Archive for April, 2006

Lífsbjörg í Norðurhöfum

Wednesday, April 19th, 2006

Getraun dagsins (gærdagsins) fjallaði sem sagt um fárið í samfélaginu eftir að Lífsbjörg í Norðurhöfum, heimildarmynd Magnúsar Guðmundssonar var sýnd hér á landi um páskana 1989. Myndin gekk út á að Íslendingar væru göfug veiðimannaþjóð í tengslum við náttúruna og að ástæða þess að umhverfisverndarsamtök í útlöndum ömuðust við hvalveiðum okkar væri fjárplógsstarfsemi.

Þegar ég var 13 ára fannst mér þetta frábær mynd. Ég varð svo reiður út í heimsku útlendingana sem voru svo firrtir að skilja ekki nauðsyn þess að skutla hvali. Þegar Guðrún Helgadóttir, þingkona Alþýðubandalagsins, mætti svo í Sjónvarpsumræður og tók undir rök þessara óðu útlendinga varð ég miður mín og taldið einboðið að hún yrði rekin úr flokknum.

Ég man eftir að hafa rifist í heilt kvöld við þann góða dreng Friðrik Atlason sem sá ekki tilganginn í þessum þjóðernisbelgingi út af þremur hvallveiðibátum sem yrðu aldrei hreyfðir. Held að ég hafi aldrei beðið Frikka afsökunar, en auðvitað hafði hann á réttu að standa og ég röngu.

Nú finnst mér hrefnukjöt fínt, hnýsa mjög góð og þetta eina skipti sem ég hef étið höfrung bragðaðist hann ágætlega - en helvítis þjóðremban í kringum þetta hvalamál er nóg til að gera hvern góðan mann að Grænfriðungi.

Getraun dagsins, 3. vísbending

Tuesday, April 18th, 2006

Sá mikli þingskörungur Jón Sæmundur Sigurjónsson greip til enn einnar samlíkingarinnar til að lýsa hinum meintu ofsóknum.

Hann rifjaði upp sögu af manni nokkrum sem lenti í útistöðum við mafíuna. Þegar mafíósarnir skutu hann, gerðu þeir það með huggunarorðunum: þetta er ekkert persónulegt, bara bissnes…

Og enn er spurt: hverjir voru ofsækjendurnir og hverjir fórnarlömbin?

Getraun dagsins, 2. vísbending

Tuesday, April 18th, 2006

Teiknarinn Sigmund gerði sér mat úr þessum ofsóknum. Hann greip þó ekki til líkingar við nasista og gyðingaofsókna, heldur við ofsatrúarmenn sem vildu drepa Salman Rushdie að boði Æjatóla Kómeinís.

Hverjir ofsóttu og hverjir voru ofsóttir?

Getraun dagsins

Tuesday, April 18th, 2006

Á fyrri hluta árs 1989 tók Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra Íslands, mjög sterkt til orða þegar hann líkti því sem hann taldi ofsóknir hóps nokkurs gagnvart öðrum hóp við ofsóknir nasista gegn gyðingum.

Nú er spurt: hverjir voru þessir nýju nasistar og hverjir voru í hlutverki ofsóttu gyðinganna?

HM 1962

Sunday, April 16th, 2006

nacional.jpgHorfði á þátt um HM í Chile 1962 á Sýn áðan. Þetta hefur lengi verið ein af mínum uppáhaldskeppnum, að hluta til vegna þess hversu lítið ég veit um hana og að hluta til vegna þess hversu  „minni spámenn“ létu mikið til sín taka í henni.

Allan fróðleik minn um keppnina í Chile hafði ég fengið úr bókinni um sögu HM sem kom út eftir keppnina 1982 og sem ég las í tætlur sem pjakkur.

Meðal þess sem lesa mátti um í þeirri bók voru hin „maklegu málagjöld“ ítalska landsliðsins. Ítalir léku við Vestur-Þjóðverja í fyrsta leik 2. riðils. Þeim leik var lýst sem afskræmingu knattspyrnunnar, þar sem bæði lið léku upp á öruggt, markalaust jafntefli í því trausti að vinna Chile og Sviss í lokaleikjunum. Það hlakkaði því í bókarhöfundi þegar hann lýsti óvæntu tapi Ítala gegn heimamönnum sem kostaði þá sæti í fjórðungsúrslitum.

Í þættinum á Sýn var sagan talsvert frábrugðin. Þar var leikurinn sagður fjörugur með færum á báða bóga þar sem hvorugt liðið náði þó að skora. Þessu til sönnunar voru 2-3 góð markskot sýnd.

Hverju á maður nú að trúa? Getur verið að þekking mín á sögu HM sé reist á sandi?

Páskunum bjargað

Friday, April 14th, 2006

Páskarnir eru tími leiðinlegra sjónvarpsmynda með óljósa Biblíulega tengingu. Sömuleiðis eru þeir tími splatterfrétta af x-mörgum óðum Filipseyingum sem krossfesta sig til að minnast písla Krists. Aldrei hef ég skilið almennilega hvernig þeir ná að negla í gegnum seinni höndina.

Almennt séð eru páskarnir frekar fúl hátíð, nema fyrir reykvíska skíðamenn - en yfirleitt eru páskarnir hluti af þessum tveimur vikum á árinu þar sem hægt er að renna sér í Bláfjöllum. Sjálfur steig ég síðast á skíði um tíu ára aldurinn. Skíðasport er skítasport - það hef ég alltaf sagt. (Engu að síður held ég því alltaf á lofti að Steinunn hafi keppt á skíðum fyrir FRAM í gamla daga, svo hún er tæknilega séð FRAMari.)

Nema hvað, nú er páskunum bjargað. Á laugardaginn kemur verður nefnilega efnt til FRIÐARPÍPUNNAR, spurningakeppni SHA í Friðarhúsi. Hún hefst kl. 16. Allir velkomnir - keppt með hefðbundnu pöbba-kviss fyrirkomulagi, bókaverðlaun í boði.

Þar mæta allir góðir menn.

# # # # # # # # # # # # #

Heimsóttum Ragga Kristins og Brynju seinnipartinn. Inga litla er að verða fimm mánaða og er óskaplega lítil. Einhvern veginn var heilinn búinn að blokkera á allar minningar frá þeim tíma þegar Ólína var svona lítil og þurfti að halda á henni meira eða minna allan sólarhringinn.

Núna er Ólína nánast sjálfala. Það kom í ljós í morgun þegar ég lá hálfdottandi í sófanum í stofunni og hún læddist inn í eldhús þar sem hún komst í ruslafötuna, velti henni um koll og gúffaði í sig kaffikorgi. Ætli það sé skaðlegt að borða kaffikorg eða telst það bara góð upphitun fyrir að éta sand á leikskólanum?

# # # # # # # # # # # # #

Steinunn er búin að tryggja að maímánuður verður ekki átakalaus.

Alvöru karlar

Wednesday, April 12th, 2006

Er að manna mig upp í að lesa ritgerðasafnið Pandora´s Hope eftir Bruno Latour, sem er vitaskuld svalasti vísindafélagsfræðingur samtímans.

Einkunnarorð bókarinnar eru fengin frá Imre Lakatos sem skrifaði eitt sinn til Feyeranbends:

Lucifer is the chap who brings false light …

I am shrouding them in the darkness of truth.

Ég spyr: er hægt að vera meiri töffari en þessir karlar?

Dauði Baldurs

Wednesday, April 12th, 2006

Skoðaði heimasíðu Peters Madsens, höfundar Valhalla-bókanna, í leit að fréttum af útgáfu nýjustu bókarinnar: Balladen om Balder. Nú hefur hún verið tímasett í september en sagan sjálf birtist í áföngum í helgarblaði Jótlandspóstsins. Óhætt er að segja að bókin lofi góðu.

Á síðunni kemur fram að auk sögunnar um dauða Baldurs hyggist Madsen gera tvær Valhalla-bækur til viðbótar. Um bækur 14 og 15 segir þetta:

  • Valhalla 14 - Troldkarlens hest

    Valhalla 14 bliver en genfortælling af myten om hvordan Skirnir Skosvend bliver sendt til Udgård på frierfærd for guden Frej, baseret på mytekvadet Skirnirsmål. Myten om hvordan Loke blev mor til Odins hest, baseret på Snorris Edda, er også flettet ind. “Troldkarlens hest” er planlagt til udgivelse i 2007.

  • Valhalla 15 - Fimbulvinter

    Det sidste bind i Valhalla-serien bliver en historie om, hvordan jætten Vaftrudner sætter Ragnarok i gang - mere vil vi ikke røbe endnu! Historien er baseret på spredte oplysninger i Snorris Edda og mange af mytekvadene. “Fimbulvinter” er planlagt til udgivelse i 2008.

  • Það er ekkert annað…

    Monday, April 10th, 2006

    “Ísland hefur til þessa verið nokkuð friðsamlegt land. Eða að minnsta kosti frá því að Sturlungaöld lauk. Að ég held.”

    Glúmur Baldvinsson í inngangi að frétt NFS um deilur vegna ráðningar sóknarprests í Kebblavík.

    Exbé

    Monday, April 10th, 2006

    Það var áberandi í prófkjörsbaráttunni hjá mínum gamla vini og félaga Birni Inga fyrr í vetur, hvað hann skaut sér undan því í auglýsingunum sínum að nefna Framsóknarflokkinn á nafn. Þannig var alltaf auglýst að Björn Ingi ætti að vera í fyrsta sæti í Reykjavík - en ekki í fyrsta sæti á lista Framsóknar. Þetta er nokkuð frábrugðið því sem gerðist t.d. í auglýsingum frambjóðenda í prófkjörunum hjá íhaldinu og krötunum, þar sem flestir lögðu áherslu á nafn viðkomandi stjórnmálaflokks.

    Um helgina mátti sjá fyrstu stóru blaðaauglýsingar Framsóknarmanna í Reykjavík fyrir kosningarnar. Í ljós kemur að þar er sama stefna og hjá Binga í prófkjörsbaráttunni: að fela nafn Framsóknarflokksins. Þannig er auglýst undir slagorðinu “Exbé” og fólkið á listanum kynnt sem frambjóðendur B-listans.

    Ætli það sé gaman að vera í forsvari fyrir stjórnmálaflokk og þurfa að sitja á fundi með ráðgjöfum frá auglýsingastofum sem útskýra að flokkurinn sé svo hataður og fyrirlitinn að best sé að fela nafnið hans?