GB

Ég rakst á liðsmenn úr GB-liðum MH og MS í Útvarpshúsinu í dag, þar sem ég var að plögga aðgerðirnar á Ingólfstorgi á laugardaginn kl. 15. Þeir skömmuðu mig fyrir að blogga ekki nóg um GB og létu mig lofa að skrifa færslu um keppni kvöldsins. Við það verð ég að standa:
MS-ingar áttu ekki góðan dag gegn Hamrahlíð. MH er hins vegar með hörkulið. Vona að þau vinni í ár og þar með verði stelpa í sigurliði í GB í fyrsta sinn í sögunni. Fyrst þarf liðið hins vegar að leggja Akureyringa, sem eru viðlíka sterkir. Spái MA sigri ef keppt verður fyrir norðan en MH ef viðureignin verður í borginni (já, heimavöllur getur skipt máli í GB).

Verslingar voru heppnir með drátt. Þeir eiga að vinna Borgarholt án mikilla vandræða. Ef ég hefði átt að styrkleikaraða liðunum í keppninni eftir fyrstu umferðina hefði ég sett Versló í 5.-6. sæti - en sömu sögu var að segja fyrir tveimur árum þegar Verslingar fóru alla leið. Þá uxu þeir milli umferða. Þeir eru líka lúsiðnir og fá hámarksárangur út úr sínum mannskap. Ekki verða hissa þótt Versló vinni MA í úrslitum - slík úrslit væru nánast endurtekning á því sem gerðist fyrir tveimur árum þegar Borghyltingar unnu MR og töldu að björninn væri unnin, til þess eins að tapa fyrir Verslingum…

Ein ráðlegging til dómarans að lokum:

Ekki byrja spurningar, sérstaklega ekki vísbendingaspurningar, á fæðingarstað eða -ári þess sem um er spurt. Öll sterku liðin í GB hafa í sínum fórum langa lista með fæðingar- og dánarárum frægs fólks og það er því ekkert afrek hjá þeim að þekkja menn á slíkum vísbendingum.
Þess utan rýrir það spurninguna að þrengja hana strax í byrjun í tíma og rúmi. Betra er að semja spurninguna þannig að í byrjun sé öll mannkynssagan eða Íslandssagan undir - en að svo þrengist hringurinn. Eftir að MH-ingarnir svöruðu Kjarvals-spurningunni í kvöld var keppnin dauð.

3 Responses to “GB”

  1. Óli Njáll Says:

    Ég tel það einungis óskhyggju hjá þér að mh eigi séns í þessa keppni. Tel að Akureyringar vinni þá sama hvort keppt er í bænum eða fyrir norðan. Akureyringarnir og Verzló er klárlega bestu liðin þetta árið og þau munu því mætast í úrslitum og það verður sennilega mjög skemmtileg viðureign.

    Sammála með Kjarval, sú spurning var fáránlega létt og tók alla spennu úr keppninni. Annars voru msingar hálfpartinn búnir að grafa sína eigin gröf með slökum hraðaspurningum og geta bara sjálfum sér um kennt.

  2. sigmar Says:

    Er nokkuð samansemmerki á milli bloggfalls um gettu betur og þess að MR datt úr keppni á dögunum? Megi sem flestir blogga sem mest um GB.

    mbk,

    sigmarg

  3. Snorri Says:

    Ég verð að vera sammála þér með vísbendingaspurningarnar, maður býst ekki við fæðingarstað/ári í fyrstu vísbendingu. Ég kvíði því að mæta MA því ég efast ekki um að þeir munu tæta í sig svipaðar spurningar og Kjarvals-spurninguna.