Stubbur
Fór að blaða í eintaki af snilldarbarnabókinni Stubbi, sem Ólína hefur leikið grátt síðustu daga. Ákvað af rælni að grafast fyrir um höfundana, þau Bengt og Grete Janus Nielsen.
Bengt þessi, sem teiknaði myndirnar, mun vera Bengt Janus. Hann er betur þekktur sem Jens K. Holm, en undir því dulnefni skrifaði hann einmitt Kim-bækurnar…
Þetta finnst mér skemmtilegt kjúríosítet og fyllsta ástæða til að deila með heiminum!
(Þessi færsla hefði verið flottari ef ég hefði fundið mynd að Stubbi (d. Strit) til að skreyta hana með - en það mistókst.)

June 22nd, 2006 at 00:00
Þetta er snilld. Nú er spurningin hvort hann sá Kim fyrir sér sem Stubb þegar hann varð eldri. Þá er ný vídd opnuð. Og jafnvel výdd ef maður heytir Hreynn.
June 22nd, 2006 at 10:31
Athyglivert…
Ég man í það minnsta ekki eftir því að Kim borðaði epli. Hann var samt alltaf dálítið kvennlegur, jafnvel for-metrosexual.
June 26th, 2006 at 16:09
Reykti hann ekki aðallega pípu?