Búinn á því
Úff. Ég er gjörsamlega uppgefinn. Hvers vegna er ekki útskýrt í mæðraskoðuninni hjá Heilsugæslunni að barnaafmæli séu svona slítandi.
Samt voru sárafáir gestir og börnin bara þrjú - þar af eitt sem hreyfði sig varla úr kjöltu mömmu sinnar…
Hvernig verður þetta eftir nokkur ár?
Getum við ekki gerst Vottar Jehóva? Þeir halda ekki upp á afmæli - eða voru það jólin?

April 23rd, 2006 at 19:42
Vottar Jehóva halda hvorki upp á jólin né önnur afmæli.
April 23rd, 2006 at 21:53
Já…þetta ætti að vera í handbókunum… Þú munt eiga alla mína samúð á fimm ára afmælinu þegar Ólína fær í heimsókn á bilinu 8 til 15 skrækjandi leikskólavinkonur. Tveir tímar af því…og mann langar að leggjast niður og deyja.
April 23rd, 2006 at 22:39
Iss, það er nú bara hátíð miðað við píkuskrækina og fyrri gelgjuna í grunnskólavinkonunum
April 24th, 2006 at 00:04
Eða þegar börnin komast á gelgjuskeiðið…
April 24th, 2006 at 00:47
Hehehe
Skil hvernig þér líður…
April 24th, 2006 at 00:58
Það er sumsé skoðun kommentara að þetta muni bara versna hjá honum Stebba greyinu…
Strumpakveðjur
April 24th, 2006 at 01:03
ó já!