Palme

Ég er ekki viss um að ég sé að kaupa þessar nýjustu fréttir af Palme-málinu. Samkvæmt þeim var forsætisráðherrann skotinn í misgripum af smákrimma.

Nú geri ég mér grein fyrir að fólk á misauðvelt með að þekkja andlit - en fjandakornið, sá sem rekst á forsætisráðherra lands síns á gangi hugsar varla: “Þessi er eitthvað kunnuglegur - þá hlýtur hann að vera dílerinn sem ég ætlaði að skjóta!”

Eða hvað veit ég?

# # # # # # # # # # # # #

Ekki fengum við Edinborgarslag í úrslitum skoska bikarsins. Liðin mætast í undanúrslitunum en í hinum leiknum eigast við Gretna annars vegar en Dundee eða Hamilton hins vegar. Þótt Gretna sé deild fyrir neðan Dundee og Hamilton, telst liðið sigurstranglegra í þeirri viðureign og því góðar líkur á að lið úr þriðju efstu deild frá 3.000 manna bæ komist í úrslit bikarkeppninnar. Magnað!

9 Responses to “Palme”

  1. BD Says:

    Þetta er a.m.k. kátleg kenning.

  2. Nanna Says:

    Því ekki það? Ef maður er á Atlavíkurhátíðinni og sér kunnuglegt, skeggjað andlit, þá dettur manni kannski ekki Ringó Starr í hug, frekar smíðakennarinn á Hallormsstað eða eitthvað. Og býður honum sjúss.

  3. Arngrímur Says:

    Já, eða skýtur hann.

  4. Snorri Says:

    Það væri mikið afrek hjá Gretnu að komast í úrslitaleikinn. Gretna er á sínu fyrsta ári í 3. deild eftir að hafa tekið þá fjórðu með trompi í fyrra og verið það lið sem skoraði mest af mörkum per leik í Evrópu.

  5. Birkir Says:

    Þessi kenning um að Palme hafi verið skotinn í misgripum fyrir fíkniefnadíler er reyndar ekki ný, en eins og ég hef bent á, þá eru þessar heimildamyndir SVT vel þess virði að horfa á.

  6. Friðrik Says:

    Nei, kenningin er ekki ný, á þessum tíma var eiturlyfjasali í Stokkhólmi sem líktist Palme mjög.

  7. Lopes Says:

    En var Palme ekki einfaldlega eiturlyfjasali ?? Hafði að minnsta kosti mjög góð sambönd í Gullna Þríhyrningnum

  8. bv Says:

    æji Stefán, óttalega er þetta eitthvað heimskulegt hjá þér.
    Ísland í bítið, eða sirka stjúpid þáttur, gerðu könnun meðal menntaskólanema í að þekkja atvinnuidjóta Íslands.
    Þeim bestu í þessu “gáfumannaliði” íslensku þjóðarinnar gekk álíka vel og þessum mest hataða dópista Svíþjóðar.
    Get a grip og athugaðu að við erum ekki öll í þínum “hef sko ofboðslega mikinn áhuga á pólitík” bransa.
    Sum okkar vinna við annað, sum okkar vinna ekki neitt og shæt!, getum bara ekki þóst hafa áhuga því sem þú kallar pólitík.