Echo

Nú langar mig á tónleika.

Echo & the Bunnymen verða í höllinni 6. maí, ásamt fleiri misskemmtilegum flytjendum. Miðaverðið er meira að segja hófstillt.

Ég hlusta talsvert á E&B, en Steinunn er ekki eins hrifin. Spurning hvort ég fari ekki bara einn á þessa tónleika en sendi hana í staðinn á Ian Anderson. Það er ekki minn tebolli.

# # # # # # # # # # # # #

Flott dagskrá í Friðarhúsi á morgun með forvitnilegri kvikmyndasýningu. Þangað mæta allir góðir menn.

3 Responses to “Echo”

  1. Helgi Briem Says:

    Echo & the Bunnymen eru meiriháttar hljómsveit. Óskiljanlegt að þeir hafi ekki orðið hrikalega vinsælir. Fattar fólk virkilega ekki að megastjörnurnar U2 og Coldplay eru aðeins fátæklegar annars flokks eftirhermur kanínukallanna.

    Mæli líka með sólóplötum söngvarans Ian McCulloch.

  2. Sverrir Says:

    Er einhver von til þess að þessi kvikmyndasýning verði endurtekin?