Nostradamus og ljós friðar

Í fréttunum í gær var rætt við Yoko Ono og Stefán Jón Hafstein. Listakonan ætlar víst að gefa Íslendingum risastórt ljóstyppi sem á að sprauta friði yfir heimsbyggðina. Sérstaða Íslands sem friðsæls lands mun sömuleiðis gera það að öflugum boðbera friðar - friðarljósið mun sjást frá Íslandi. Jafnframt verður stofnað til sérstakra friðarverðlauna.

Stefán Jón var ekki síður spenntur. Hann telur ljóstyppið verða einkennistákn Reykjavíkur, sem kallast muni á við tónlistarhúsið á hafnarbakkanum. Borgarfulltrúinn minnti á að Nostradamus sjálfur hafi talað um ljóssúlu friðar sem koma myndi frá Íslandi…

…á þessum tímapunkti rifjaðist upp fyrir mér að ég hefði heyrt þetta einhversstaðar áður:

Alþjóðleg friðarverðlaun, friðarljós frá Íslandi, miðstöð friðar í heiminum, spádómar Nostradamusar…

…hér er í raun verið að lýsa þeirri sýn sem Ástþór Magnússon setti fram í kosningabaráttu sinni 1996 og 1994.

Menn hefðu betur sleppt því að gera svona mikið grín af karlinum. Í það minnsta er Stefán Jón Hafstein genginn til liðs við hann.

9 Responses to “Nostradamus og ljós friðar”

  1. Prófarkatuðurinn Says:

    Hér á að standa 2004 en ekki 1994, er það ekki?

  2. Prófarkatuðarinn Says:

    Og hér átti að standa -arinn en ekki -urinn.

  3. Steinþór Says:

    Er hér ekki líka kominn fullkominn vettavangur fyrir ykkur herstöðvarandstæðinga til þess að láta stjórnvöld ganga alla leið?

  4. Unnur María Says:

    Hnéhnjéhnjé! :)

  5. Þórður Sveinsson Says:

    Ísland friðsælt land? Pfiff. Yoko fylgist greinilega ekki með fréttum.

  6. djassmunkurinn Says:

    Grín AÐ..

  7. Þórhildur Says:

    Finnst þetta vera í hæsta máta hlægilegt og í raun sorlegt. Ekki nóg með að Yoko Ono sé enn að selja sig á kostnað minngunnar um Lennon. Heldur hræsnin að benda á Ísland sem uppsprettu friðar. Síðan hvenær stuðlaði það að friði að hýsa erlent herlið?

  8. anna Says:

    Við skulum bara þakka fyrir að Stefán Jón Hafstein vildi ekki setja ljóstyppið við Elliðaárnar mér og Stefáni Pálssyni til armæðu.

  9. Jói Says:

    Væri ekki nær lagi að lýsa upp Smáralindina og reisa hana upp á rönd?!