Til hamingju Færeyjar
Í vikunni verða Norðureyjagöngin á Færeyjum tekin í gagnið. Það er stór áfangi í samgöngumálum eyjanna og mikilvæg viðbót við frábært vegakerfi.
Hinar greiðu samgöngur milli staða á Færeyjum eru lykilatriði í því hversu góður ferðamannastaður þær eru. Við Steinunn fórum um velflestar af eyjunum sumarið 2002, en gistum allan tímann í Þórshöfn. Á þeim tíma voru göngin til Vogeyjar ekki komin og við þurftum því að taka tillit til ferjusiglinga suma daganna. T.d. gátum við ekki borðað kvöldmat í Klakksvík einn daginn, sem hefði þó hentað okkur mun betur en að ráfa matarlaus um Þórshöfn seint um kvöld í leit að matarbita.
Næst þegar við förum til Færeyja er stefnan sett á Suðurey, sem varð alveg útundan í síðustu heimsókn. Þá væri ekki leiðinlegt að heimsækja Mykjunes í góðu skyggni.
# # # # # # # # # # # # #
Senn verður ekki komist hjá því að taka ákvarðanir varðandi garðinn hér á Mánagötunni. Hann er í skralli vegna vanrækslu og eftir klóakframkvæmdirnar stóru fyrir nokkrum misserum. Enginn í húsinu er spenntur fyrir dýrum framkvæmdum, en svona getur þetta ekki litið út mikið lengur.
Mér kemur helst til hugar að rétt væri að keyra moldarhlassi í lóðina, slétta yfir og sá í. Jafnvel mætti setja möl næst húsinu. Óska eftir ráðleggingum góðra manna.
# # # # # # # # # # # # #
Ruslpósturinn sem streymir inn í athugasemdakerfið hér á síðunni eykst með hverjum deginum. Ég hef varla undan að eyða skeytum frá lyfjaframleiðendum, happdrættum og einhverjum skuggalegum klámmyndaframleiðanda sem segist selja nauðgunar-myndbönd. Hvernig hafa þessir menn upp á síðunni minni?
Niðurstaðan verður væntanlega sú að ég fæ Palla til að loka fyrir athugasemdir við greinar sem eru orðnar eldri en nokkurra daga. Það þýðir að menn sem gúggla sjálfum sér og ramba inn á gamlar færslur geta ekki hellt úr skálum reiði sinnar og kallað mig ýmsum nöfnum. Ekki verður á allt kosið.

April 26th, 2006 at 00:38
Já, það má spara sér heilmikið vesen þannig. Sjálfur hef ég iðulega manúalt lokað fyrir athugasemdir á eldri færslum.
April 26th, 2006 at 00:48
Ég veit að Wordpress býður upp á svartlista sem myndu útiloka mestallt spam.
April 26th, 2006 at 07:42
Í kerfisstillingum geturðu hakað við þann kost að “kerfisstjóri” þarf að samþykkja athugasemdir eða hafna þeim. Þeir sem gera athugasemdir hjá þér, fá boð um að þær fari á biðlista og bíði samþykkis. Þetta hef ég gert þegar á mig er herjað.
April 26th, 2006 at 08:02
En þá myndi ég eftir sem áður fá tilkynningarnar um athugasemdir sem bíða samþykktar eða synjunar. Pósturinn myndi því ekkert minnka og það er einmitt vesenið við að fá 100 ruslpósta á dag sem er svo hvimleitt.
April 26th, 2006 at 08:58
Tja, þú getur afþakkað að fá tölvupóst þegar athugasemdir eru gerðar. Þá losnarðu við ruslpóst og fleygir athugasemdunum út öðru hverju. Allir sem hafa fengið samþykkta athugasemd hjá þér einu sinni, komast beint í gegn. Hinir fara á biðlista.
April 26th, 2006 at 10:38
mörg blogkerfi bjóða uppá svona spam vörn, þ.e þarft að slá inn öryggiskóða sem birtist fyrir ofan hvert comment box til þess að geta sent inn - þessi kóði birtist s.s í mynd sem þessir spam-botar geta ekki lesið og stoppar þá því - spurning um að kanna hvort þetta kerfi bjóði upp á slíkt?
April 26th, 2006 at 11:26
Þar sem ég er að brúka sama kerfi og þið Kaninku bræður átti ég við sama vandamál að stríða, ég fann viðbót sem heitir Spam Karma og er á http://unknowngenius.com/blog/wordpress/spam-karma/ Ég hef ekki lent í að auglýsing birtist í kommentum síðan þá, og ekki heldur að athugasemd sem er réttilega gerð sé flokkuð sem rusl. Auk þess legg ég til að þið setjið inn íslenskustuðning sem binni.is er búinn að standa að, hann fæst hér: http://www.binni.is/wordpress/
endilega smelltu þessu inn, lífið verður svo miklu auðveldara og fallegra á íslensku að sjálfsögðu
April 26th, 2006 at 12:11
Auðvitað koma menn í hrönnum að gefa ráð um kommentakerfi - en enginn um garðinn.
Er liðið í húsinu til í að setja vinnu í þetta þó það vilji ekki borga?
Ef einhver getur til að mynda fengið léða sæmilega kerru má fara á velvalinn stað og safna góðum steinum og raða í gangstétt næst húsinu, frekar en t.d. að kaupa hellur - enda steinar með náttúrulegri lögun ólíkt skemmtilegri.
Þökulagning þarf heldur ekki að vera dýr - með nokkrum símtölum má jafnvel finna framleiðandann og kaupa þetta beint frá honum og nokkur hundruð krónur fermetrann.
April 26th, 2006 at 12:56
Svo gætirðu ráðið góðan félaga þinn í vinnu sem er vanur garðyrkjumaður, hallað þér aftur í stólnum og drukkið bjór á meðan þú horfir á hann svitna. Ekki skemmdi ef þessi félagi væri frílansari og hefði því nokkuð lausan tíma. Kannski gæti hann unnið við þýðingar, sagnfræði og blaðamennsku.
April 26th, 2006 at 14:31
Varðandi garðyrkju.
Um að gera að fjárfesta í svona dúkræksni sem maður leggur upp að húsi, og jafnvel undir hellur, steina, til að koma í veg fyrir að upp vaxi arfi og annar óbjóður. Fátt er hvimleiðara en arfager í gangstétt, eða mosavaxinn grunnur…
April 26th, 2006 at 15:35
Styð japanskan garð. Bara sturta sandi á þetta. Þannig verður hann bæði börnunum og köttunum í hverfinu til ómældrar ánægju.
April 27th, 2006 at 09:39
Skítailmur af þökunum?
Í Skötufirði við Ísafjarðardjúpi má finna náttúrulegar hellur í fjörunni. Ekki alveg viss hvort enn sé leyfilegt að taka, en landeigendur geta eflaust svarað því og leyft grjótnám. Mæli með landeigendum sem hafa þar fasta búsetu, ekki pakkinu í sumarbústöðunum.
April 27th, 2006 at 20:39
nálægt því…
Davíð Þór stakk upp á sandkassagarði… kettir og allskyns óþjóðalýður hafði gert sig heimankomin í kassanum… gert þar þarfir sínar. Ekki góð lykt á sunnudagsmorgni.