Skopmyndirnar

alfur.jpgEinar Örn er að mestu búinn að skrifa pistilinn sem ég ætlaði að skrifa.

Hann á, eins og ég, bágt með að skilja í Agli Helgasyni sem skorar á fólk að birta sem allra flestar skopmyndir af Múhameð spámanni - því það sé eina leiðin til að takast á við óðu múslimana sem nú gagnrýna Jótlandspóstinn.

Nú þyrfti þetta sjónarmið vissulega ekki að koma á óvart frá Vantrúarseggjum sem hafa þá hugsjón að berja á trúarbrögðum og storka þeim á ýmsa lund. Fyrir slíka guðleysingja hljóta skopmyndirnar að teljast dyggð og ritstjórarnir hetjur.

En Egill Helgason hefur til þessa gagnrýnt Vantrúarmenn harðlega fyrir ónærgætni í garð Kristinna. Hann birtir reglulega pistla sem eru efnislega á þessa leið:

“Afi minn og amma voru gott fólk. Þau trúðu á guð og kenndu mér marga góða hluti. Mér þótti vænt um ömmu og afa. En þótt amma og afi hafi verið góðar og réttsýnar manneskjur, þá hefðu þau örugglega ekki kunnað að meta hommabrúðkaup. Þess vegna eiga menn að fara að öllu með gát og helst bíða með breytingar þar til gamla fólkið er dáið - og ekki bögga biskupinn.” 

Nú er það þekkt staðreynd að trúarbrögðin Íslam eru afar afdráttarlaus í því að ekki má gera myndir af spámanninum eða drottni. Augljóslega falla skopmyndir enn síður í kramið.

Slík viðkvæmni hefur auðvitað lítið að segja fyrir yfirlýsta andstæðinga trúarbragða - en í mínum kolli gengur það ekki upp að sami maður og kveinkar sér undan virðingarleysi trúleysingja við guðstrú afa og ömmu, heimti nú að fylgjendum annarra trúarbragða sé storkað með þessum hætti.

Annars þarf nú ekki að leita til annarra landa eftir dæmum um trúmenn sem reiðst hafa vegna teiknimynda. Man ekki betur en að sjálfur biskup Íslands hafi orðið ævareiður þegar Spölur, eignarhaldsfélag Hvalfjarðarganganna, kynnti til sögunnar teiknimyndafígúruna Staupastein - sem var álfur eða smátröll. Þetta kallaði biskup átök milli kristni og heiðni og krafðist þess að öll merki um teiknimyndaálfinn yrðu fjarlægð. Gott ef hann vildi ekki að stjórnendur Spalar bæðust afsökunar á þessu guðlasti sínu.

4 Responses to “Skopmyndirnar”

  1. Matti Says:

    Það má nefna að þó Vantrúarseggir séu lítt hneykslaðir á myndunum sem slíkum eru skiptar skoðanir um þetta mál innan hópsins. Sumum finnst margar myndanna jaðra við kynþáttafordóma á meðan öðrum finnst þetta mál stormur í vatnsglasi.

    Á Vantúarvefnum er bent á að þetta sé enn eitt dæmið um þá skaðsemi sem trúarhugmyndir hafa á samfélagið.

    En skotið á Egil er réttmætt, hann er ekki samkvæmur sjálfum sér. Það er þó eitthvað til í því sem hann hefur áður bent á að á vesturlöndum virðast menn ragir við að gera grín að eða gagnrýna íslam en hika ekki við að skjóta hörðum skotum að kristni. Að einhverju leyti er það líklega vegna þess að menn vilja sína innflytjendum ákveðið umburðarlyndi, þetta er jú minnihlutahópur og sumsstaðar ekki áberandi. En trúarbrögðin sem slík eru náttúrulega alveg jafn kjánaleg og órökrétt og kristni og ofsatrúmennirnir alveg jafn hættulegir, hvorum hópnum sem þeir tilheyra.

    Ég ætla að vona að krafa sumra um að við pössum okkur ætíð á því að móðga ekki trúmenn sé ekki sett fram af mikilli alvöru. Trúmenn eru til í ótal útgáfum með misklikkaðar hugmyndir og ekki hugnast mér að þurfa að passa mig sífellt á því að stíga ekki á tærnar á þeim. Þeir vilja nefnilega troða þeim ansi víða.

  2. Jón Says:

    Hjartanlega sammála þarna er Egill ekki samkvæmur sjálfum sér. Þó svo að ég sé trúlaus þá ber ég meiri virðingu en svo fyrir þeim sem trúa að það er algjör óþarfi að vera storka fólki sem trúir. Alveg sama hverrar trúar það er.

  3. Hrafn Þór Says:

    Alveg er ég sammála Agli. Í raun skil ég ekki af hverju þú, Stefán ert að nefna þetta. Ertu hneykslaður á viðbrögðum Egils og annarra. Ef það er verið að storka öðrum trúarbrögðum eða þeim ekki sýnd sú virðing sem þau telja sig eiga… þá það. MÁLFRELSI er nokkuð sem þú átt ekki einkarétt á. Hvorki í tveggja manna tali, heimasíðu þinni eða annars staðar. Það er undir hverjum og einum komið hversu mikla nærgætni skal sýna trúarbrögðum, kynhneigð, forheimsku eða hverju sem er. Viðbrögð múslima sýna hversu rotin trúarbrögðin eru; að hóta öllum skandinövum lífláti fyrir myndbirtinu í dönsku blaði!!!!!! Hvernig ver maður slík trúarbrögð? Auðvitað eru þetta ekki viðbrögð allra múslima en þorri þeirra segir ; þið skulið biðjast afsökunar! Þú myndir líklega láta þér nægja að fordæma múslima fyrir að pissa á þórslíkneski eða hvað myndir þú gera ef KR ingur myndi klæðast Framtreyju….. hóta lífláti ?

  4. SHIFT-3 Says:

    Ég verð að biðja Hrafn Þór um að lesa færsluna aftur.

    Boðskapur hennar er nokkuð skýr:

    Hún fjallar ekki um það hvort það sé rétt eða rangt af Agli að skora á fólk að birta sem flestar skopmyndir af Múhameð og það sem víðast. Hins vegar getur sami maðurinn ekki skammað íslenska trúleysingja fyrir að tala af ónærgætni um mál sem kynnu að særa kristið fólk - og á sama tíma hvatt til þess að múslimum sé ögrað með því að ráðast á trúartákn þeirra.

    Færslan snerist ekki um málfrelsi eða skerðingu þess, heldur mikilvægi þess að vera sjálfum sér samkvæmur.