Archive for February, 2006

Allir góðir menn…

Friday, February 17th, 2006

…mæta á morgun, laugardag á Friðarpípuna, spurningakeppni SHA í Friðarhúsi sem hefst kl. 16.

Þrír spyrlar semja spurningarnar að þessu sinni. Þeir eru:

* Árni Hjartarson, sérfræðingur í halastjörnum.

* Steinþór Helgi Arnsteinsson, GB-sigurvegari 2005 og fyrrum bloggari.

* Þórður Sveinsson, krataleiðtogi og lögfræðingur.

Þetta verður ekki amalegt.

Trjábrjótar

Wednesday, February 15th, 2006

Krílríkur, hundur Steinríks í Ástríks-bókunum, varð alltaf miður sín og fór að hágráta þegar hann sá tré sem rifin höfðu verið upp með rótum. Þessi ástúð hans á trjám var meira að segja stórt atriði í einni Ástríks-bókinni, Ástríkur í Arnarnesinu - sem reyndar hefur ekki komið út á íslensku.

Ég er ekki alveg jafn viðkvæmur þegar kemur að því að sjá tré á hliðinni, en það var samt skringileg tilfinning að mæta í vinnuna og sjá háu grenitrén sem staðið hafa norðan við Minjasafnið liggja í einni hrúgu.

Trén þurftu að víkja vegna framkvæmdanna við hús Fornbílakúbbs Íslands sem nú eru loksins hafnar hér við hliðina á safninu. Ég gleðst við tilhugsunina að geta fylgst með gangi mála út um gluggann og séð eitthvað nýtt á hverjum degi. Frá því að ég var smápjakkur hef ég fátt vitað skemmtilegra en að fylgjast með húsum í byggingu. (Gerir það mig að vonum Vinstri græningja?)

Þeir eru hins vegar ekki öfundsverðir starfsmennirnir við uppgröftinn. Þar sem húsnæði Minjasafnsins var áður aðveitustöð, eru líklega fáir skikar á landinu með viðlíka fjölda af strengjum í jörðu. Eins og það sé ekki nóg, var braggahverfi á svæðinu á stríðsárunum með tilheyrandi lögnum, sem enginn veit hvar er að finna.

Annað hvort munu mennirnir þurfa að handpjakka stóran hluta af verkinu með skóflum eða þeir taka sénsinn og vonast til þess að klippa ekki út stóra hluta Reykjavíkur.

Búið ykkur undir reglulegar framvinduskýrslur á þessari síðu næstu mánuðina.

# # # # # # # # # # # # #

Luton missti unnin leik niður í 3:3 jafntefli gegn Cardiff í gærkvöld. Fúlt.

Magnaðar uppljóstranir

Tuesday, February 14th, 2006

Á forsíðu Blaðsins í dag er því slegið upp að stjórnmálaflokkar raki inn peningum og væru stórgróðafyrirtæki. Þ.e.a.s. ef þeir þyrftu ekki að reka kosningabaráttu með reglulegu millibili.

Þetta eru mikil vísindi.

Geri fastlega ráð fyrir að forsíðufréttin á morgun gangi út á að það væri stórgróðabissnes að reka Mæðrastyrksnefnd - ef maður þyrfti ekki að láta einhverja fátæklinga fá allan peninginn…

Kínahverfið

Sunday, February 12th, 2006

Pestarbælið á Mánagötunni er meða rólegasta móti um þessa helgi. Ólína er skárri í dag en í gær, en mun væntanlega rjúka aftur upp í hita með kvöldinu.

Steinunn er með hitavellu, en hún fer í skrall við nokkrar kommur - svo hún verður tæplega til stórræðanna í dag eða á morgun.

Frekar en að horfa á skíðagöngu skelltum við Kínahverfinu eftir Polanski í tækið. Það er, ásamt Þriðja manninum, uppáhaldsmyndin mín. Það eru fáar myndir sem ég hef séð oftar.

Öfugt við flesta unnendur Kínahverfisins, fannst mér framhaldsmyndin - The Two Jakes - bara nokkuð góð. Hef reyndar ekki séð hana lengi.

Rætt hafði verið um að gera trílógíu og gott ef það var ekki til handrit að þriðju myndinni, en dræmar viðtökur við The Two Jakes gerðu þau óform að engu.

# # # # # # # # # # # # #

Er að undirbúa vísindasögutíma morgundagsins. Reikna með að fjalla nokkuð um fuglaflensuna og hvað umfjöllun um hana segir okkur um vísindasamfélag samtímans og stöðu þess.

# # # # # # # # # # # # #

Góndi á Evróvisíon-lögin sem sndurtekin voru í gær í afar skringilegum sjónvarpsþætti.  Kortéri eftir þáttinn reyndi ég að rifja upp laglínurnar í huganum. Það var gjörsamlega útilokað. Ég gat sönglað viðlagið við lag Sylvíu Nóttar (æi - ekki fara í gegnum fallbeygingarumræðuna núna) og breimið í stráknum sem lítur út eins og Norðmaður. Hin lögin voru gjörsamlega óeftirminnileg.

Mamma lýsti annars lagi Sylvíu Nóttar nokkuð vel. Að hennar mati er það blanda af Evróvisíonlagi Páls Óskars annars vegar en Sókrates eftir Sverri Stormsker hins vegar. Held að þetta sé fjári góð lýsing.

3 töp

Saturday, February 11th, 2006

Hvimleiðir þessir laugardagar þar sem öll liðin manns tapa.

Luton steinlá, Hearts missti sinn leik niður í tap og FRAM féll út úr bikarkeppninni í handboltanum. Ekki horfði ég neitt á vetrarólympíuleikanna í dag, þrátt fyrir maraþonútsendingu Sjónvarpsins frá keppni í skíðaskotfimi - eða kannski einmitt vegna hennar.

Barnið er enn með háan hita, en hressist við hverja stikkpillu.

Steinunn er líka að leggjast í flensuna. Þetta er ekki burðugt ástand.

Ofninn

Friday, February 10th, 2006

Painter.jpgÞá er það opinbert: Leiðinlegasta starf í heimi er að mála ofna. Það er svo leiðinlegt að heilinn bælir niður minninguna um það að verki loknu, annars myndi maður aldrei hafast út í þetta helvíti aftur.

# # # # # # # # # # # # #

Barnið er með hátt í fjötutíu stiga hita og ég því að mestu heimavið í dag. Sé fram á rólega helgi, með snýtingum og gólfgöngum. Þá er gott að vetrarólympíuleikarnir eru að byrja. Væntanlega mun ég fylgjast mun stífar með keppni í skíðaskotfimi en til stóð.

# # # # # # # # # # # # #

Leikhús eftir máli er frábær sýning. Allir góðir menn ættu að kaupa sér miða.

Næsta leikhúsferð er fyrirhuguð í lok mánaðarins á lokasýningu Túskildingsóperunnar. Þetta verður kúltúrmisserið mikla.

Slappur í líffræði

Thursday, February 9th, 2006

Ég taldi mig alltaf þokkalegan í líffræði, amk. líffræði mannslíkamans. Sú var þó ekki raunin.

Eftir að verkirnir sem lýst var í síðustu færslu tóku að ágerast, fór ég á spítalann. Þar var ég búinn undir fregnir af sprungnum botnlanga og bráðaskurðaðgerðum, en fékk þær fréttir að botnlanginn væri hinumeginn í kviðnum.

Rannsókn á sýnum leiddi í ljós að ekki væri um sýkingu að ræða og með þukli og þreifingum strikuðu læknarnir ýmsa aðra möguleika út af listanum. Að lokum komust þeir að þeirri niðurstöðu að annað hvort sé ég með kviðslit eða tognun á kviðvegg. Ekki vissi ég að það væri hægt að togna á þessum stað, en í það minnsta er stefnan tekin á að láta þetta lagast af sjálfu sér - sem er nokkur skaði því ég var farinn að hlakka til að halda blaðamannafundi á sjúkrastofunni ber að ofan eins og Steingrímur Joð.

# # # # # # # # # # # # #

Leikhúsið í kvöld. Eldhús eftir máli í Þjóðleikhúsinu. Það verður eflaust bráðskemmtilegt. Vonandi verður Ólína þó upplitsdjarfari en í gær. Tanntakan gengur ekki átakalaust fyrir sig og í gær var hitinn kominn í 38,7 stig. Greyið litla.

# # # # # # # # # # # # #

FRAM lætur ekki að sér hæða í handboltanum. Efsta sætið og mótið rúmlega hálfnað. Hver hefði trúar þessu?

Botnlangakast?

Wednesday, February 8th, 2006

Mér er búið að vera illt í kviðnum í tvo daga, nokkurn veginn á þeim stað sem gagnfræðaskólalíffræðin kenndi mér að væri heimkynni botnlangans. Þegar við bætast allar læknamyndirnar í sjónvarpinu um fólk sem fær rauðagallssýkingar eða hvað þetta nú heitir alltsaman og fer að spýja blóði um leið og spítalann er komið, er ekki laust við að maður verði dálítið smeykur.

Í dag var ég kominn á fremsta hlunn með að panta mér tíma hjá lækni. Hið raunverulega áhyggjuefni var þó hvort ég gæti spilað fótbolta í kvöld. Þriðjudagsboltinn er nefnilega ein af helgistundum vikunnar.

Ég reyndist leikfær og þarf þá ekki að hugsa um þetta skringilega líffæri næstu vikuna - eða í það minnsta ekki óttast að það ræni mig fótboltasparki.

Og þetta reyndist svo sannarlega ekki tími sem ég hefði viljað missa af! Í þau ellefu ár sem þessi hópur (í mismunandi myndum þó) hefur spilað saman, hefur það kannski gerst 2-3 að leikir færu 10:0. Það gerðist í kvöld. Ég, Torfi, Hrafnkell, Kolbeinn og Freyr vorum saman í liði (sagnfróðu vinstri græningjarnir) og steinlágum í fyrsta leik, 10:3. Eitthvað var stungið upp á að skipta aftur, en þessara ófara varð að hefna og viðsnúningurinn var algjör.

Í lokaleiknum hringdi bjallan rétt eftir að okkur tókst að jafna 7:7.

Er ég snáðinn í snjónum að monta mig af sigri í fitubollubolta á bloggsíðunni minni? Það getur vel verið - mér er alveg sama.

# # # # # # # # # # # # #

Í dag fékk Minjasafnið gefins háfjallasól. Þar með á safnið þrjá slíka gripi, hvern öðrum flottari. Gefandinn uppástendur að hægt sé að stinga tækinu í samband og það svínvirki. Næst þegar ég finn þörf fyrir að anda að mér ósoni læt ég kannski reyna á það…

Háfjallasólir eru svo skemmtilegar að ég myndi alveg þiggja fleiri.

Vögguvísa

Tuesday, February 7th, 2006

Krúttlegt að landsmenn skuli enn í dag geta æst sig svona upp út af söngvakeppni sjónvarpsstöðva. (Hvers vegna halda menn því ekki betur til haga að þetta sé keppni sjónvarpsstöðva en ekki landa eða flytjenda - væri ekki fyndið ef Danmarks Radio væri skráð sem sigurvegari í metaskrám keppninnar en ekki Olsen-bræður?)

Kristján Hreinsson er búinn að gulltrygga Sylvíu Nótt sigurinn með því að sjá til þess að hún sé í umræðunni á hverjum einasta degi. Það er bara fínt.

Hins vegar rifjar þetta fár upp óljósa minningu um eina fyrstu söngvakeppnina hér heima - líklega þá aðra í röðinni, 1987. Þá átti Ólafur Haukur Símonarson lagið “Vögguvísu” í keppninni (þ.e. gerði textann). Lagið varð mjög vinsælt og stefndi í sigur þess í forkeppninni. Einhverjir fettu fingur út í að lagið væri ekki frumsamið fyrir söngvakeppnina, heldur hefði það verið sungið á sviði hjá Leikfélagi Akureyrar í sýningunni “Kötturinn fer sínar eigin leiðir”.

Samkvæmt reglum keppninnar mátti þetta raunar. Það var bara hljóðritun og sýning í sjónvarpi sem var bönnuð. En þá kom í ljós að í tíufréttatíma Sjónvarps hafði verið sagt frá leiksýningunni og spilað úr laginu.

Ólafur Haukur brást illur við og benti á að um heimildarlausan flutning hefði verið að ræða og að Sjónvarpið hefði ekki greitt fyrir sýningarréttinn. Eftir nokkurt stapp varð úr að lagið fékk að keppa - ef ég man rétt. En skaðinn var skeður. Íslendingar voru auðvitað vissir um að sigra í Söngvakeppninni og ætluðu sko ekki að láta hanka sig á að brjóta reglurnar og taka sénsinn á að vera sviptir tiltlinum… Lagið átti því ekki möguleika í kosningunni.

Annars kalla ég eftir því að Eiríkur Knudsson bloggi um söngvakeppnina í ár. Menn hljóta að bíða eftir áliti hans á málinu, enda mesta Júróvisíon-nörd á Íslandi undir þrítugu.

Skýringin fundin

Monday, February 6th, 2006

020206_4.jpgÓlína hefur slefað óvenjumikið í dag. Raunar svo mikið að bolurinn hennar varð gegnsósa. Áðan, þegar Steinunn var að svæfa barnið kom skýringin:

Fyrsta tönnin er að gæjast upp úr neðri skoltinum. Ekki seinna vænna kannski - barnið orðið 9 og 1/2 mánaðar gamalt.

Annars var nú alltaf upphaflega planið að láta vellríkt skyldmenni finna fyrstu tönnina og fá skrilljónir í tannfé. Alltaf þarf maður að klúðra svona plottum.