Sagnir
Fékk Sagnir, tímarit sagnfræðinema inn um lúguna í dag. Blaðið lítur ágætlega út við fyrstu sýn. Í það minnsta eru nokkrar greinar sem ég gæti vel hugsað mér að lesa.
Einhverra hluta vegna er talsverð áhersla á það sem kalla mætti jaðarfyrirbæri í íslenskri stjórnmálasögu, s.s. félög Kúbu- og Albaníuvina. Þetta er reyndar dæmigert fyrir skrif sagnfræðinga um stjórnmálasögu - sagnfræðingar hafa yfirleitt smáflokkadellu. Sagnfræðingar skrifa um grínframboð, einsmálshreyfingar og flokka sem engu flugi náðu - hins vegar leggja þeir sjaldnast í stóru stjórnmálahreyfingarnar, heldur láta þær blaðamönnum og stjórnmálafræðingum eftir.
Í Sögu, tímariti Sögufélags hefur birst í það minnsta ein heillöng grein um Framboðsflokkinn 1971, en ég man ekki eftir einni einustu grein um Sjálftæðisflokkinn. Skrítið.
Sjálfur var ég fenginn til að skrifa ritdóm í þetta tölublað Sagna. Ekki tókst nú betur til en svo við umbrot blaðsins en að athugasemdir prófarkarlesara voru birtar sem aftanmálsgreinar mínar (sem voru raunar kallaðar neðanmálsgreinar). Lesendur munu því væntanlega ekki botna neitt í neinu.
# # # # # # # # # # # # #
Í dag komst ég í að skoða SS-húsið á Kirkjusandi. Það er mögnuð bygging. Fáránlega stór og með ólíkindum að hún sé ekki nýtt af neinu viti.
Með þessu húsi mætti leysa húsnæðisvanda margra safna sem eru á hrakhólum. Mér kemur strax til hugar Náttúrufræðisafnið.
# # # # # # # # # # # # #
Mætti í kvöld með Ólínu í stúdentsveislu Guðmundar Þóris frænda míns. Barnið lak útaf í bílnum á leiðinni heim og fékkst ekki til að vakna fyrir kvöldpelann. Hún mun því væntanlega rífa sig upp eldsnemma eða um miðja nótt, sársvöng og pirruð. Koma tímar, koma ráð.

May 24th, 2006 at 23:02
Það er eðlilegt að frekar sé skrifað um Framboðsflokkinn en Sjálfstæðisflokkinn. Það er hægt að lesa sig til um alla sögu Framboðsflokksins á fjögurra mánaða tímabili árið 1971, en til að lesa sögu Sjálfstæðisflokksins verður að lesa ítarefni síðustu 77 ára auk sögu Íhaldsflokksins gamla, sem aftur rifjar upp fyrir mér er ég skrifaði menntaskólaritgerð í Öldungadeild MH um gömlu uppáhaldsstjórnmálahreyfingar mínar, KSML, KSML-B, KFÍ-ML, EIK-ML, Fylkinguna.
May 25th, 2006 at 08:49
Er húsið autt? og hver á það? - er þetta ekki kjörið undir athvarf, kvenna og karla, fyrir heimilislaust fólk? - dagheimili, næturgistingu, hvíldarathvarf, matstofu og fataúthlutun? Plús aðstöðu fyrir félagsmálayfirvöld sem væru á staðnum með sína lögbundnu þjónustu við fólkið??
May 25th, 2006 at 09:33
Húsið er autt að kalla, en þetta er verksmiðjuhúsnæði ekki mannabústaður. Þarna eru stór rými með tíu metra lofthæð eða meira og fáir gluggar.
Það er til fullt af húsnæði sem hentar betur fyrir þá starfsemi sem þú ert að lýsa.
Sá ræfildómur yfirvalda að koma ekki heimilislausu fólki til bjargar er ekki til komin vegna þess að Reykjavík eigi engin tóm hús, heldur vegna þess að stjórnvöld tíma ekki að fjármagna reksturinn. Nú síðast hefur verið upplýst að loka eigi Konukoti aftur á daginn, þrátt fyrir fyrri loforð.
May 25th, 2006 at 16:25
Greinilegt að maður verðu að verða sér út um þetta tímarit. Hefur alltaf langað til að lesa um þessar hreyfingar. Kannski það hjálpi mér að skilja breska stúdentapólitík í dag, þar sem helsta hagsmunamálið er að banna Kóka-Kóla, vegna arðráns þess vonda fyrirtækisins.
May 25th, 2006 at 18:42
Til hamingju með Guðmund Þóri, góður maður þar á ferð.
May 25th, 2006 at 19:17
Stúdentapólitík í dag? Ég veit ekki betur en að þetta baráttumál hafi verið í gangi síðan snemma á áttunda áratugnum.
Einnig man ég eftir að hafa lesið nokkrar greinar um arðrán Coca-Colaveldisins í Þjóðviljanum á sama áratug (1976-1979?). Ein þeirra staðhæfði nokkurn veginn að sá drykkur væri meðal annars búinn til úr venesúelsku verkamannablóði.
May 26th, 2006 at 01:18
Coca-Cola eru enn samir við sig. Ég var á fyrirlestri um daginn hjá einum fyrrum yfirmanni hjá Kók í Mexíkó sem var rekinn 2004 af því að hann var hommi.
May 27th, 2006 at 14:55
Nei, var það ekki úr barnablóði sem Zíonistar sjá þeim fyrir með morðum sínum? Það er önnur skýring sem ég man eftir að hafa heyrt. Reyndar ætla ég ekki sjálfumhverfu stúdentahreyfingunum að vera svo geggjaðar að taka undir slík rök, þótt að öfgasinnaðar andlýðræðislegar hreyfingar séu studdar og prómóteraðar af sömu aðilum - svo lengi sem þær kalla eftir auknu fé til stúdenta og að draga Bush fyrir stríðsglæpadómstól.