Archive for January, 2006

Mjóifjörður

Saturday, January 21st, 2006

Fyrir tveimur árum fórum við Steinunn um Austurland ásamt mömmu og pabba. Einhver eftirminnilegasti hluti þeirrar ferðar var þegar við sigldum ásamt tengdapabba, Helgu og Magneu til Mjóafjarðar. Þar skoðuðum við meðal annars laxeldiskvíarnar í firðinum. Það var glæsileg sjón og útlit fyrir enn frekari uppbyggingu á næstu árum.

Nú er útlit fyrir að draumurinn sé úti. Skýringin er víst sambland af óhagstæðu gengi, háu raforkuverði og einhverjum óskilgreindum “ruðningsáhrifum” - sem þýðir á mannamáli að fyrirtæki sem ekki eru álbræðsla eða þjónustugrein við stóriðjuuppbygginguna fara á hausinn.

# # # # # # # # # # # # #

Luton mætir QPR á eftir. Ég þekki tvo QPR-menn. Það er meira en flestir gera.

Sjálfur fylgist ég ekki með leiknum, hvorki á netinu eða í útvarpinu, því ég þarf að mæta tímanlega í Friðarhúsið til að undirbúa spurningakeppnina sem þar hefst kl. 16. Allir velkomnir.

Vín og skel

Friday, January 20th, 2006

Í gær fórum við Steinunn á veitingastaðinn Vín og skel, sem starfræktur er í bakhúsi fyrir aftan húsið Von á Laugaveginum. Kann einhver skýringu á því sérkennilega húsanafni?

Við átum afragðshumar og drukkum suður-afrískt vín með. Merkilegt hvað það ætlar að taka langan tíma að læra að núna er í lagi að kaupa suður-afrískar vörur eftir viðskiptabannið forðum tíð…

Eina sem hægt er að kvarta yfir er að matseðillinn er krítaður á stóra töflu sem erfitt er að rýna í. Það er t.d. ekki auðvelt að velja vín út frá slíkum lista.

Ekki ódýrasti staðurinn í borginni, en óhætt að mæla með honum.

# # # # # # # # # # # # #

Vegna humarátsins missti ég af tveimur seinni viðureignum gærkvöldsins í GB. MK og MA virðast ekki hafa staðið fyllilega undir væntingum, en munu örugglega braggast milli umferða. Þau mætast reyndar í stórleik 16-liða úrslita og líklega einu viðureigninni þar sem úrslitin eru ekki nokkurn veginn ráðin fyrirfram.

Eitt verð ég þó að gagnrýna hjá mínum gömlu félögum í útvarpinu. Það er sú regla að ef keppandi segir pass, sé ekki hægt að skjóta inn réttu svari áður en byrjað sé á næstu spurningu.

Þetta er breyting á því sem áður var. Gamla reglan var sú að pass teldist EKKI vera svar, heldur beiðni um að fá næstu spurningu, ef keppandi náði að skjóta inn réttu svari ÁÐUR en spyrill byrjaði á næstu spurningu þá fékkst stig. Sama gilti ef svarað var á sama tíma og annar liðsmaður sagði pass.

Á sama hátt hefur sá háttur verið hafður á síðustu árin að ef keppandi svaraði rangt en félagi hans náði að leiðrétta svarið áður en spyrill sagði “rangt”, þá ýmist gilti rétta svarið eða spyrillinn spurði: “hvert er svarið?”

Með öðrum orðum: réttu svörin voru látin njóta vafans. (Ekki ósvipað og í fótboltanum þar sem sóknarmaðurinn er látinn njóta vafans í dómgæslunni.)

Núverandi reglur ganga í hina áttina, þar sem röngu svörin eða pössin eru látin hafa forgang. Það þýðir lægra stigaskor - og það sem meira máli skiptir, eykur líkur á að vafaatriði eða deilumál komi upp.

Þetta kerfi hefur áður verið notað í Gettu betur, til dæmis árið 1995. Það reyndist ekki vel þá, enda gátu þá komið upp deilur um það hvort rétt svar eða pass hefðu komið á undan þegar liðsmenn hrópuðu hver ofan í annan.

Í ljósi þessarar slæmu reynslu er ég mjög undrandi að ákveðið hafi verið að breyta þessum reglum. Ég myndi hvetja Önnu Kristínu dómara, Andrés Indriðason eða stýrihóp framhaldsskólanna að íhuga alvarlega að breyta þessu - ef ekki strax fyrir næstu umferð, þá áður en að sjónvarpskeppninni kemur.

plögg

Thursday, January 19th, 2006

pipan.jpg

Kjaradómsmálið leyst

Thursday, January 19th, 2006

Alveg er það magnað hversu lengi mönnum ætlar að takast að velta sér upp úr þessum kjaradómi. Í hverjum fréttatíma lýsa ráðamenn og aðrir málsaðilar því hvað málið sé flókið - að erfitt sé að nema dóminn úr gildi án þess að fjandinn verði laus.

Í mínum huga er þetta ekkert mál. Ríkisstjórnin getur bara snúið sér eins í þessu máli og þegar kom að því að svíkja öryrkjana.

Fjármálaráðuneytið myndi einfaldlega sleppa því að greiða þessar launahækkanir að sumu eða öllu leyti. Því næst myndi ráðuneytið senda frá sér yfirlýsingu þess efnis að staðið hafi verið að fullu við dóminn. Þegar embættismennirnir koma svo með launaseðlana og tuða um svik og vangreiðslur, þá svarar ríkisstjórnin bara að hún sé búin að borga andskotans nógu mikið í málaflokkinn og sé því bara víst búin að standa við sitt. Ef kvabbararnir láta sér enn ekki segjast, þá er lokaúrræðið að tala um hvað Jón Kristjánsson sé góður kall með hvolpsaugu og spyrja hvort menn ætli virkilega að kalla hann ósannindamann?

Málið leyst!

GB, þriðja kvöldið

Wednesday, January 18th, 2006

RadioHlustaði á þriðja keppniskvöldið í Gettu betur. Stigaskorið er sem fyrr herfilega lágt. Að hluta til vegna þess að liðin eru ekki með sterkasta móti, en að hluta til vegna þyngdarstigsins.

Mín ráðlegging til spurningahöfunda er þessi: tryggið að af fyrstu 5-6 spurningunum séu þrjár sem pottþétt er að liðin geta svarað. Það léttir mikilli pressu af þeim og fyrir vikið ná þau að sýna sitt rétta andlit.

Sömuleiðis er ekkert að því að skella nokkrum já/nei-spurningum eða spurningum með þremur valkostum inn í hraðann (Hversu gamall er hr. x: 40, 45 eða 50 ára?) Slíkar spurningar gera það að verkum að jafnvel slökustu lið giska ef ekki vill betur - það getur brotið upp “pass”-rútínuna sem hægt er að festast í. Lið sem er búið að segja þrisvar sinnum í röð “pass”, mun líklega halda því áfram.

Spurningahöfundur verður helst að tryggja að lið geti varla klúðrað meira en fimm spurningum í röð. Sjötta hver spurning verður að vera skítlétt. Annars byrjar öllum að líða illa.

Það er hins vegar ekki hægt að skella allri ábyrgðinni af þessu lága skori á dómarann. Liðin bera mikla ábyrgð. Stundum eru spurningakeppnir léttar, þessi er þung - þá verða menn að haga sér í samræmi við það.

Í ljósi þess hversu strembnar hraðaspurningarnar eru í ár, þá eru bara bestu og æfðustu liðin sem græða á að passa hratt. MR, MH, MS, MK og Versló falla væntanlega öll í þann flokk - en ÖLL hin liðin eiga að fara sér hægar. Þetta er einfalt reikningsdæmi: lið sem passar hratt, mun alltaf missa 1-3 stig sem það hefði átt að ná að öðru óbreyttu. Með því að flýta sér getur liðið hins vegar komist yfir þremur spurningum meira. Þar sem miðlungsliðin eru ekki að svara nema þriðjungi spurninganna rétt - er þetta séns sem getur augljóslega ekki borgað sig fyrir þau að taka. Öll liðin sem kepptu í kvöld hefðu grætt á að fara hægar í hraðanum.

Mér finnst ekkert sigurliðanna í kvöld (Suðurnes, Garðabær og Sauðárkrókur) eiga sérstakt erindi í sjónvarpskeppnina, þótt öll þeirra gætu komist þangað ef þau eru heppin með drátt. Sennilega eru svona sjö sjónvarpstæk lið með í keppninni í ár. Ef einhver þeirra dragast saman í næstu umferð mun bara fjölga pínlegu viðureignunum í sjónvarpinu. Mér finnst ekkert krúttlegt eða rómantískt við að sjá lið í sjónvarpi sem þangað hefur ekkert að gera. Það er bara óþægilegt fyrir alla aðila.

Á morgun verða þrjár viðureignir. Fyrst keppa Laugar og Húsavík - annað árið í röð. Laugalimir höfðu samband við mig um daginn og betluðu út úr mér gamlar spurningar sem notaðar voru í æfingakeppni við Egilsstaði. Mér skilst að hvor skólinn hafi unnið sína keppnina, þannig að ég býst við Laugamönnum nokkuð sterkum og spái þeim sigri.

Selfyssingar mæta Iðnskólanum í Hafnarfirði í annarri viðureigninni. Hafnfirðingar hafa aldrei unnið viðureign í sögu sinni í GB. Í fyrra töpuðu þeir með bara einu stigi - sem var langbesti árangur skólans. Í ljósi þessa vona ég heitt og innilega að lið þeirra standi sig í stykkinu og vinni frækinn sigur. Ég er samt ekki bjartsýnn. Ætli Selfoss vinni þetta ekki vandkvæðalítið.

Að lokum er stórveldaslagur tveggja sterkustu skólanna sem aldrei hafa hampað Hljóðnemanum. Flensborg og MH eiga bæði nokkur töp í úrslitaleikjum að baki, en aldrei farið alla leið.

Ég er mjög spenntur að heyra hvað býr í MH-liðinu. Þótt ég hafi ekkert heyrt um styrkleika þeirra, gerir maður alltaf ráð fyrir öflugu liði þaðan. Ef liðið verður skemmtilegt og fjörlegt, er ég alvarlega að spá í að halda með MH í ár - Hamrahlíð á svo innilega skilið að vinna sigur í keppninni. Skilyrðið frá minni hálfu er þó að liðið verði líflegt og ekki möglunargjarnt.

MH mun vinna Flensborg. Það held ég að flestir séu sammála um. Stóra spurningin er hins vegar hvort Sævar - nemandi okkar Sverris í vísindasögunámskeiðinu - hafi þjálfað lærisveina sína svo vel að þeir nái að bæta sautján stig Hraðbrautarmanna og komist þannig áfram sem stigahátt taplið.

Persónulega er ég ekki alltof bjartsýnn fyrir hönd Flensborgar - því sterk lið eins og MH skila fáum spurningum yfir til andstæðinganna í víxlspurningum. Þó má ekki útiloka að Anna Kristín fari á taugum vegna gagnrýni á of þungar spurningar og létti þær hressilega á lokasprettinum. Slíkt væri vitaskuld súrt í broti fyrir Hraðbraut, en alls ekki án fordæma.

# # # # # # # # # # # # #

Bloggfærslur mínar um Gettu betur (sem ég veit að fara ósegjanlega í taugarnar á sumum lesendum þessarar síðu) hafa væntanlega gert það að verkum að flestir keppendur og þjálfarar lesa bloggið mitt á hverjum degi um þessar mundir. Það er með ráðum gert.

Nú get ég nefnilega notað tækifærið og plöggað Friðarpípuna - pöbbökvissið í Friðarhúsi á laugardaginn kemur kl. 16. Þar eru allir velkomnir að mæta og spreyta sig á heilum ÞREMUR spurningakeppnum. Umsjónarmenn þeirra verða: Kristinn Pétursson, Úlfur Einarsson og Freyr Rögnvaldsson - allt kunnir spurninganirðir.

Mættu eða vertu ferningur!

GB

Tuesday, January 17th, 2006

Eins og spáð var, hlustuðum við ekkert á annað keppniskvöldið af GB í gær. Jón Knútur sat hér lengst fram á nótt og það var glatt á hjalla. Hann er góður gestur og kom færandi hendi - með fyrstu plötu Echo & the bunnyman, en ég var einmitt kominn á fremsta hlunn með að kaupa hana á dögunum.

Sé að úrslitin voru eins og búast mátti við. MR slátraði Breiðhyltingum og Borghyltingar unnu sigur, en með stigatölu sem bendir til að liðið þurfi hagstæðan drátt til að sleppa í sjónvarpið. Kvennaskólinn marði sigur á Vestmannaeyjum en verður væntanlega draumaandstæðingur allra hinna liðanna í næstu umferð.

Hið lága stigaskor í keppninni það sem af er hlýtur að vera aðstandendum hennar áhyggjuefni. Þau tvö ár sem ég var dómari gerðist það sex sinnum að lið fengu innan við tíu stig - þrisvar fyrra árið og þrisvar síðara árið. Nú hafa hins vegar fimm lið af tólf lent í þessu á fyrstu tveimur keppniskvöldunum. Ég skal fyrstur manna viðurkenna að sum liðin í GB eru arfaslök, en á hitt ber að líta að stundum geta of þungar keppnir slegið liðin út af laginu, þau fara á taugum þegar þeim finnst þau ekkert geta og ná því enn lakari árangri en efni standa til. Dómarinn verður því að láta fljóta með nokkrar spurningar sem ljóst er að liðin muni ná - þó ekki sé nema til að koma þeim í gang.

Í kvöld eru þrjár keppnir. Suðurnes og Ármúli mætast í fyrstu viðureigninni. Það er útilokað að segja fyrir um úrslit þarna. Stundum senda þessir skólar inn þokkaleg lið, en önnur árin eru þeir ákaflega daprir.

Sauðkrækingar voru eini framhaldsskóli landsins sem ekki sendi inn lið í fyrra. Nú mæta þeir til leiks á ný og taka á móti Snæfellingum frá Grundarfirði. Grundarfjarðarskólinn var í fyrsta skipti með í  fyrra - á fyrsta starfsári skólans. Eins og nærri má geta þurfti skólinn því að senda inn lið sem skipað var þremur nýnemum. Mér sýndist þetta vera efnilegir drengir og ef þeir hafa tekið eðlilegum framförum má búast við sigri þeirra í kvöld, sem ætti að vekja fögnum við Breiðafjörðinn.

Þriðja og síðasta keppni kvöldsins er um margt áhugaverðust. Þar keppa Iðnskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ. Eftir því sem ég kemst næst var sigur Iðnskólans í fyrstu umferð í fyrra sá fyrsti í sögu skólans í keppninni - og það þrátt fyrir að Iðnskólinn hafi oftast nær tekið þátt.

Það sem gerir þessa viðureign kannski forvitnilegasta eru ekki sjálf keppnisliðin, heldur þjálfarar þeirra - en bæði lið munu lúta stjórn spurningajaxla sem gert hafa garðinn frægann í spurningakeppninni á Grand rokk. Ég myndi gjarnan vilja sjá sigur Iðnskólamanna að þessu sinni - en eitthvað segir mér þó að FG muni hafa betur.

Það er nú svo, börnin mín.

The Guardian

Monday, January 16th, 2006

Fótboltasíðan í vefútgáfu The Guardian er sú besta í bransanum. Einn skemmtilegasti liðurinn á henni er “The Knowlegde” - sem er kjúríosítets-dálkur. Fólk sendir inn spurningar og umsjónarmennirnir reyna að svara. Ég notaðist mikið við þennan dálk til að fá innblástur fyrir fótboltapistlana mína í DV á sínum tíma og nokkrar spurningar í Spark-spilinu eru fengnar þaðan.

Um daginn var fjallað um vináttu tónlistarmannsins Morrissey og framherja QPR - í framhaldinu var kallað eftir ábendingum um knattspyrnumenn sem ættu vini í tónlistarbrasanum.

Innblásinn af þjóðerniskennd sendi ég línu um að Eiður Smári væri í góðu vinfengi við hljómsveitina Ég - og að hann hefði m.a.s. fengið lag í höfuðið á sér.

Viti menn. Umsjónarmennirnir hentu þetta á lofti og nú má lesa um hina innmúruðu vináttu í boltanördisma-horni The Guardian

# # # # # # # # # # # # #

Eftir að hafa skoðað þvottavélar á netinu í allt kvöld, er ég komin inn á að kaupa AEG-vél í Bræðrunum Ormsson. Gaman væri þó að vita hver í ósköpunum þarf meira en 20 mismunandi prógröm fyrir þvottavélina sína? Nú sé ég alfarið um að setja í þvottavél á Mánagötunni, þar sem Steinunn á bágt með að bera þvott niður stigann - held að ég hafi ekki notað meira en 5-6 prógröm á ferlinum…

# # # # # # # # # # # # #

Á morgun er annað keppniskvöld í GB. Þar sem við erum búin að bjóða Jóni Knúti í kvöldverð, sé ég þó ekki fram á að hlusta.

Borghyltingar mæta VMA, en síðarnefndi skólinn hefur verið úti á þekju mörg undanfarin ár. Held að Borgó vinni auðveldlega, þrátt fyrir að stilla fram glænýju liði. MR-ingar mæta sömuleiðis FB og þar verður ekki að sökum að spyrja. Tuttugu stiga munur ætti ekki að koma á óvart.

Þriðja og síðasta keppnin er viðureign Kvennaskólans og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Bæði lið hafa verið fallbyssufóður undanfarin ár. Fara verður aftur til 2001 til að finna síðasta skipti sem Kvennó vann keppni og enn lengra með Eyjamenn. Hallast þó frekar að Kvennaskólasigri, þó ekki sé nema í ljósi stærðarmunarins á skólunum tveimur.

# # # # # # # # # # # # #

Í þessum rituðum orðum sé ég að á Sirkus eru tveir menn að löðrunga hvor annan með borðtennisspöðum. Inn á milli er skotið inn myndum að keflvískum stelpum á nærbuxunum. Hvur djöfullinn er eiginlega í gangi?

Meintur

Sunday, January 15th, 2006

Sum orð hafa þann eiginleika að geta gjörbreytt blæ og merkingu heilla setninga og málsgreina. Orðið meintur er eitt þeirra.

Í fréttunum í kvöld flutti minn gamli skólabróðir, Ingólfur Bjarni, frétt af árás Bandaríkjamanna á þorp í Pakistan. Samkvæmt fréttinni féllu átján í árásinni, en þær upplýsingar fylgdu að í þorpinu hefðu verið bækistöðvar Al-Kaída.

Seinna í fréttatímanum var fjallað um leynilegar fangabúðir CIA í Evrópu, sem notaðar eru til pyntinga - afsakið, …meintar leynilegar fangabúðir CIA.

Þar sem Bandaríkjastjórn ýmist þrætir fyrir eða neitar að svara spurningum um pyntingabúðirnar í Evrópu, teljast þær meintar í íslenskum fréttatímum. En þegar Bandaríkjamenn sprengja upp íbúa í smáþorpi í Pakistan, þá er engin ástæða til að slá slíka varnagla.

# # # # # # # # # # # # # #

Fyrr í kvöld dó þvottavél heimilisins að Mánagötu. Það er því ljóst að eftir helgi munum við halda áfram að auka á einkaneysluna í samfélaginu og gjaldeyrishallann. Ég er strax kominn með samviskubit. Hvað skyldi Einar Oddur segja?

# # # # # # # # # # # # # #

GB-nördar landsins munu hafa tekið eftir því að ég tjáði mig ekkert um fyrstu viðureignir spurningakeppninnar á föstudagskvöldið. Ástæðan er sú að ég sat og horfði á Luton tapa naumlega fyrir Úlfunum í verulega bragðdaufum leik.

Sá á bloggi eins af keppendunum að spurningarnar hefðu þótt með þyngra móti miðað við fyrstu umferð (eins og sést raunar af stigatölunum - Hvanneyri lauk keppni með 6 stig). Samkvæmt mínum heimildamönnum voru spurningarnar á mjög klassískum nótum, enda ekki við öðru að búast hjá nýjum dómara í fyrstu umferð.

Menntaskólinn við Sund átti ekki í neinum vandræðum með sinn andstæðing, enda segja kunnáttumenn að MS sé hæglega eitt af 4-5 bestu liðunum í ár.

Verslingar voru meira spurningamerki. Mér er sagt að þeir hafi verið afar sannfærandi í hraðaspurningum en síðan átt erfitt uppdráttar. Þetta  er raunar gömul saga og ný með Versló-liðin. Þau æfa betur og markvissar en allir aðrir, sem skilar þeim oft frábærum árangri í hraða - en svo er eins og dýptina vanti í þyngri spurningaflokkunum. Ég hef stundum velt því fyrir mér hver útkoman yrði ef hægt væri að sameina það besta frá Versló og MH - iðnina og dugnaðinn frá Versló annars vegar en mannauðinn í MH hins vegar. Það yrði rosalegt lið!

Egilsstaðir unnu víst Norðfirðinga í þriðju keppninni (þótt Textavarpið hafi snúið úrslitunum við). Stigatalan bendir til þess að ME þurfi að vera heppið með drátt til að komast í sjónvarp, en ég sé á heimasíðu ME að það er stelpa í liðinu. Það eitt og sér nægir til að ég óski þeim alls hins besta. Kynjahallinn í þessari keppni er að verða henni verulegur fjötur um fót.

# # # # # # # # # # # # # #

Í athugasemdakerfinu eru menn að spyrja út í villur sem fundist hafa í Spark-spilinu. Auðvitað verð ég að taka á mig ábyrgðina á öllum þeim villum sem slæddust inn í alla aðra flokka en þá sem ég er sérstaklega ekki skráður fyrir. Miðað við hversu hratt verkið var unnið held ég þó að villurnar séu lygilega fáar. - Hringingar að næturlagi, til að spyrja út í spilið eru afþakkaðar. Það er margt skemmtilegra en ölvað fólk að hringja til að ræða vafaatriði í spurningaspili klukkan hálf tvö að nóttu. (Skyldi Dr. Gunni lenda í þessu líka?)

# # # # # # # # # # # # # #

Ég er að drepast í þumalputtanum eftir að hafa gert skrilljón barmmerki fyrir Ung vinstri græn í Reykjavík. Það er eins gott að grísunum takist að koma þessum merkjum í umferð, því ég er smeykur um að puttinn verði aldrei samur aftur!

9 réttir

Saturday, January 14th, 2006

Ég var tippari vikunnar hjá Bjarna Fel á Rás tvö um hádegisbilið. Mér sýnist uppskeran hafa verið bærileg, 9 réttir.

Það eru mörg ár síðan ég keypti mér síðast getraunaseðil. Fyrsti getraunaseðillinn var hins vegar ógleymanlegur. Hann keypti ég hjá Árna í Árnabúð og hef varla verið eldri en tíu ára - eftir á að hyggja hefur karlinn örugglega ekki mátt selja barninu miða í fjárhættuspili…

Í þá daga voru getraunirnar ekki tölvuvæddar, heldur voru seðlarnir keyptir og síðan þurfti að koma þeim útfylltum til söluaðilans sem aftur skilaði þeim til íslenskrar getspár.

Ég hef sjaldan á ævinni verið jafnsannfærður um nokkurn hlut og að þessi seðill myndi tryggja mér tólf eða í það minnsta ellefu rétta - og fullar hendur fjár. Því lengur sem ég lá yfir seðlinum sannfærðist ég um að getraunir yrðu mér gullnáma og líf í vellystingum biði mín.

Ég fékk fjóra rétta og varð svo móðgaður að ég tippaði ekki í heilt ár.

prufa

Saturday, January 14th, 2006

Kertiþessi færsla er bara til þess að prufa nýja myndakerfið sem Páll setti hér upp. Ójá.