Franskir labbakútar
Ég ákvað fyrir EM 1996 að halda með Frökkum. Þeir ollu nokkrum vonbrigðum á mótinu, en öllum mátti þó vera ljóst að Evrópumótið var bara upphitum fyrir HM í Frakklandi tveimur árum síðar.
Á HM 98 og EM 2000 brugðust Frakkarnir mér ekki og hömpuðu titlinum. 2002 studdi ég Frakka sömuleiðis - en hvílíkar hrakfarir! Frakkar voru sendir heim með skömm eftir ömurlega frammistöðu og ekkert mark skorað.
Ég er enn ekki búinn að fyrirgefa Frökkum svikin frá því fyrir fjórum árum. Ekki aðeins hef ég snúið fullkomlega við þeim baki - heldur hlakkar í mér yfir óförum þeirra núna. Vonandi floppa þeir líka gegn Tógó í lokaleiknum og verða grýttir með úldnu grænmeti við komuna til Parísar. Það ætti að kenna þeim!

June 19th, 2006 at 08:55
Þú hefðir átt að heyra fúkyrðin sem glumdu hér í götunni í gær. Maðurinn minn sem sjaldan skiptir skapi var ennþá blótandi þegar hann vaknaði í morgun. Oflaunaðir aulabárðar í liðinu núna.
June 19th, 2006 at 09:31
Er hjartanlega sammála þér Stefán minn með að Frakkarnir ættu það helst skilið að ganga píslargöngu heim til Parísar. Gætu til dæmis tekið göngutúr um nokkrar franskar borgir á leiðinni til að fleiri fái tækifæri til að grýta þá með úldnum tómötum. Hugsanlega gæti þetta verið gott tækifæri fyrir franskan landbúnað til að losna við umframframleiðslu. Frakkarnir verða amk. að spila betur en Englendingar til að eiga skilið að komast áfram.
June 19th, 2006 at 23:13
Kenna þeim hvað?
June 20th, 2006 at 12:58
Nú, að spila fótbolta, auðvitað!