Vínarbörnin 1919

Eru ekki einhverjir sagnfræðingar að lesa þessa síðu?

Ég er að velta fyrir mér Vínarbörnunum 1919 og afdrifum þeirra.

Síðla árs 1919 braust út hungursneyð í Vín í Austurríki. Íslensk stjórnvöld buðust í kjölfarið til að taka að sér 100 börn og koma í fóstur. Hjálparstofnanir munu hafa haft milligöngu um að finna einhverja tugi barna (u.þ.b. 70 börn), sem Íslendingar ætluðu að taka við.

Þekkir einhver þessa sögu? Hefur verið skrifað um þetta?

* Komu Vínarbörnin til Íslands?

* Hversu mörg urðu þau að lokum?

* Settust börnin að hér á landi til frambúðar?

* Þekkir einhver til fólks sem hingað kom í þessum hópi?

Vonandi getur einhver klókur lesandi varpað ljósi á málið.

7 Responses to “Vínarbörnin 1919”

  1. anna Says:

    Ekki veit ég mikið í sagnfræði, en ég grúska í ættfræði og hefi ekki rekist á þessi börn þar. Ég efast því um að 70 börn hafi komið hingað til lands á þessum tíma. Ég neita þó ekki þeim möguleika að einhver börn frá Austurríki hafi komið til landsins á þessum tíma.

  2. Sigrún Says:

    Athyglisvert. Er sagnfræðinemi og bjó í Vín í 4 ár. Hef aldrei heyrt á þetta minnst. Hvar fréttir þú af þessu?

  3. stebbikalli Says:

    Tja… Ekki ætla ég mér upp á móti sagnfræðingnum Sigrúnu en mig langar samt að leggja inn athyglisverðan punkt. Allir kannast við hin gómsætu Vínarbrauð en þau heita svo vegna þess að þegar þessi börn komu til landsins þá eiga bakarar að hafa búið til sykurbrauð, þar sem krakkarnir þjáðust af næringarskorti. Fengu þessi brauð nafnið Vínarbrauð.

  4. Arngrímur Says:

    Hvað um danska orðið vinebrød?

  5. Sigrún Sagnfræðinemi Says:

    Þetta hefði nú verið spennandi BA ritgerðarefni (þ.e.a.s. Vínarbörnin ekki vínarbrauðin).

  6. Guðmundur Magnússon Says:

    Svarar þetta ekki spurningunni: “http://myndir.timarit.is/400065/djvu/400065_0014_402086_0002.djvu” ? Þetta er úr Morgunblaðinu 4. september 1920.

    Kv.

    GM

  7. Sigga Says:

    Ætli þetta hafi verið tungumálaörðugleikum að kenna? “Keine kranken Kindern”!