Exbé - leiðrétting

Um daginn bloggaði ég um Exbé-auglýsingar Framsóknarflokksins. Mér fannst fyndið að nafn flokksins væri svona rækilega falið í auglýsingunum og taldi það gert af ráðnum hug.

Björn Ingi leiðrétti mig í athugasemdakerfinu. Þar sagði:

Sæll gamli vinur,

Takk fyrir að benda á auglýsingarnar okkar. En skýringin á exbé og B-listanum er ekki jafn dramatísk og þú gefur í skyn, eða vilt vera láta minn kæri. Staðreyndin er sú að í borgarstjórnarkosningum hefur verið rík hefð fyrir því að auðkenna framboðin með listabókstaf og það var gert í tilfelli okkar framsóknarmanna, t.d. í kosningunum 1982, 1986 og 1990. Þá var jafnan auglýst í nafni B-listans og þótti gefast nokkuð vel.

Með bestu kveðjum, Björn Ingi

Ég gerði auðvitað ráð fyrir að frambjóðandinn væri með þetta á hreinu. Til að sannreyna þessi orð hans gluggaði ég eitthvað aðeins í Moggann frá 1982 og 1986 á Tímaritavefnum, en fann svo sem lítið enda nánast bara auglýsingar frá íhaldinu í blaðinu þau árin.

Fyrir kosningarnar 1990 var staðan flóknari. Ekki var búið að skanna inn sjálf blöðin og því þurfti ég að nota leitarvélina á mbl.is, sem er drasl þegar kemur að eldri blöðunum. Út frá þeirri leit sýndist mér þó að það gæti staðið heima að Framsókn hefði auglýst undir merkjum B-lista.

Frá því að ég skrifaði færsluna hafa starfsmenn Landsbókasafn hins vegar verið duglegir í vinnunni og nú er hægt að lesa Moggann frá fyrri hluta árs 1990 á Tímaritavefnum.

Um helgina hraðrenndi ég í gegnum Moggann síðasta mánuðinn fyrir kjördag, sem var 26. maí.

Á þessu tímabili birtu Framsóknarmenn í borginni fimm auglýsingar í Mogganum - tvær heilsíðuauglýsingar og þrjár hálfsíður. Þær voru sem hér segir:

 * laugardaginn 12. maí, hálfsíðuauglýsing með myndum af Sigrúnu Magnúsdóttur og Alfreð Þorsteinssyni með yfirskriftinni: “Myndir þú vilja soprstöð í hverfið þitt?” Undir auglýsingunni er stór svartur rammi þar sem stendur nafn Framsóknarflokksins með merki flokksins á báða arma.

* fimmtudaginn 17. maí, hálfsíðuauglýsing með myndum af fjórum efstu frambjóðendum með yfirskriftinni: “Af hverju siðareglur fyrir borgarfulltrúa?” Sama undirskrift með nafni og merki Framsóknarflokksins.

* laugardaginn 19. maí, heilsíðuauglýsing með mynd af sex efstu frambjóðendum. Yfirskriftin var: “Lykillinn að betri borg”. Undir var sami svarti ramminn með nafni Framsóknarflokksins, en xB á báða arma.

* miðvikudaginn 23. maí, hálfsíðuauglýsing um “Dag aldraðra í Reykjavík”. Þar kemur fram að B-listinn í Reykjavík bjóði eldri borgurum til kaffiveitinga í Glæsibæ. Undir auglýsingunni stendur: Framsóknarfélögin í Reykjavík.

* fimmtudaginn 24. maí, heilsíðuauglýsing með flennistórri mynd af Sigrúnu Magnúsdóttur og fyrirsögninni “Það vantar 120 atkvæði”. Undir stendur nafn Framsóknarflokksins í svörtum ramma, með xB-merki báðum megin.

Ég slæ þann varnagla að einhverjar auglýsingar kunna að hafa farið fram hjá mér. Eftir stendur að það er ekki rétt hjá Birni Inga að Framsóknarflokkurinn hafi auglýst í nafni B-listans 1990 (ef frá er talin auglýsingin um hátíð eldri borgara). Sömuleiðis var það rangt hjá mér að taka undir þessa staðhæfingu Binga.

1990 auglýsti Sjálfstæðisflokkurinn stundum einungis undir merkjum xD og Nýr vettvangur birti 2-3 auglýsingar sem einungis voru merktar xH. Kvennalistinn notaði ætíð nafn sitt í auglýsingum, en Alþýðubandalagið auglýsti ekkert í Mogganum.

Þannig er því nú háttað.

14 Responses to “Exbé - leiðrétting”

  1. Örn Úlfar Says:

    Hélt það líka.

  2. kolbeinn Says:

    Það verður gaman að sjá hvort Bingi bregst ekki jafnskjótt við þessari færslu og hinni fyrri.

    En af hverju er Bingi ekki með tengil á Önnu Kristinsdóttur samherja sinn á heimasíðu sinni? Nú er hún með hann efstan á blaði eins og góðra félaga er siður.

  3. jy Says:

    Glæsilegt Stefán. Það væri óskandi að íslenskir blaðamenn tækju þig og Lbs sér til fyrirmyndar. “Þetta hefur alltaf verið svona” og “nefndu dæmi” eru svör sem eru bara notuð af pólitíkusum sem vita upp á sig skömmina en halda að þeir geti losnað við óþægilegar spurningar af því að enginn nenni að leita uppi svörin. Það er sorglegt að sjá hvað Bingi er búinn að tileinka sér mikið af svona ódýrum trixum.

  4. Bryndís Says:

    Er þetta djúpstæða hatur þitt á Framsóknarflokknum að einhverju leyti byggt á því að hann er með flottari auglýsingar en þinn eigin flokkur?

  5. Benedikt Says:

    Mér finnast rök Binga líka frekar hlægileg. Segjum sem svo að flokkurinn hafi gert þetta áður, þá breytir það ekki þeirri niðurstöðu Stefáns að menn þar á bæ geri sér grein fyrir hvað flokkurinn er hataður. Það eina sem breytist er dagsetningin, þ.e. það er ekki fyrst núna sem Framsóknarmenn fatta að nafn flokksins er fráhrindandi.

  6. Sverrir Says:

    Hata menn Framsóknarflokkinn ef þeir gera þá kröfu að frambjóðendur hans segi satt?

  7. Þorbjörn Says:

    Bingi minn! Hvar ertu?

  8. KL Says:

    Athyglisvert að Björn Ingi bíði með að svara þessu, í ljósi þess hve fljótur hann var á sér að svara fyrri pistlinum. Kannski að hann sé að byggja upp spennu.

  9. Magnús Says:

    Þögnin er æpandi. Ótrúlegur munur hins vegar að sjá menn athuga hlutina og komast að hinu rétta. Sorglegt hvað maður er óvanur því.

  10. Jón Lárus Says:

    Þetta er alvöru rannsóknarblaðamennska. Því miður allt of sjaldgæf hér á landi.

  11. Björn Ingi Says:

    Kæru vinir,

    Maður verður bara grátklökkur yfir þessum mikla áhuga á framsetningu kosningaherferðar okkar framsóknarmanna. Stefán vinur minn hlýtur að vera með í smíðum álíka lærðar greinar um notkun sjálfstæðismanna á d-listabókstafnum í borgarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum og svo framvegis, þetta eru greinilega aðalatriði kosninganna.

    Staðreyndin er sú að Framsóknarflokkurinn hefur í 90 ár notast við listabókstafinn B. Hann er elsti starfandi flokkur landsins og hefur aldrei skipt um nafn eða kennitölu og ávallt notast við bókstafinn B til að auðkenna framboð sitt. Undantekningarnar frá þeirri reglu, eru þau skipti sem flokkurinn tók þátt í kosningabandalagi með öðrum flokkum, t.d. innan Reykjavíkurlistans. Þá var stafurinn R stafur okkar framsóknarmanna í borginni og sú hefur verið staðan í síðustu þremur kosningum, eða allt frá árinu 1990.
    Það eru því talsverð tíðindi að aftur sé boðið fram undir merkjum B í borginni og við framsóknarmenn viljum einfaldlega koma því rækilega á framfæri við borgarbúa. Pirringur fólks úr öðrum stjórnmálaflokkum er skiljanlegur þar sem flestum ber saman um að herferð flokksins sé skemmtileg, fersk og frumleg og er nægilegt að nefna ummæli þriggja ólíkra manna í því sambandi, þ.e. Styrmis Gunnarssonar, Egils Helgasonar og Össurar Skarphéðinssonar í því sambandi, en ekki eru þeir þekktir af því að binda trúss sitt sérstaklega við Framsóknarflokkinn.
    Ég hef gaman að sögunni og stúdera hana. Í aðdraganda kosninganna nú skoðaði ég gömul dagblöð og hafði gaman að því að kynna mér baráttuna fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1982, 1986, 1990, 1994, 1998 og 2002 en ég tók reyndar að nokkru leyti þátt í þeirri síðasttöldu. Það vakti athygli mína og annarra sem að framboði okkar framsóknarmanna koma, hversu áberandi var að Framsóknarflokkurinn kynnti sig undir merkjum listabókstafsins B og raunar margir flokkar aðrir. En ég er með úrklippur af ótal auglýsingum og dreifiritum frá flokknum, sérstaklega úr kosningunum 1986 og 1990 þar sem B-ið er miklu meira áberandi en nafn flokksins, þótt eflaust sé rétt hjá Stefáni að það komi fyrir í einhverjum auglýsingum, líklega þá helst í Tímanum sem var þá málgagn flokksins. Þessu var ekki þannig farið í herferðum flokksins eða annarra flokka fyrir þingkosningar, þannig að svo virðist sem listabókstafirnir skipti meira máli þegar kosið er til borgar- og sveitarstjórnarkosninganna, hvernig svo sem á því stendur.
    En þetta var nú sagnfræðilegur útúrdúr. Aðalatriðið er að við Framsóknarmenn bjóðum stoltir fram undir merkjum B rétt eins og síðustu níutíu ár. Hvernig við útfærum lógóið er auðvitað okkar mál, en ekki fer á milli mála að útfærslan að þessu sinni hefur hitt í mark. Einhverjar reyna að sjálfsögðu að slá pólitískar keilur með því að fetta fingur út í baráttu okkar, en gleyma þá gamalli reglu í pólitík að betra sé að um mann sé talað og þau mál sem maður stendur fyrir, en að maður þurfi sífellt að vera að tala um aðra og þeirra mál. Okkar hlutverk í baráttunni hingað til hefur verið að leiða umræðuna, sbr. flugvallarmál, og líklega heldur það áfram. Þegar umræðan er farin að snúast um lógó okkar og útlit kosningabaráttunnar er það síðan auðvitað rakin sönnun þess að við séum að gera eitthvað rétt.

    Baráttukveðjur,

    Björn Ingi

  12. kolbeinn Says:

    Úff! Greinilega mikið að gera í kosningabaráttunni.

  13. Þorbjörn Says:

    Já, kannski er best að hamra nú á béinu svo aldnir framsóknarmenn panikki nú ekki þegar þeir finna ekkert err til að kjósa.

  14. Elías Says:

    Hvaðan koma peningar Framsóknarflokksins?