Ástarsagan
Í morgun hringdi í mig blaðakona frá Hér og nú. Hún vildi fá mig í viðtal fyrir einhvern dálk í blaðinu þar sem fólk segir sögur af því þegar það fór að slá sér upp með makanum. Ég afþakkaði pent.
Er það ekki sönnun þess að Ísland sé of lítið fyrir vikuleg slúðurblöð þegar ástarmál safnvarða þykja fréttamatur?
Annars á ég einhversstaðar líflega bloggfærslu um þetta mál. Þar komu Egill Helgason, Haraldur Blöndal og óður maður með sveðju meðal annars við sögu…
# # # # # # # # # # # # #
Síðasta kennslustundin í vísindasögunámskeiðinu verður seinnipartinn. Umfjöllunarefnið: vísindaskáldsögur - með áherslu á líf á öðrum hnöttum.

April 19th, 2006 at 14:13
Í útópíunni mætti ímynda sér að þetta þýddi að blaðamenn hafi loksins gert sér grein fyrir því hvað skiptir raunverulega máli
April 19th, 2006 at 18:14
Ef eitthvað er spunnið í þennan blaðamann mun hann kafa eftir þessari bloggfærslu og birta hana ásamt samklipptri mynd af ykkur Steinunni.
April 19th, 2006 at 22:58
Svenni góð hugmynd
April 21st, 2006 at 21:35
Ástamál safnvarða, hvað? Enga uppgerðarhógværð, Stefán.
April 22nd, 2006 at 13:17
Umrædd “ástarsaga” er reyndar ein fárra slíkra sem er skemmtileg að lesa! Ein skemmtilegasta bloggfærsla sem ég hef lesið
May 8th, 2006 at 13:58
I like your site
May 8th, 2006 at 20:59
Great website! Bookmarked! I am impressed at your work!