Panamaskurðir
Töffaralegur and-reykingaáróður í reykvísku tímariti frá 1912, þar sem áherslan er ekki lögð á heilsuspillandi áhrif tóbaksnautnarinnar heldur tímasóunina:
Þriðjungur af íbúum jarðarinnar reykir 300000000 manna. Þessir menn brenna á degi hverjum tóbaki sem nemur 50000000 króna. Vinnutöfin við að kveikja í, láta í og taka úr nemur svo mörgum dagsverkum á dag, að nægja myndi til þess að gera tvo Panamaskurði.
Jamm.
# # # # # # # # # # # # #
Úr sama blaði:
Ekstrablaðið, ómerkilegt fleipurblað í Kaupmannahöfn, hefir nýlega ritað um þýdda sögu eftir Jónas frá Hrafnagili og notað tækifærið til að smána Íslendinga og þjóðareinkenni þeirra.

June 28th, 2006 at 13:53
Það er svo auðvitað spurning hvað ætti að gera við alla þessa skurði. Kannski eins gott að allir hætti ekki að reykja í einu og byrji að grafa!
June 28th, 2006 at 17:13
Það verður að finna þessa grein úr Ekstrablaðinu.
June 28th, 2006 at 17:48
Þessir menn hafa greinilega aldrei staðið í 20 tíma í fiskaðgerð og reykt heilan pakka á meðan án þess að sleppa hnífnum !
June 28th, 2006 at 17:56
Bara ein á klukkutíma?