Archive for March, 2006

Kampavín

Thursday, March 16th, 2006

Í gær var kvikmyndasýning í Friðarhúsi, þar sem sýnd var bandarísk heimildarmynd um stríðið í Írak og aðdraganda þess.

Stemningin varð talsvert öðruvísi en búist hafði verið við - og er skýringin á því augljós.

Dregnar voru fram í það minnsta tvær kampavínsflöskur og þeim gerð góð skil.

Halldór í herinn - og herinn burt!

Sterinn

Tuesday, March 14th, 2006

Geiri Sæm var magnaður tónlistarmaður. Í aftursæti á rauðum bíl var líklega toppurinn á hans tónlistarferli, en Sterinn var þó frægasta lagið.

Steinunn er í sterum. Þeim fyrstu sem hún hefur fengið á Borgarspítalanum á dagdeild í stað innlagnar á Sankti Jó. Það þýðir að hún mætir að morgni og lætur tappa á sig, en kemur svo heim til hvíldar. Fyrir vikið höfum við þurft að búa til flókið umönnunarkerfi fyrir Ólínu, þar sem mamma og pabbi, Bryndís o.fl. leggja sitt af mörkum. Sjálfur hef ég verið afar stopult í vinnunni vegna þessa.

Þetta álag fellur saman við undirbúning aðgerðanna á þriggja ára afmæli Íraksstríðsins á Ingólfstorgi á laugardaginn kl. 15. Daginn eftir þær held ég til Bretlands á Kuhn-ráðstefnu ásamt félaga Hugni og í heimsókn á Science Museum sem hluta af minni vinnu hjá Orkuveitunni.

Auðvitað er það blendin tilfinning að eyða svona miklum tíma og orku í félagsstörf á sama tíma og frúin er veik heima. Hins vegar veit ég að Steinunn hefur aldrei dregið af sér í baráttunni fyrir góðum málstað, þótt heilsan væri ekki eins og best væri á kosið. Það er einmitt þetta baráttuþrek sem gerir það að verkum að hún er miklu meira lifandi og virk en margir aðrir sem eru illa haldnir af MS. Það er svo auðvelt að detta niður í doða og framtaksleysi og kenna sjúkdómnum um allt sem aflaga fer. Sem betur fer hefur Steinunn aldrei dottið í þá gryfju.

# # # # # # # # # # # # #

Viský þessarar viku er Springbank, 10 ára. Þetta viský er í gríðarmiklu uppáhaldi hjá pabba, en hefur ekki alveg náð að heilla mig. Vissulega er þetta margfalt betra en flest það sem boðið er uppá í Ríkinu um þessar mundir, en það sannar svo sem ekki mikið.

Í utanför næstu viku þarf ég að kippa með mér Tallisker í safnið.

# # # # # # # # # # # # #

FRAM er enn í efsta sæti í handboltanum og stóri þröskuldurinn á vegi þeirra og titilsins virðist vera leikurinn gegn Stjörnunni næsta laugardag. Ef FRAM vinnur þá viðureign verður liðið að öllum líkindum Íslandsmeistari, en að öðrum kosti berjast fjórir klúbbar um dolluna. Þetta verður áhugavert.

Klöguskjóður og sagnfræðileikir

Friday, March 10th, 2006

Egill Helgason hnýtir í nafnleysingjann sem skellti bréfum Jónínu Ben á netið og leggur út af gamalli Sovét-goðsögn. Þar segir:

Eitt af átrúnaðargoðum Sovétríkjanna gömlu var Pavlik Morozov, lítill drengur, Komsomol-liði, sem klagaði pabba sinn til lögreglunnar vegna þess að þau höfðu falið korn - sem bændurnir máttu ekki halda eftir. Pavlik litli var fyrir vikið barinn til bana af íbúum þorpsins þar sem hann átti heima - en siðferðið í ríkinu var svo sérstætt að Pavel (svo!) var gerður að fyrirmynd ungmenna frá Leníngrad austur til Síberíu. Það voru reistar af honum styttur, af honum héngu myndir í æskulýðsheimilum, sumarbúðir voru nefndar í höfuðið á honum.

Eins og með allar svona sögur, verða þær flóknari þegar farið er að rýna betur í þær. Opinbera söguskýringin á Sovéttímanum var ekki ólík því sem Egill lýsir, nema það voru ættingjar drengsins sem drápu hann (og bróður hans) en ekki óskilgreindur múgur bæjarbúa - þá voru sakagiftir föðursins sagðar skjalafals. Ætli það hafi ekki hljómað háskalegar en að hamstra korni.

Sovésk stjórnvöld bjuggu til sína helgimynd af Pavlik og drógu ekki af sér í lýsingum á því hversu efnilegur piltur hann hefði verið. Andstæðingar stjórnarinnar hrökkluðust sömuleiðis ofaní skotgrafirnar. Sagnfræðingar úr þeirra röðum lögðu kapp á að afbyggja alla þætti sögunnar. Þannig drógu þeir upp mynd af Pavlik sem litlum, ljótum, heimskum og ólæsum. (Eins og það breyti neinu um eðli þess verknaðar að framselja föður sinn - hvort viðkomandi sé horaður eða pattaralegur?)

Hjá þessum endurskoðunarsinnum varð það mikið mál að sýna fram á að Pavlik hafi ekki verið í Komsomol, einhverjir drógu það fram að hann hefði í raun ekki kært pabba sinn til lögreglunnar heldur kennarans síns - sem aftur hafi komið málinu á framfæri. Þessi náungi gekk meira að segja svo langt að gefa í skyn að Pavlik hefði verið drepinn af leyniþjónustunni en ekki ættingjum sínum.

Með öðrum orðum: á sama hátt og sovésk stjórnvöld reyndu að búa til kommúníska hetjusögu úr dauða Pavliks, þá reyndu andstæðingarnir að skapa and-kommúníska sögu úr þessu sama máli.

Á síðustu árum hafa stórsöguskýringar heldur verið á undanhaldi í sögunni. Nýjustu skrif um Pavliks-málið taka mið af því. Þar er spurningin um hver sé góður kommúnisti og hver vondur lögð til hliðar og þess í stað fjallað um málið sem fjölskylduharmleik.

Sú útgáfa sögunnar leggur áherslu á þátt móður Pavliks, sem lenti í óhamingjusömu hjónabandi og erjum við fjölskyldu eiginmanns síns, sem taldi hana ekki af nógu góðum ættum. Faðirinn brást sem fyrirvinna, en lagðist í kvennafar og er klögumálið talið runnið undan rifjum hinnar sviknu eiginkonu í hefndarskyni. Sjá t.d. þessa umfjöllun.

Líklega verða ekki margar styttur reistar af Pavlik úr þessu - en hér er augljóslega komið stöff í dramatíska Hollywood-mynd.

# # # # # # # # # # # # #

Það þarf reyndar ekki að fara 75 ár aftur í tímann til að finna áhugaverð dæmi um sögutúlkanir.

Í Mogganum í dag er sagt frá Fiðluballi MR-inga. Þar segir:

Mikið var um dýrðir í Iðnó við Tjarnarbakkann í gærkvöldi þegar útskriftarnemendur Menntaskólans í Reykjavík héldu sitt árlega fiðluball. Stúlkur í síðkjólum og piltar í kjólfötum dönsuðu um salinn við undirleik strengjakvartetts og skein gleðin úr hverju andliti. Upphaf ballsins er rakið til 19. aldar.

Jahá. Upphaf ballsins er rakið til 19. aldar.

Jú, það má segja að upphafsmennirnir hafi verið einhverskonar 19.aldarmenn í hugsun - dugar það?

Fyrsta fiðluballið var haldið á sjöunda áratugnum og átti að vera einhvers konar andóf gegn hippamenningunni eða 68-kynslóðarkúltúrnum. Sr. Geir Waage var víst einn af upphafsmönnunum. Þetta ball var haldið aðeins einu sinni.

Árið 1992 endurvakti Dagur B. Eggertsson fiðluballið - sem aldrei skyldi verið hafa.

Fimmtán árum síðar halda börnin í MR að dansleikurinn þeirra byggist á aldagamalli hefð - en staðreyndin er sú að Spaugstofan er lífseigara fyrirbæri en Fiðluballið. Labbakútar!

Björgólfur og ég

Friday, March 10th, 2006

Mogginn upplýsir að ofurmillinn Björgólfur sé 350. ríkasti maður í heimi, en hafi verið nr. 488 í fyrra.

Mér finnst aðdáunarvert að hægt sé að reikna út hver sé 488. ríkasti maður í heimi. En úr því að hægt er að finna það út, gefur auga leið að það hlýtur að vera vitað hver er sá 489. ríkasti - og hver sé nr. 490 eða 491…

Þetta þýðir jafnframt að úr því að herra Forbes veit hver er 491. ríkasti maður í heimi - þá hlýtur hann að vita númer hvað ég er í röðinni. Gaman væri að fá svör við því.

Álver/herstöð

Wednesday, March 8th, 2006

Það hefur verið merkilegt að fylgjast með viðbrögðum manna við ummælum forsætisráðherra þess efnis að Alcan íhugi að loka sjoppunni ef álverið í Straumsvík fæst ekki stækkað. Almennt virðist afstaða fólks vera sú að ef eigendur Alcan séu með einhverja stæla, þá geti þeir bara pillað sig á brott - það sé hægt að gera margt annað í lífinu en að bræða ál og Hafnarfjarðarbær segist vel geta hugsað sér að nýta byggingarlandið sem til yrði.

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur náði sér vel á strik þegar hann sagði hótun Alcans vera frábærar fréttir. Ef verksmiðjan myndi loka væri hægt að selja rafmagnið á “réttu verði” með stórhagnaði fyrir orkufyrirtækin og þjóðina.

Það er forvitnilegt að bera þessa umræðu - þar sem í fullri alvöru er talað um loka vinnustað með mörghundruð störfum, mörgum hverjum ágætlega launuðum tæknistörfum - við hinar sífelldu dómsdagsfréttir af því að 20 manns hér eða 15 manns þar sé sagt upp hjá hernum á Keflavíkurflugvelli. Þá láta menn eins og allt sé að fara fjandans til og að stjórnvöld verði að tryggja að djobbum í skúringum fyrir Kanann fækki ekki.

KRR

Wednesday, March 8th, 2006

Á vef KSÍ er sagt frá því að búið sé að safna saman úrslitum í öllum mótum sem KRR, Knattspyrnuráð Reykjavíkur, hafi staðið fyrir. (Reyndar virkar ekki tengillinn hjá mér á þennan úrslitagrunn, en það hlýtur að vera byrjunaörðugleiki sem verður kippt í liðinn.)

Ég er spenntur að sjá hversu ítarlegur þessi upplýsingabanki verður. Með metnaðarfullum skrásetjurum mætti búa til verulega góðan upplýsingabanka um gömul knattspyrnuúrslit, enda gerði KRR lengi vel kröfu til þess að félög skiluðu inn nákvæmum listum yfir leikmannahópa sína og ekkert félag mátti leika svo mikið sem formlegan æfingarleik án þess að biðja um leyfi.

Á sama tíma og hægt er að finna leikmannalista allra félaga í öllum flokkum fyrstu áratugi knattspyrnuíþróttarinnar á Íslandi, þá er það sérkennileg staðreynd að menn vita ekki einu sinni hverjir urðu markakóngar Íslandsmótsins í knattspyrnu 1920 til 1935. Markaskorurum var einfaldlega ekki haldið til haga.

Afi heitinn sagði mér frá því að hann hefði sem formaður í FRAM látið taka saman býsna tæmandi lista yfir knattspyrnuleiki allra liða í öllum aldursflokkum frá upphafi og fram undir miðja öldina. 1961, þegar Valsmenn áttu 50 ára afmæli fengu þeir skránna lánaða til að nota við útgáfu afmælisrits. Þeim tókst að týna henni og með henni óbætanlegum upplýsingum. Ef til vill vissum við nú hverjir hefðu skorað flest mörkin á þriðja áratugnum ef ekki væri fyrir slugsaskap Valsmanna eða það dómgreindarleysi afa að láta eitthvað dýrmætt í hendur Hlíðarendapilta.

KSÍ hefur gert vel í að safna gömlum fótboltaúrslitum, en það væri hægt að gera svo miklu, miklu betur. Sjálfur er ég að komast á þá skoðun að einhvers konar Wikipediu-form þyrfti til að safna þessum upplýsingum saman, þannig gætu grúskarar hver um sig bætt í sarpinn.  Hvernig væri að hið góða fólk á Wikipediunni tæki að sér þetta verkefni og önnur sambærileg. Hvar getur maður t.d. fundið lista yfir handboltaúrslit frá upphafi á aðgengilegum stað - eða þróun meta í frjálsum eða sundi?

# # # # # # # # # # # # #

Steinunn gæti farið í stera á morgun. Aðdragandinn er skammur og lítill tími til undirbúnings. Hún er komin með nýjan lækni og sá mun senda hana á Landspítalann á dagdeild, en ekki í innlögn á Sankti Jó eins og verið hefur. Það verða viðbrigði að hafa Steinunni heima í miðjum sterakúr. Verð að viðurkenna að ég er með smá hnút í maganum yfir þessu.

En fyrir öllu er að stelpan verði aftur hress og sterk.

# # # # # # # # # # # # #

Blaðið gerir sér mat úr Moggagrein minni frá því á mánudeginum. Ég hef nú skrifað nokkrar blaðagreinarnar í gegnum tíðina, en ekki átti ég von á að þessi þætti fréttnæm. “Meðlimur í stjórnmálaflokki lýsir mannkostum frambjóðanda þessa sama stjórnmálaflokks!” - Kannski ekki alveg fyrirsögn sem hrópar á mann?

Ég stend þó vitaskuld við hvert orð í greininni. Svandís Svavarsdóttir er mjög frambærileg og mikið gleðilefni að fá hana í borgarmálin.

# # # # # # # # # # # # #

Óskaplega var þessi Barcelona : Chelsea-leikur bragðdaufur.  Er ekki bara málið að halda með Lyon í þessari keppni?

Kvatt með tárum

Monday, March 6th, 2006

Það er skringilegur siður sem farinn er að tíðkast í pólitíkinni síðustu misserin að kveðja alla sem þaðan hverfa með tárum.

Einna gleggst kom þetta fram í tengslum við brotthvarf Davíðs Oddssonar af þingi og inn í Seðlabankann, þá fylltust allir spjallþættir af pólitískum andstæðingum Davíðs, jafnt sem samherjum og allir sungu sama sönginn um hvað það væri nú mikil eftirsjá af Davíð, bla bla bla…

Ekki saknaði ég Davíðs. Ekki sá ég mig knúinn til að ljúga upp einhverju ástar/haturssambandi í hans garð - ekki frekar en ég telji miklar líkur á að hægrimenn myndu harma mikið bortthvarf helstu leiðtoga vinstrimanna af sjónarsviðinu.

Þegar Reagan dó, var skyndilega reynt að gera út honum stjórnmálamann sem heimsbyggðin hefði í raun elskað. Fréttamenn reyndu jafnvel að hafa upp á gömlum Sovétleiðtogum til að fá þá til að staðfesta að í raun hefðu þeir elskað Ronny karlinn.

Þegar Sharon fékk heilablóðfallið, flaug NFS með Þóri Guðmundsson til Ísraels þar sem hann stóð brúnaþungur fyrir framan sjúkrahúsið og sagði heimsbyggðina vera í losti og að líf okkar allra yrði fátæklegra ef gamli hlunkurinn gæfi upp öndina.

Farið hefur fé betra, segi ég.

Núna á greinilega að spila sama leikinn með Árna Magnússon, sem þó var ekki þingmaður og ráðherra nema í tæp þrjú ár. Á þeim tíma afrekaði Árni það helst að klúðra gjörsamlega sameiningakosningu sveitarfélaga í landinu með ærnum tilkostnaði og heimsækja Kárahnjúka þar sem hann komst að þeirri niðurstöðu að öll aðstaða væri frábær og til fyrirmyndar.

Í fréttatímum er nú rætt við stjórnmálafræðinga sem tala um reiðarslag fyrir Framsóknarflokkinn sem hafi misst frábært foringjaefni, vammlausan stjórnmálamann og ég veit ekki hvað. Ekki sé ég neinn mun á Framsóknarflokknum fyrir eða eftir. Það er helst að maður sé ánægður með að losna við Austfjarðaþokuna úr heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu…

Líkir frændur

Saturday, March 4th, 2006

Ég hef oft lent í því að fólk heilsar mér og spyr hvort ég sé ekki skyldur Jóni föðurbróður mínum. Við frændurnir þykjum líkir.

Um daginn lenti ég hins vegar í því að kona heilsaði mér á förnum vegi. Ég kinkaði kolli á móti, án þess þó að koma henni fyrir mig. Síðar kom hún til mín og sagðist hafa tekið feil á mér og Stebba Kalla frænda mínum. Ekki vissi ég fyrr að við Stebbi Kalli værum sérstaklega líkir.

4. vísbending

Friday, March 3rd, 2006

Íþróttafélagið bar kvenmannsnafn.

Íþróttafélagið, þriðja þraut

Friday, March 3rd, 2006

Félagið sem um er spurt var angi af annarri hreyfingu sem hafði (og hefur) metnaðarfullt samfélagslegt markmið.