Dómarinn snýr aftur

Í kvöld mun sá er þetta ritar snúa aftur sem dómari í spurningakeppni. Það verður í þættinum Strákarnir á Stöð 2, þar sem upphaflegu strákarnir þrír keppa við nýrri mennina þrjá.

Ég lofa spennandi og skemmtilegri keppni, þar sem færni þeirra kumpána í spurningaleikjum mun koma á óvart.

# # # # # # # # # # # # #

Önnur spurningakeppni í kvöld er undanúrslitaviðureign MA og MH. Í janúar sagðist ég halda með Hamrahlíð í ár og stend við það heit. Engu að síður hallast ég að sigri Akureyringa í kvöld. Mér finnst þeir sterkasta liðið sem ég hef séð í ár, þrátt fyrir að vera ekki nægilega sterkir í hraðaspurningum. Ég yrði þó hissa ef munurinn yrði meiri en 3-4 stig.

Sjálfur verð ég að taka upp keppnina, enda staddur í Friðarhúsi í kvöld að fylgjast með stórmerkilegri myndasýningu og að skrafa við góða friðarsinna fram eftir kvöldi.

2 Responses to “Dómarinn snýr aftur”

  1. hildigunnur Says:

    og það gekk eftir

    árans!