Fjarri góðu gamni

Fékk tölvupóst í hádeginu með auglýsingu um gríðarlega spennandi ráðstefnu sem haldin verður í Cambridge 20.-21. mars, með titilinn: Kuhn and the Sociology of Scientific Knowledge. Dagskráin er mögnuð. Allar helstu kanónurnar úr SSK-geiranum í Bretlandi. Edinborgarskólinn mættur eins og hann leggur sig!

Mig blóðlangar, en sé enga möguleika á að fara.

En þeir lesendur þessarar síðu sem búa í Bretlandi og hafa áhuga á vísindaheimspeki VERÐA að mæta!

# # # # # # # # # # # # #

Eitt helsta umræðuefnið á kaffistofum landsins er lóðaútboðið á Úlfarsfellslandinu. Auðvitað er þetta mál klúður. Það þýðir ekki að þræta fyrir það.

Að mínu mati hefur borgin bara eina leið út úr þessu leiðindamáli - að kyngja þessari niðurstöðu, en drífa sig jafnframt í að bjóða út næsta og þarnæsta áfanga - með skýrari reglum. Ekki að láta nægja einhverjar 450 íbúðir í viðbót, heldur fara strax í 900 íbúðir. Ef til vill væri ekki hægt að afhenda þær strax, en það skiptir í sjálfu sér engu máli. Afhending gæti verið 2007 - en ekki drolla með útboðið.

Comments are closed.