Barnaskór

Önnur langamma Ólínu hefur áhyggjur af því að krakkinn sé að fá ilsig og leggur til að hún verði höfð meira í skóm heima við, nánar tiltekið í skóm með góðu innleggi. Nú er ég alveg úti á þekju í þessum fræðum. Hvort þykir betra fyrir litlar lappir að hlaupa um í góðum skóm eða á sokkaleistunum?

Treysti á snillingana sem lesa þessa síðu til að svara spurningunni.

# # # # # # # # # # # # # # #

Það var góður hópur samankominn í Friðarhúsi í gærkvöldi. Sumir voru að hjálpa til við að setja glæsilegt skilti framan á húsið sem sést langt að. Aðrir horfðu bara á fótboltann.

Ákveðið hefur verið að frá og með 16-liða úrslitunum verði hver einast leikur sýndur í Friðarhúsi. Þar geta boltaþyrstir friðarsinnar safnast saman, lausir við reykingastybbuna sem fylgir flestum börum.

Talandi um HM. Getur einhver staðfest það hvort markatala í riðlinum eða innbyrðisviðureignir verði fyrst látið gilda til að ákvarða röð liða?

14 Responses to “Barnaskór”

  1. Örn Úlfar Says:

    Mér skilst að fyrir utan stig þá sé fyrst farið eftir markamun (goal difference), svo skoruðum mörkum og loks innbyrðis viðureign. Svo var eitthvað meira ef í hart fer og endar með hlutkesti.

  2. Strumpurinn Says:

    Mér skilst einmitt öfugt. Innbyrðisviðreigninar séu það sem ræður. Það væri líka í samræmi við framkvæmdina á þessu almennt séð á svona stórmótum. En ég hef þetta ekki staðfest.

    Strumpakveðjur :)

  3. himmi Says:

    Ég er ekki alveg viss (sure).

  4. pallih Says:

    Fætur barna (children´s feet) eru ekki af nátturunnar (nature) hendi (hand) hannaðir (designed) til þess að vera (be) í skóm (shoes)

  5. Eyja Says:

    Barnið fær nú varla ilsig upp úr þurru bara af því að hlaupa um skólaust. Ef hún er hins vegar með ilsig þá er kannski ástæða til að athuga með innlegg á þar til gerðum stöðum. Mér skilst svo að það sé eitthvað umdeilt hversu mikið gagn innleggin gera. Elsta dóttir mín var með skakka hæla og ilsig (hvort tveggja stafaði af slökum liðböndum í ökkla) og notaði innlegg frá því á öðru ári. Þetta var bölvað vesen, innleggin dýr (og þurfti auðvitað að endurnýja 1-2x á ári eftir því sem barnið stækkaði) og pössuðu ekki í alla skó. Nú er hún löngu hætt að stækka og hætt að nota innlegg og ég veit satt að segja ekki hvaða (ef eitthvað) gagn innleggin gerðu. Jú, á tímabili alla vega fannst henni þægilegra að hafa þau en ekki.

    En sem sagt, ef barnið er með eðlilega fætur þá er bara um að gera að hafa fótabúnað hennar eins og henni finnst þægilegast. Ef eitthvað er að þá má athuga með innlegg, göngugreiningu, bæklunarlækni og allt það.

  6. Ólafur Says:

    Ólíkt því sem var á Euro2004 (og stórmótum þar á undan) að þá ræður markamunur á eftir stigum röð liða. Þetta lítur svona út:
    1. Stig
    2. Markamunur
    3. Mörk skoruð
    4. Innbyrðisviðureignir
    5. Ef allt hér á undan er jafnt er dregið um hvort liðið kemst áfram.

  7. Urðarköttur Says:

    Rétt.

  8. Gummi Says:

    Innlegg, já? Var sjálfur með meiriháttar ilsig á yngri árum. Almennt séð er ilsig talið vera genetískt, rannsóknir sýna t.d. að ilsig er fátíðara meðal barna í Afríku sem ganga um berfætt en vestrænna barna sem ganga í skóm. Aðalatriðið að skófatnaðurinn sé þægilegur, og innlegg eru held ég bara notuð til stuðnings þegar barnið finnur til óþæginda eða þegar þetta veldur álagi á aðra liði, t.d. hnén. Fótanudd gerir sitt gagn (strjúka undir ristina, o.s.frv.), annars ætti heimilislæknirinn að geta sagt ykkur eitthvað meira.

  9. dagga Says:

    Á fyrstu árum barns á víst að vera mögulegt að móta litla fætur eins og leir, svo sveigjanlegjanleg eru brjóskkennd beinin. Skór þykja því ekki góð ella. Frekar að strjúka iljar fyrir svefninn til að hindra ilsig, en annars sé ég ekkert að ilsigi.

  10. helga Says:

    Legg til að þú ræðir alvarlega við ilsigsfræðinginn Pál Hilmars um þetta upprennandi vandamál. Hann talar af reynslu.

  11. Magnús Says:

    Ef tvö eða fleiri lið eru jöfn að stigum eru innbyrðis viðureignir fyrsta atriði sem getur ráðið úrslitum. Úr reglum FIFA:

    The system of play shall be the league system, each team playing one match against each of the other teams in the same group, with three points for a win, one point for a draw and none for a defeat. 5 Ranking in each group shall be determined as follows:

    (a) greater number of points obtained in all the group matches; If two or more teams are equal on the basis of the above criterion, their ranking shall be determined as follows:

    (b) greater number of points obtained in the group matches between the teams concerned;

    (c) goal difference resulting from the group matches between the teams concerned;

    (d) greater number of goals scored in the group matches between the teams concerned;

    (e) goal difference in all the group matches;

    (f) greater number of goals scored in all the group matches;

    (g) drawing lots by the Organising Committee for the FIFA World CupTM.

    Svona má núna finna margt sniðugt á Ynthernethinu.

  12. Hr. Pez Says:

    Á Wiki (http://en.wikipedia.org/wiki/2006_FIFA_World_Cup) má finna þessar upplýsingar um reglur sem gilda í keppninni í ár:

    The ranking of each team in each group will be determined as follows, in order of priority:

    1. Greatest number of points obtained in all three group matches;
    2. Goal difference in all three group matches;
    3. Greatest number of goals scored in all three group matches.
    1. If any two teams cannot be separated by criteria 1-3;
    1. Team that won the match between the two teams in the tie;
    2. If three teams cannot be separated by criteria 1-3;
    1. Greatest number of points obtained in the group matches between the three teams in the tie;
    2. Goal difference resulting from the group matches between the three teams in the tie;
    3. Greater number of goals scored in all group matches between the three teams in the tie;
    4. Drawing of lots by the Organising Committee for the FIFA World Cup.

  13. Vælan Says:

    barnið mitt er með innlegg og ég finn mikinn mun á hvað hún þreytist fljótt eftir því hvort hún notar þau eða ekki. Ekki veit ég hvað olli þessari innleggsþörf hjá henni, veit ekki betur en skónotkun hennar hafi verið með eðlilegasta móti fyrstu árin, hvorki mikil né lítil.. held barasta að þú ættir að kíkja með hana til einhvers sem vit hefur á til að ákveða hvort eitthverra aðgerða sé þörf, þessar ömmur geta nú verið óþarflega paranojd ekki satt ;)