Allt að gerast í Rafheimum
Það er mikil gleði á Minjasafninu í dag. Prentsmiðjan sendi okkur nýju Rafheima-möppurnar sem dreift er til skólahópa sem heimsækja Rafheima. Íslenska auglýsingastofan sá um að gera þessa nýju möppu og hún er þakin stórum og björtum litmyndum í stað svarthvítu/koparáferðarinnar sem var á öllu prentefni Orkuveitunnar til skamms tíma.
9. bekkur Laugalækjarskóla er í heimsókn. Góðir hópar úr 9. og 10. bekk eru skemmtilegustu gestirnir. Tíu ára börnin eru ágæt, en það er hægt að spjalla miklu meira við unglingana og fá þau til að pæla virkilega í hlutunum.
Á svona dögum finnst mér ég vera í einhverju skemmtilegasta starfi sem hægt er að hugsa sér.

April 27th, 2006 at 08:20
Sæll Stefán
Það verður mikið að gersast í FRAMheimilinu á laugardaginn. Þér er hér með boðið á leikinn og gaman væri að sjá þig um kl 15:00 í smá upphitun. Allt ´72 liðið mætir fyrir leik (einn kemur sérstaklega frá Svíþjóð), heiðursmeðlimir fram verða 5 af 8 (Don Alfredo mætir um kvöldið ef við vinnum) og gömlu formenn deildarinnar mæta vel ásamt FRAMstuðurum. Við ætlum að ná í nokkur góð Kodak móment fyrir 100ára bókina.
Kveðja
Kjartan Ragnarsson