Getraun dagsins

Hver mælti eftirfarandi orð (í lauslegri íslenskri þýðingu) og að hvaða tilefni?

Það er ekki markmið okkar að undiroka önnur ríki. Aðgerðir okkar ráðast ekki af illvilja eða hatri í garð annarra þjóða. Ég þekki vel hörmungar styrjalda og vil forða þjóð minni frá slíkum ógnum. Við eigum ekkert sökótt við almenning í landinu heldur leiðtoga þess. Hann hefur staðið fyrir ógnarstjórn. Hann hefur leitt hörmungar yfir fjölda fólks með harðstjórn sinni. Hann hefur kúgað milljónir íbúa lands síns til hlýðni. Ríki þetta hefur yfir að búa gríðarlegu vopnabúri – fram hjá þeirri ógn verður ekki litið. Við höfum sýnt ótrúlega þolinmæði, en ég neita að sitja lengur aðgerðalaus hjá meðan þessi brjálæðingur níðist á milljónum manna!

12 Responses to “Getraun dagsins”

  1. Matti Says:

    Þegar svona er spurt er svarið næstum alltaf Hitler :-)

  2. Sverrir Says:

    Held áfram með þennan þráð og giska á að tilefnið sé innrásin í Sovétríkin 1941.

  3. Davíð Þór Says:

    Var þetta Georges Bush eldri fyrir Flóabardaga 1991?

  4. kolbeinn Says:

    Blair fyrir innrásina í Írak.

  5. kolbeinn Says:

    Eða Saddam Hussein fyrir átökin við Íran?

  6. Sigga Magg Says:

    Ég giska á Tony Blair fyrir innrásina í Írak.

  7. Gummi Says:

    George Bush eldri um Eduardo Noriega?

  8. Ásgeir H Says:

    George W. fyrir innrásina í Írak? Eða hafa þessir labbakútar annars ekki alltaf notað sömu ræðuna?

  9. Halldór Says:

    Roosevelt um Hitler fyrir innkomu BNA í WWII?

  10. Ágúst Says:

    Georg I. og Flóabardagi. Davíð Þór kom með svarið fyrst en mér dettur ekkert annað ríki í hug með “gríðarlegt vopnabúr” með brjálæðing við stjórnvölin sem hefur verið ráðist gegn nýlega. Get ekki ímyndað mér hver hefði verið svona nýmóðins í orðavali fyrr á öldinni; undirok, illvilji og hatur eru frekar nýleg taboo. Fram eftir öldinni voru menn a.m.k. hreinskilnari þegar þeir sýndu slíkt gegn öðrum þjóðum.

  11. Jónas Sveinsson Says:

    Góður Ágúst.