Bosman
Hlustaði á langt viðtal í hádegisfréttunum við forsvarsmann Keflvíkinga í körfuboltanum sem flytur tillögu á ársþingi KKÍ þess efnis að reglum um erlenda leikmenn verði breytt. Nú er heimilt að hafa einn bandarískan leikmann, en ekkert þak er á fjölda Evrópumanna. Evrópubúarnir eru kallaðir Bosman-leikmenn með vísun í hið fræga Bosman-mál í fótboltanum.
Keflvíkingurinn taldi fyrirkomulagið afleitt og færði fyrir því ýmis rök. Þess í stað vill félagið að reglum verði breytt á þann veg að einungis verði leyfðir tveir útlendingar í liði - óháð uppruna.
Nú kann vel að vera að þessi tillaga yrði til bóta og styrkti körfuboltaliðin í landinu, en það skiptir bara engu máli. Bosman-reglan er tilkomin vegna dóms sem varðaði atvinnufrelsisákvæði Evrópusambandsins ekki satt? Árþing KKÍ getur því ekki numið hana úr gildi, hversu góður sem rökstuðningurinn kann að vera. Auðvitað er hægt að heimila fleiri bandaríska leikmenn, en það verður ekki lokað á EES-leikmenn með tillögu á borð við þessa.
Hitt er stærri spurning - hvers vegna í ósköpunum er ég að hafa skoðun á eihverjum körfuboltamálum?

April 26th, 2006 at 13:00
Þessi umræða hefur mjög oft komið upp á yfirborðið, en ég held að þetta hafi aldrei verið lagt fyrir ársþing áður.
Ein rökin sem hafa verið færð fyrir því að þorandi væri að reyna þetta, eru þau að málarekstur fyrir Evrópudómstólum tæki of langan tíma, og væri of dýr, til að nokkur hér heima á Íslandi væri tilbúinn að leggja út hann.
Hugmyndin er að þetta gæti því verið tilraunarinnar virði, þ.e. að láta á þetta reyna í eitt ár og sjá hvort þetta væri þess virði.
Sjálfur hef ég alls ekki gert upp við mig hvað mér finnst um tillöguna sem slíka.
April 26th, 2006 at 14:48
Það þyrfti nú ekki að fara með þetta fyrir Evrópudómstólinn til þess að fá þessu hnekkt.
Strumpakveðjur
April 26th, 2006 at 15:04
Nei, mögulega ekki, en eins og ég segi, þá voru þetta ein rökin… ekki einu rökin
April 26th, 2006 at 16:24
Bosman sjálfur var nú ekki sá ríkasti, var síðast þegar ég frétti að skrimta á ölmusum, enda fór málið alveg með þann litla fótboltaferil sem hann átti …
April 27th, 2006 at 14:42
Þetta er náttúrulega stóridómur um hve evrópusambandið er slæmt og vitlaust. Frekari umræða um það er hér með gerð óþörf.