Góðir dagar

smile.gifStundum gengur allt upp. Þá er gaman að vera til.

Herinn virðist á förum. Því fagna allir góðir menn.

Síðustu vikurnar hefur ómældur tími farið í að undirbúa aðgerðir gegn Íraksstríðinu. Dagskrá síðustu daga hefur verið þétt, en gengið eins og í sögu. Rúmlega 800 manna útifundurinn í dag var velheppnaður lokahnykkur.

Steinunn fór í stera og það setti heimilishaldið á hliðina. Með mikilli hjálp, meðal annars frá mömmu og pabba, Bryndísi og Nínu frá Heimaþjónustu borgarinnar tókst hins vegar að láta dæmið ganga upp. Þótt enn sé of snemmt að segja til um árangurinn, eru fyrstu merkin jákvæð.

Í sportinu er allt í góðu gengi. Luton endurréð Mike Newell til fjögurra ára og sigraði Derby í dag. Framararnir stigu á sama tíma stórt skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum í handboltanum (7,9,13).

Á morgun fer ég til Cambridge á Kuhn-ráðstefnu. Ég ræð mér varla fyrir spenningi. Þar hitti ég í það minnsta tvo gamla kennara frá Edinborg. Í kjölfarið fer ég til Lundúna og hitti Kjartan og Sylvíu.

Ekkert blogg hér fyrr en í fyrsta lagi á föstudaginn kemur…

2 Responses to “Góðir dagar”

  1. Sylvía Says:

    Búið er að sigta út Wiský-búðir í nágrenninu. Þar sem ég geri ekki ráð fyrir að Wiský-úrval ÁTVR hafi breyst síðan síðast :)

  2. Sigrún í Borgóliðinu Says:

    Til hamingju með útifundinn síðastliðinn laugardag. Komst reyndar ekki sjálf vegna æfinga, en frétti að hann hafi verið góður. :)

    Vildi hins vegar minna þig á það að þótt Borgóliðið í gettu betur sé óvant, þá erum við ekki endilega léleg. Það getur vel verið að verslingar muni vinna okkur án mikilla vandræða (orðrétt eftir þér), en allt getur gerst svo sleggjudómar eru óþarfir. (Heppni spilar líka stórt hlutverk í þessum leik.) Auk þess hefur þú ekki verið sérlega sannspár hingað til (þú sagðir t.d. að við kæmumst ekki upp úr útvarpskeppninni & að MR myndi vinna). Vildi líka koma því á framfæri að ég er kvenkyns, því mér líður eins & það hafi farið fram hjá sumum. :s

    Endilega haltu áfram að blogga um gettu betur & ég tek undir að því skuli fagna að herinn sé á förum. :D Kveðja Sigrún