Ferðapunktar
Kominn heim frá útlandinu. Hér eru nokkrir punktar:
* Það er skrýtið að gista í King´s College í Cambridge. Að utan eru byggingarnar eins og klipptar út úr Harry Potter-mynd en innandyra eru dæmigerðir stúdentabarir, gangar og herbergi eins og í stúdentagörðum frá 1965.
* Simon Schaffer er rosalega svalur vísindasagnfræðingur, en furðulíkur Stephen King í útliti.
* Maður þarf reglulega að minna sig á það hvað Structures eftir Kuhn er flott bók og hversu áhrifamikil hún var.
* Ale er öndvegisdrykkur.
* Það er alltaf jafnhvimleitt þegar ensku barirnir loka alltof snemma, en maður fagnar því að morgni.
* Bókabúðir eru stórhættulegar. Keypti samt ekki nema brot af því sem mig langaði í.
* Viskýbúðir eru líka stórhættulegar. Sjá færslu að ofan.
* Kjartan og Silvía eru höfðingjar heim að sækja.
* Át geit á karabískum veitingastað. Það var nú hálfgert súpukjöt, en samt gaman að geta sagst hafa étið geit.
* Science Museum er alltaf jafnskemmtilegt. Ég fæ aldrei nóg af heimilistækjasýningunni í kjallaranum. Nýja orkusýningin er sömuleiðis rosalega flott.
* Íslenska orkusýningin var ekki að hreyfa við mér. Hönnunin svo sem smart og stílhrein, en þetta var óskaplega mikið eins og túristabæklingur.
* Fór á bikarleik Chelsea og Newcastle. Slakur leikur en mögnuð upplifun engu að síður.
* Fékk kjánahroll þegar fulltrúi íslenska aðdáendaklúbbsins mætti inn á völlinn með viðurkenningarplatta til “leikmanns ársins”
* Fékk sniðugar hugmyndir í minjagripaversluninni á Biitish Museum sem vert væri að stela.
# # # # # # # # # # # #
Málsverður í Friðarhúsi í kvöld. Allir velkomnir. Sjá: hér.

March 24th, 2006 at 12:52
Cambridge er stórskemtilegur bær. Ég gisti á Homerton college í viku. Heimavistinn var nýleg uþb 1950, en mötuneytið frá um 1860. Alveg eins og í Harry Poter !! Egg, baikon og vondar pulsur
March 24th, 2006 at 15:44
Gaman er að handsnúa þvottavélinni á vísindasafninu. Svo er sem mig minni að þarna sé V-2/A-10 eldflaug í heilu lagi.
March 24th, 2006 at 16:10
Við segjum bara takk fyrir komuna. Vertu velkomin sem fyrst aftur.
March 24th, 2006 at 16:47
Ekki grunar mig hvern íslenski aðdáendaklúbburinn hefur valið leikmann ársins hjá Chelsea!
March 26th, 2006 at 22:23
Eru einhver mötuneyti í Bretlandi sem selja ekki bara “egg, beikon og vondar pulsur”?
Var þetta “curried goat”? Ég er búinn að vera á leiðinni í 3 mánuði á stað í Brummie sem ku selja bestu “curried goat” á Bretlandseyjum. Ég veigraði mér alltaf við að borða geit að arabískum hætti í fyrra, enda sá ég of oft á hverju þeir nærðust. Vona að fæði bresku geitanna sé þrifalegra.