1 sekúndu eftir að klukkan er 23:59:59. Það myndi hins vegar bjóða upp á þá einkennilegu stöðu að 24 væri einungis notað í fyrstu sekúndu miðnættisins (eða öllu heldur síðustu sekúndu tólfta tímans) því sú næsta væri 00:00:01. Hljómar alls ekki praktískt en þó rökrétt á einhvern sérkennilegan hátt.
June 29th, 2006 at 10:57
Ég man líka eftir stórkostlegu lesandabréfi í Mogganum fyrir þó nokkrum árum, frá konu sem sagði sínar farir miður sléttar. Hún hafði átt bókað far til útlanda með flugvél sem átti að fara í loftið klukkan 00:30 tiltekinn dag og þegar hún mætti út á flugvöll AÐ KVÖLDI ÞESS DAGS, albúin til brottfarar upp úr miðnætti, var henni bent á það við innritun að vélin hefði farið rúmum tuttugu tímum fyrr. Það kostulega og sorglega við þetta lesandabréf var að konan virtist alls ekki hafa áttað sig á eigin mistökum, en kenndi flugfélaginu alfarið um.
June 29th, 2006 at 12:24
Hér fyrir utan skólann minn í útlandinu er nýlega búið að setja upp skilti á bílastæðunum þess efnis að gjaldskylda sé milli klukkan 00:00 og 24:00. Þannig að til þess að vera ekki hankað á smáatriðum virðist mér danska stöðumælakompaníið tvítelja umrædda mínútu (þótt ég þori ekki að fullyrða að rukkað sé tvöfalt fyrir hana).
June 29th, 2006 at 12:29
Þjóðverjar eru svolítið öfugsnúnir- Ef þú kíkir á kjölinn á þýskri bók sérðu að þar snýr allt á haus. Svo er 400 gráðu (neugrad) hringurinn þeirra alveg að slá í gegn í öðrum löndum.
June 29th, 2006 at 12:31
Þetta er ekki rétt hjá Svenna og ég vek athygli á því að hann er að stytta sólarhringinn um eina sekúndu: klukkan 00:00:01 er ein sekúnda liðin af nýjum sólarhring.
Í rauninni er réttast að klukkan sýni 24:00 í eitt augnablik en skipti strax í sjónhendingunni yfir í 00:00 - eða þá ágætis málamiðlun.
June 29th, 2006 at 13:08
Þessi núllklukkustund er leiðinleg aukaverkun tölvuúranna sem stangast algjörlega á við eðlilega máltilfinningu. Ég myndi aldrei boða komu mína á barinn kortér yfir núll, en uppúr tólf eða miðnætti standa mér allir vegir færir.
June 29th, 2006 at 14:14
Það væri allt of erfitt að breyta þessu … mikið erfiðara en breytingarnar í kringum árið 2000 og mikið víðtækari breytingar.
Frakkar og Ítalir eru jafn öfugsnúnir og Þjóðverjar hvað bókarkili varðar.
June 29th, 2006 at 18:34
Mér sýnist aldamótaþrætan sé að stinga sér niður hérna eða þá aldurinn.
Er t.d. 50 ára gamall maður á sextugsaldri?
June 29th, 2006 at 18:44
“It was a bright cold day in April, and the clocks were striking thirteen.”
Það skiptir ekki máli fyrir mér hvort þetta sé 00:00 eða 24:00, maður segir alltaf tólf hvort eð er. Það bara vill svo til að 00:00 er þægilegra í allri forritun en 24:00.
June 29th, 2006 at 20:45
Hef ekki hugmynd um hvort þetta er menningarlegt, vísindalegt eða hreinlega hrein sérviska. En það er gaman að segja frá því að nú er það svo að tryggingar endurnýjast (í flestum tilvikum) einu sinni á ári. Er þá talað um að eldri trygging hætti að gilda kl. 24:00 en ný taki gildi kl. 00:00.
Skemmtilegur fróðleiksmoli.
June 29th, 2006 at 22:20
Á fréttatofu útvarps hefst nýr dagur klukkan 3:00 að nóttu til og þar sem allir treysta fréttastofunni þá er umræðan um 0 og 24 gersamlega óþörf.
June 30th, 2006 at 10:52
Fótboltaóvitinn ég rak augun í að þú skrifar FRAM með stórum stöfum, og þeir virðast gera það sjálfir líka. Stendur það fyrir eitthvað? Eða er þetta gert í sams konar anda (-kt) og LORD í enskum útgáfum biblíunnar?
June 30th, 2006 at 10:54
Í lögum félagsins segir að mig minnir eitthvað á þá leið að nafnið skuli ritað eins og gert er í merki félagsins - en þar er FRAM skrifað með hástöfum. Flóknara er það nú ekki.
June 30th, 2006 at 12:34
Hversu miklu mikilmennskubrjálæði eru menn haldnir þegar þeir setja í lög að nafn félagsins skuli ritað með hástöfum? Hvort var þetta Sveinna Andri félagi þinn eða Jón Steinar sem kom þessu á?
June 30th, 2006 at 13:54
Mundi: Rétt eins og áratug lýkur á tugnum (t.d. 1980, 1990) þá hlýtur klukkustundinni að ljúka þegar klukkan stendur nákvæmlega á heila tímanum (24:00:00). Ný klukkustund hlýtur því að hefjast einni sekúndu (eða sekúndubroti) eftir það (00:00:01). Annars værirðu að tvítelja augnablikið sem klukkan stendur á heila tímanum.
July 1st, 2006 at 16:49
Nei, ég er ekki sammála þessu Svenni. Ný klukkustund byrjar nákvæmlega um leið og þeirri gömlu lýkur, þetta er sama augnablikið og enginn tími sem líður þar á milli. Þú ert ekki að tvítelja það, spurningin er bara hvað á að standa á klukkunni á þessu merkisaugnabliki sem um ræðir.
Ég er sammála því að henni lýkur þarna, en ekki að næsti sólarhringur byrji síðar, hann hlýtur að byrja um leið og sá gamli klárast.
Hins vegar má kannski fallast á að nýr sólarhringur sé í rauninni hafinn þó hann sé það ekki að nafninu til þar sem það sést ekki á klukkunni, en það getur ekki gengið upp að hver og einn eigi sitt eigið upphaf á deginum í samræmi við það hvað hans eigin klukka slær.
Já og takk fyrir síðast.