Heimsins heimskasti pabbi
Varð það ekki titill á bók eftir Mikael Torfason? Það er eins og mig minni það.
Ólína varð frekar pirruð á föður sínum í gær. Þegar henni fannst nógu lengi setið í heimsókn fór hún og náði í húfuna sína og setti á höfuðið, sótti skóna sína og úlpuna og rétti mér. Svo stóð hún og beið eftir að ég skildi vísbendinguna.
Þegar þetta hafði ekki tilætluð áhrif rölti hún aftur fram, náði einhvern veginn í jakkann minn, dró hann með erfiðismunum inn í stofu og setti í fangið á mér. Mikið skýrari verða skilaboðin nú ekki.
# # # # # # # # # # # # #
Í gær var maður áþreifanlega minntur á hvað Ísland er fámennt land. Íþróttadeild Sýnar hefur gefist upp á að fá nýja viðmælendur í hálfleiksspjall fyrir hvern einasta leik. Þess í stað var Geir ÓLafsson kallaður í stúdíó öðru sinni - núna til að sýna knattþrautir. Ég hefði viljað vera viðstaddur deildarfundinn þar sem menn töluðu sig inn á að þetta væri góð hugmynd.
# # # # # # # # # # # # #
Í dag mun bandaríska fyrirtækið Dr. Don´s Buttons póstleggja sendingu til Íslands. Dr. Don er aðalbirgir okkar Palla í barmmerkjaframleiðslunni. Það er greinilega kominn nýr maður í söludeildina - einhver Ardy sem svarar öllum fyrirspurnum greiðlega og af stakri kurteisi. Hann leysir af hólmi Bruno sem skrifaði allan tölvupóst með hástöfum til að lesandanum fyndist hann vera að öskra á sig - sem hann var líklega að gera. Ég sakna samt Brunos.
Í sendingunni verður nýr skerari fyrir einnar tommu merkin. Ef hann virkar jafnvel og auglýsingarnar lofa, ætti það að létta okkur lífið talsvert.
Þá vantar okkur bara sniðug slagorð til að þrykkja á barmmerki. Uppástungur?

June 27th, 2006 at 08:56
Heimsins heimskasti pabbi var einmitt bók eftir Mikael. Og það sem meira er hún var alveg fjári góð.
“Sprengjum Valgerði - ekki Írak!”
June 27th, 2006 at 09:18
Hehe Ólína er sniðug:) Hefði verið til í að sjá þessa tilburði.
June 27th, 2006 at 09:32
Alltaf að ríða?
June 27th, 2006 at 09:44
barnið er greinilega snillingur
June 27th, 2006 at 10:12
Hilmar þá?
June 27th, 2006 at 11:03
Don´t mistake me for an alcaholic, I am an artist
June 27th, 2006 at 11:43
Fámennt land eða lítið ímyndunarafl?
June 27th, 2006 at 13:11
BD: meinleg innsláttarvilla í URLinu þínu.
June 27th, 2006 at 13:54
Ísland úr NATO - Herinn er farinn
June 27th, 2006 at 14:11
Hvað er betra eftir langan dag af fótboltaglápi en að kíkja á ljóðakvöld?
http://www.tmm.is/default2.asp?strAction=getPublication&intPublId=443
June 27th, 2006 at 19:27
Það er engin vörn í Valgerði - burt með b***una
June 27th, 2006 at 22:48
bumbuna?
June 27th, 2006 at 23:03
Sammála ykkur öllum:)
June 28th, 2006 at 02:38
ég myndi vilja barmmerki með textanum
“Álgerður Sverrisdóttir”
June 28th, 2006 at 09:58
“Heimsins heimskasti pabbi”?
June 28th, 2006 at 14:04
Tillögur um barmmerki:
“Ég er ósammála”
“Megas á Bessastaði”
“Himininn er fallegur”
“Syngdu!”
“Dansaðu!”
June 29th, 2006 at 09:36
“Fyrst mitt raskat svo kannski þitt”
“Bombum Keflavík”
“Afi minn er amma mín”
July 6th, 2006 at 09:59
kxnhvlncc rtotalvvw ecnxdaao