Hrævareldur
Í kvöld er St. Elmo´s Fire á dagskrá Skjás eins. Ekki má missa af því.
Þetta kallar jafnvel á að nýja Tallisker-flaskan verði opnuð.
# # # # # # # # # # # # #
Ármann kvartar yfir óréttælti heimsins:
Ég var að velta því fyrir mér hve ósanngjarnt það var hér forðum að sonur Store stygge ulv héti Lille stygge ulv, þó hann sé ekkert „styg“.
Getur ekki verið að Stygge-Ulv sé samsett ættarnafn en feli ekki í sér neinn gildisdóm um innræti þeirra feðga? Spyr sá sem ekki veit.

March 26th, 2006 at 17:47
Ja pabbinn var þeirrar skoðunar að hegðun sonarins ætti að draga dám af ættarnafninu.
March 26th, 2006 at 18:01
Hrævareldur er skyldueign á DVD fyrir alla sem voru unglingar á þessum tíma.
March 26th, 2006 at 19:42
Þess má geta að Store Stygge Ulv heitir réttu nafni Zeke Midas Ulv.
March 26th, 2006 at 23:12
Mér fannst myndin krapp á sínum tíma. Treysti því samt að hún verði frábær í endursýningunni.
March 27th, 2006 at 01:45
Tallizzker…
Namm..
Z.
March 28th, 2006 at 20:25
Einhvern tímann komst ég að þeirri niðurstöðu að Lille Stygge Ulv væri stelpa. Ég man ekki hvers vegna, en svarið er sennilega að finna einhvers staðar á milli árganganna 1973 og 1977 af Anders And & Co.
Og ég missti af St. Elmos Fire, aftur.