Dóttir mín, músliminn
Hjónarúmið á Mánagötunni snýr í austur og vestur. Það er engin útpæld hugmyndafræði á bak við þessa legu, heldur mótast það af plássi í íbúðinni, staðsetningu ofna o.þ.h.
Ólína sefur uppí hjá okkur. Hún hefur gert það frá upphafi og við erum ekki enn farin að hafa okkur í að venja hana af því. (Ég veit, líklega verður þetta þess valdandi að hún fæst ekki til að sofa í eigin rúmi fyrir en á táningsaldri…)
Í sjálfu sér er rúmið hæglega nógu stórt fyrir þrjá. Vandinn er hins vegar að Ólína trúir ekki á að liggja í austur og vestur, heldur er snýr hún sér alltaf í sömu átt - sem mér reiknast til að sé um það bil áttin til Mekka. Eina rökrétta skýringin á þessu er að barnið sé múslimi.

February 22nd, 2006 at 11:40
Kannski er hún segulmögnuð.
February 22nd, 2006 at 12:08
Eftir að hafa búið víða með börn held ég að það sé í eðli barna að sofa þvert á stefnu foreldra sinna hvernig sem rúmið snýr!
February 22nd, 2006 at 14:10
Þú segir nokkuð, dóttir mín hefur þessa tilhneigingu líka. Annars var ég rétt í þessu að fá lánað á bókasafni merkisritið “Sofðu barnið blíða. Dr. Estivill kennir ungum börnum að sofa” í þeirri von að barnið venjist á að sofa í sínu rúmi í tæka tíð áður en hún flytur að heiman. Læt þig vita ef gagn er að ráðum doktorsins. Ekki tókst mér nú að venja elstu dóttur mína á kopp á einum degi þrátt fyrir lestur þar að lútandi bókar fyrir um þrettán árum síðan. Sú er núna komin hátt á fimmtánda ár (dóttirin, veit ekki með koppabókina) og löngu hætt með bleyju og sefur í eigin rúmi þannig að þetta hefst víst einhvern veginn á endanum hvort sem bækurnar hjálpa eða ekki.
February 22nd, 2006 at 16:21
Þessu tengt en þó ótengt: ætli það sé tenging á milli bænaátta múslima og þess siðar kristinna manna að grafa fólk þannig að það snúi í austur/vestur? Og ætli Jón Hrak hafi þá verið svona ókjur í gröfinni vegna þess að það var búið að gera hann að múslima?
February 23rd, 2006 at 21:13
Þetta er athyglisverð pæling. Eins og allir þekkja snúa múslimar til Mekka þegar þeir biðja. Það þýðir að sú átt sem þú snýrð í veltur á hvar þú ert staddur í heiminum. Indverskir múslimar snúa t.d. í vestur þegar þeir biðja á meðan bandarískir múslimar snúa í austur, rússneskir (a.m.k. sumir) í suður og sómalskir í norður. Þegar kristið fólk er grafið á höfuð þess hins vegar alltaf að snúa til vesturs og iljarnar að vísa í austur, hvar sem það er statt í veröldinni. Þetta helgast af því að í kristinni trú er gert ráð fyrir að Kristur komi á efsta degi úr austurátt - sólarupprisuáttinni og því rísa allir hinir trúuðu upp andspænis honum. Þessu fylgja augljóslega ýmis tæknileg vandamál sem ég hvorki get né nenni að leysa hér. Að sama skapi snúa kirkjur yfirleitt í austur-vestur þannig að altarið eða kórinn eru í austasta og innsta hlutanum.
February 24th, 2006 at 13:45
Öll börn snúa þversum í rúmi með foreldrunum, og snúa oftar en ekki þannig að þau hafa hausinn mömmu megin en sparka í pabbann.
Systurdóttur minni tókst einusinni að sparka mér fram úr tvíbreiðum svefnsófa þegar ég var að passa hana 4 ára gamla.