Hver á að biðja afsökunar?
Skopmyndadeilan mikla er komin í þann farveg að líklega skiptir engu máli hvað dönsku ritstjórarnir eða ráðamenn í Kaupmannahöfn segja eða gera - þeim verður ekki fyrirgefið úr þessu. Líklega geta danska ríkisstjórnin ekki gert annað en að bíða og vona að moldviðrið lægi með tímanum.
Danska forsætisráðherranum er vorkunn. Hann er settur í þá stöðu að vera krafinn um afsökunarbeiðni vegna verka dagblaðs sem hann hefur ekkert yfir að segja.
Fyrir nokkrum misserum gáfum við Valur Gunnlaugsson, erki-FRAMari, út blað sem dreift var á mörg heimili í Vesturbænum. Blaðið var skilgreint sem málgagn FRAMara í Vesturbæ og við Valur rækilega skráðir fyrir því sem ritstjórar og ábyrgðarmenn.
Eitthvað fór framtakið í taugarnar á svart-hvítum og bárust nokkrar kvartanir, meðal annars til KSÍ. Forystumenn í KR beittu miklum þrýstingi til að fá yfirlýsingu frá FRAM, þar sem félagið bæðist formlega afsökunar á útgáfunni.
Stjórnarmenn í FRAM bentu á að blaðið væri gefið út af nafngreindum einstaklingum, sem ekki gegndu neinum trúnaðarstörfum fyrir FRAM og að fráleitt væri að ætlast til þess að félagið bæri ábyrgð á skrifum stuðningsmanna úti í bæ.
Þessar skýringar dugðu hins vegar ekki skarpgreindum íþróttafréttamanni Stöðvar 2 sem tók málið upp í sjónvarpsfréttunum og kallaði eftir einhverskonar afsökunarbeiðni eða yfirlýsingu frá FRAM.
Einhverra hluta vegna sá hins vegar enginn sig knúinn til að hringja í okkur Val eða krefja okkur um afsökunarbeiðnir - enda engin ástæða til slíks.

February 1st, 2006 at 15:35
Afsökun og ekki afsökun. Rétt einsog Davíð og félagar hafa haft miklir skoðanir á blaðaútgáfu Dagsbrúnar/365 fjölmiðla, getur Rasmussen haft “skoðun” á málinu og “harmað” birtinguna. Hann getur auðvitað ekki beðist afsökunar, nema grípa til einhverra aðgerða, t.d. banna myndir af spámanninum í Danmörku. Auðvitað gerist það aldrei (inshallah) en þetta er nokkuð íronísk staða, að standa vörð um mál- og prentfrelsið og “afsaka” það um leið. Blaðið hefur svosem bakkað, eftir að hafa neitað að biðjast afsökunar, en spurningin er hvort réði meiru þar um, afleiðingarnar (fyrir m.a. danska mjólkuriðnaðinn) eða hótanir íslamista.
Enn önnur hlið á málinu og athyglisverð, er að umræddar myndir birtust fyrir FJÓRUM mánuðum síðan. Ég satt að segja efast um að ef kannað hefði verið meðal múslima í Danmörku fyrir mánuði síðan hvort þeir hafi móðgast við birtinguna, hefði algengasta svarið verið “hvad for noget?”
Það skuggalega við þetta er samsvörunin við Rushdie málið á sínum tíma, þegar nær enginn vissi nákvæmlega um hvað málið snerist en múgæsingin varð algjör. Þar komum við að öðru einkenni Arabaheimsins (sérstaklega), að svona smásmuguleg mál eru notuð til að kynda undir múgæsingu, sem um leið er liðin af stjórnvöldum til að leyfa lýðnum að “pústa” svolítið. Þetta er þannig angi af valdaleik milli trúarleiðtoga og stjórnvalda. Stjórnvöld nota síðan svipaðan leik til að hylma yfir skandala, yfirleitt með að ala á Ameríku- eða Ísraelshatri.
Þú sérð ekki menn í East End eða Highgate brennandi danska fánann. Kreddufígúrur einsog “Sir” Iqbal geta baulað eitthvað um andíslamisma en almenningur hefur meiri áhyggjur af öðrum hlutum en skopteikningum í Jótlandspóstinum.
February 1st, 2006 at 16:44
Ekki man ég eftir að hafa fengið blaðið góða. Mitt hverfi er í 101 og öðru veðurkerfi en Vesturbærinn, en telst þó óneitanlega vera KR-hverfi. Hingað koma þó iðulega Valsmenn í sölu- og söfnunarerindum og er vel tekið þótt sjaldan sé keypt. Við erum svo með skemmtilegt Fram-dagatal uppivið á áberandi stað. Best af öllu er að við feðgar höldum með FH þrátt fyrir að pjakkur æfi með KR.
En að heita Valur, vera FRAMari og búa í Vesturbæ - er það ekki einum of…
February 1st, 2006 at 20:07
Merkilegt nokk,
February 1st, 2006 at 21:21
Jyllandsposten er raunar óopinbert málgagn forsætisráðherrans og hann hefur leynt og ljóst lagt blessun sína yfir þessar myndbirtingar undanfarna mánuði. Það er líklega meginástæða þess að málið dó ekki fyrir nokkrum mánuðum heldur hefur það þróast áfram.
Auðvitað munu svo einræðisstjórnir í Arabalöndum misnota þetta mál og skora nokkur ódýr stig til að sýna fram á trúrækni sína. Í leiðinni geta þau svo haldið áfram að ofsækja „islamska bókstafstrúarmenn“ og „hryðjuverkamenn“ en það er allir þeir heimamenn kallaðir sem mótmæla ástandi mannréttinda í Sádí-Arabíu.
February 2nd, 2006 at 02:35
Ég legg til að AlJezzra verði þurkkuð út úr gerfihnöttum AZTRA, & við förum allir að láta einz & þezzi minniháttar minnihluti í zkikkjum með húfur zéu bara ekki til.
Það er miklu meira virði að borða hrízgrjón, enda eru Kínverjar 20% af hnattverjum.
Ljótt að kenna okkur Frömmurum um allt..
En, taba fyrir Bóa litla ?
‘-}
Z.
February 2nd, 2006 at 09:26
Málið er einfalt ; Okkur skandinövum er hótað lífláti af múslimum fyrir myndbirtingar danskra (og evrópskra) dagblaða.
Eflaust hefðum við gert það sama gegn múslimum fyrir nokkur hundruð árum fyrir svipaðar sakir. Þær virðast litlar í augum okkar trúleysingja eða kristinna en eru hreinasta guðlast í þeirra augum. Sýnir þetta ekki bara hversu íslamstrú er ung, ný (og vanþróuð!) trúarbrögð. Kristni er ca 600 árum eldri og ef við förum 600 ár aftur í tímann, hvað sjáum við þá….. við vorum að brenna fólk fyrir uppgerðar skoðanir í hafni Jesú Krists. Hver veit hvernig þetta endar ….
February 2nd, 2006 at 14:00
Þetta mál sýnir þann stóra munn sem er á menningu og þroska araba og vesturlandabúa.
Norðurlöndin hafa mátt þola að fá yfir sig stóran straum af innflytjenda frá arabalöndunum
og látið það yfir sig ganga í nafni manngæsku og náungakærleik. En því miður voru þau bláeygð í byrjun og ath.ekki hvaða fólk það var sem var að koma og hvort þetta fólk var innstillt á að laga sig að okkar hefðum og venjum sem hlýtur að vera sjálfsögð krafa að gera til innflytjenda. Núna má það vera orðið hverjum manni ljóst að arabar virðast ekki hafa nokkurn áhuga á að aðlagast heldur hafa leynt og ljóst unnið gegn okkar hagsmunum og gildum með ofsa sínum og öfgum. Með þessari taktík hafa þeir gert marga líf hrædda við sig og þá hræðslu nota þeir leynt og ljóst til að kúa fram breytingar í sína þágu.
Ég meina að við eigum ekki að laga okkur að þeim heldur halda fast við okkar hefðir og vísa þeim úr landi sem ekki sjá út til að ætla að aðlagast Íslensku samfélagi. Þannig komum við í veg fyrir að við fáum hér hóp innflytjenda sem aðeins tekur en ekkert gefur eins og raunin er í Noregi og Danmörk.