Firring

Horfði á kvöldfréttir Sjónvarpsins í gær. Þar var bankastjóri Landsbankans - Sigurjón, þessi sem einu sinni var í Búnaðarbankanum - að segja frá hagnaði fyrirtækisins á einhverju uppgjörstímabili.

Tölurnar voru háar, svo til að setja þær í “skiljanlegra samhengi” tók hann fram hvað það væri hægt að kaupa mörgþúsund fimmmiljónkrónu jeppa fyrir gróðann.

Hversu firrtir mega menn vera til þess að nota fimmmiljónkrónu jeppa sem þægilega viðmiðun í útreikningum?

# # # # # # # # # # # # #

Middlesborough vann ótrúlegan sigur í gær á Stjörnunni. Liðið er komið í úrslit Evrópukeppni félagsliða og gæti alveg farið þar með sigur af hólmi. Það yrði í fyrsta sinn sem lið yrði Evrópumeistari án þess að hafa nokkru sinni unnið titil í heimalandi sínu. Merkilegt.

5 Responses to “Firring”

  1. Sverrir Guðmundsson Says:

    Það er greinilega búið að leysa kýrverðið af hólmi!

  2. Gunnar Says:

    Gaman að setja ofan í þig. Get bara ekki staðið á mér
    Boro vann deildarbikarinn fyrir 3-5 árum síðan

  3. Torfi Says:

    Hvernig er þetta Stefán, nú þegar maður les svo til daglega í blöðunum þar sem vitnað er í vefsíðu þína…er enginn möguleiki fyrir þig að fara að krækja í einhvers konar STEF-gjöld fyrir þetta?

  4. Elías Says:

    Ég man þegar ég las fyrst fjárlögin, það hefur verið árið 1994, þá rak ég augun í einn póst sem hét “beinar greiðslur til sauðfjárbænda” og var um það bil 5 milljarðar. Sams konar póstur og jafn hár hét “beinar greiðslur til kúabænda” og annar eins til mjólkurframleiðslu. Ég legg til að 5 milljarðar verði ný eining, það mætti t.d. kalla hana being, sem stytting á “beingreiðsla”.

    Þannig að næst þegar fólk fer að fjargviðrast yfir 100 milljónum til menningarmála á fjárlögum getur maður sagt “iss, þetta er ekki nema núll komma núll tvö being.”

  5. Ragnar Says:

    Hvernig er það, var ekki Toyota Landcruiser mest seldi bíll á Íslandi 2004 og 2005?

    Get ekki betur séð en að bankastjórinn hafi valið ágætis viðmið…