GB

Eins og spáð var, hlustuðum við ekkert á annað keppniskvöldið af GB í gær. Jón Knútur sat hér lengst fram á nótt og það var glatt á hjalla. Hann er góður gestur og kom færandi hendi – með fyrstu plötu Echo & the bunnyman, en ég var einmitt kominn á fremsta hlunn með að kaupa hana á dögunum.

Sé að úrslitin voru eins og búast mátti við. MR slátraði Breiðhyltingum og Borghyltingar unnu sigur, en með stigatölu sem bendir til að liðið þurfi hagstæðan drátt til að sleppa í sjónvarpið. Kvennaskólinn marði sigur á Vestmannaeyjum en verður væntanlega draumaandstæðingur allra hinna liðanna í næstu umferð.

Hið lága stigaskor í keppninni það sem af er hlýtur að vera aðstandendum hennar áhyggjuefni. Þau tvö ár sem ég var dómari gerðist það sex sinnum að lið fengu innan við tíu stig – þrisvar fyrra árið og þrisvar síðara árið. Nú hafa hins vegar fimm lið af tólf lent í þessu á fyrstu tveimur keppniskvöldunum. Ég skal fyrstur manna viðurkenna að sum liðin í GB eru arfaslök, en á hitt ber að líta að stundum geta of þungar keppnir slegið liðin út af laginu, þau fara á taugum þegar þeim finnst þau ekkert geta og ná því enn lakari árangri en efni standa til. Dómarinn verður því að láta fljóta með nokkrar spurningar sem ljóst er að liðin muni ná – þó ekki sé nema til að koma þeim í gang.

Í kvöld eru þrjár keppnir. Suðurnes og Ármúli mætast í fyrstu viðureigninni. Það er útilokað að segja fyrir um úrslit þarna. Stundum senda þessir skólar inn þokkaleg lið, en önnur árin eru þeir ákaflega daprir.

Sauðkrækingar voru eini framhaldsskóli landsins sem ekki sendi inn lið í fyrra. Nú mæta þeir til leiks á ný og taka á móti Snæfellingum frá Grundarfirði. Grundarfjarðarskólinn var í fyrsta skipti með í  fyrra – á fyrsta starfsári skólans. Eins og nærri má geta þurfti skólinn því að senda inn lið sem skipað var þremur nýnemum. Mér sýndist þetta vera efnilegir drengir og ef þeir hafa tekið eðlilegum framförum má búast við sigri þeirra í kvöld, sem ætti að vekja fögnum við Breiðafjörðinn.

Þriðja og síðasta keppni kvöldsins er um margt áhugaverðust. Þar keppa Iðnskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ. Eftir því sem ég kemst næst var sigur Iðnskólans í fyrstu umferð í fyrra sá fyrsti í sögu skólans í keppninni – og það þrátt fyrir að Iðnskólinn hafi oftast nær tekið þátt.

Það sem gerir þessa viðureign kannski forvitnilegasta eru ekki sjálf keppnisliðin, heldur þjálfarar þeirra – en bæði lið munu lúta stjórn spurningajaxla sem gert hafa garðinn frægann í spurningakeppninni á Grand rokk. Ég myndi gjarnan vilja sjá sigur Iðnskólamanna að þessu sinni – en eitthvað segir mér þó að FG muni hafa betur.

Það er nú svo, börnin mín.

11 Responses to “GB”

  1. Steinþór Says:

    Verð að vera ósammála þér um FB-IR keppnina, hallast frekar að sigri Iðnskólans. Meðlimir liðsins hafa verið duglegir að stunda Grand rokk og ég held að það eigi eftir að gera gæfumuninn í kvöld…
    Annars er ég sammála þeim sem segja að þessi fyrsta umferð sé ein sú þyngsta sem komið hefur fram í þessari ágætu keppni. Jaa gott ef ekki ein sú þyngsta síðan Illhugi var og hét.
    Svo eru þessar spilaspurningar alveg off!

  2. Benedikt Says:

    Það verður líka gaman að sjá hvort einhvern tíma eigi eftir að koma svar við latnesku plöntuheitunum. Það er ekki líklegt.

  3. Jón Ingi Says:

    Ég spái FÁ, Snæfellingum og IR í aðra umferð.

  4. bió Says:

    Hlustandi á þriðja kvöldið skrifar maður. Mjög svo klassískar gb spurningar. Fuglar, lotukerfið og svo framvegis. Magnaðasta spurning dagsins fannst mér um uppáhaldslag John Peel “Teenage Kicks” í hraðaspurningum. Hverjir fluttu lagið “Teenage kicks”? Er þetta ekki dálítið skrýtin/erfið spurning. Ber reyndar tónlistarsmekk spurningahöfundar fagurt vitni en dómgreind hans verra.

  5. Símon Arnar Birgisson Says:

    Ég verð að segja fyrir mitt leiti að þetta er allra þyngsta fyrsta umferð sem ég man eftir. Alltof þungar spurningar. Hafði konugreyið aldrei hlustað á neinar Gettu betur keppnir áður en hún lét ráða sig sem spurningahöfund í keppnina ? Þetta er alltof og súrt og spurningarnar eru engan veginn í takt sumar hverjar í víxlspurningunum. Ég er kannski einn um að hafa þessa skoðun, en mér finnst þetta ekki alveg vera á sama leveli og undanfarin ár. Varla eru allir skólarnir bara svona hrikalega lélegir að það þykir flott að lið fái meira en 9 stig í keppni.

  6. Jón Ingi Says:

    Mér finnst spurningarnar mjög misjafnar. Oft eru t.d. víxlspurningapör ekki jöfn að erfiðleika, eins og væri æskilegt.

    Annars tók ég eftir hugsanlegri villu hjá dómaranum í kvöld. Spurt var um hvað danski ráðherran sem afhenti handritin árið 1971 hét. Dómarinn sagði svarið vera Jørgensen. Ég hélt alltaf að það hefði verið Helge Larsen.

  7. Egill Says:

    Fyrir utan þá fáránlegu villu að biðja um söngvara Hjálma í eintölu og gefa rétt fyrir þann af tveim söngvurum sem söng ekki lagið sem var spilað.

  8. Steinþór Says:

    Já ég er alveg sammála Agli, það var fáránleg spurning. Ég er líka hjartanlega sammála missamræmi í víxlinu. Bráðabaninn í gær á milli IR og FG var gott dæmi um það. Spyja fyrst um liðdýr og síðan út í gríska goðafræði. Mér finnst það pínu vafasamt…

  9. Ann Says:

    Thanks for giving such a useful information.

  10. Jone Says:

    I think that it is good! I read it evry day $)

  11. Elías Says:

    Það verður að gera eitthvað í þessu kommentaspami