Nýtt og betra tjald
Í gær var sett upp nýtt og betra sýningartjald í Friðarhúsi. Það mun vitaskuld gagnast fyrir hvers kyns myndasýningar og fyrirlestra í framtíðinni, en sem stendur kætast einkum knattspyrnugláparar.
Nú dvel ég öllum stundum í Friðarhúsi, enda allir leikir í úrslitakeppninni sýndir þar.
# # # # # # # # # # # # #
Helv. Englendingarnir eru ömurlegir. Skriðu áfram gegn Ekvador og mæta svo Portúgal sem verður með hálft liðið meitt eða í leikbanni. Ljótt, ljótt sagði fuglinn.

June 26th, 2006 at 12:07
Djöfuls Englendingar. Ég er dauðfeginn að Figo sleppur bann, þó auðvitað ætti hann að fá 1-2 leiki! Og vonandi að Ronaldo verði góður.
June 26th, 2006 at 22:19
Þetta ofsafengna tuð og leiðindi út í enska liðið er eiginlega orðið enn hallærislegra en að halda með enska liðinu. Hvort tveggja er þó fremur glatað.
June 27th, 2006 at 00:04
Ég hefi enn ekki horft á neinn leik til þessa, en leikinn milli Englands og Portúgal get ég væntanlega séð í höfuðvígi enskra fótboltabullna, sjálfum Mannshestahreppi. Vandamálið er bara að ein í hópnum okkar er frá Portúgal.
Ég ætla að halda með Halifaxhreppi í þessari fáránlegu keppni.
June 27th, 2006 at 01:30
Ég hlusta á podcast Guardian um heimsmeistarkeppnina. Hlakkað hefur í skoskum og írskum spjallendum þar yfir hörmungarspili enska liðsins. En á móti benti einn af íþróttafréttamönnunum, Sean Ingle, á að oft komast ömurleg lið í undanúrslit, stundum meira segja alla leið í úrslit. Nefndu sem dæmi vestur-þýska liðið 1986 og argentínska liðið 1990. Sjálfum fannst mér að bæði liðin í úrslitunum í Japan og Kóreu hafi verið slök, en jæja…
Þannig, að hver veit. Kannski Englendingar eitt-núlli sig alla leið í úrslit. Asnalegri hlutir hafa gerst í knattspyrnu.
Talandi um asnalegt… í Argentínu er sumt fólk enn biturt yfir því að hafa tapað gegn Vestur-Þýskalandi í Róm.
http://argentina.worldcupblog.org/1/they-owe-us-a-star.html
Ef liðið sjálft er jafn biturt og argentínski bloggarinn, þá gæti farið að Orrustan í Kaiserslautern og Orrustan í Nürnberg verði ekki blóðugustu leikirnir á HM 2006.