Meintur

Sum orð hafa þann eiginleika að geta gjörbreytt blæ og merkingu heilla setninga og málsgreina. Orðið meintur er eitt þeirra.

Í fréttunum í kvöld flutti minn gamli skólabróðir, Ingólfur Bjarni, frétt af árás Bandaríkjamanna á þorp í Pakistan. Samkvæmt fréttinni féllu átján í árásinni, en þær upplýsingar fylgdu að í þorpinu hefðu verið bækistöðvar Al-Kaída.

Seinna í fréttatímanum var fjallað um leynilegar fangabúðir CIA í Evrópu, sem notaðar eru til pyntinga – afsakið, …meintar leynilegar fangabúðir CIA.

Þar sem Bandaríkjastjórn ýmist þrætir fyrir eða neitar að svara spurningum um pyntingabúðirnar í Evrópu, teljast þær meintar í íslenskum fréttatímum. En þegar Bandaríkjamenn sprengja upp íbúa í smáþorpi í Pakistan, þá er engin ástæða til að slá slíka varnagla.

# # # # # # # # # # # # # #

Fyrr í kvöld dó þvottavél heimilisins að Mánagötu. Það er því ljóst að eftir helgi munum við halda áfram að auka á einkaneysluna í samfélaginu og gjaldeyrishallann. Ég er strax kominn með samviskubit. Hvað skyldi Einar Oddur segja?

# # # # # # # # # # # # # #

GB-nördar landsins munu hafa tekið eftir því að ég tjáði mig ekkert um fyrstu viðureignir spurningakeppninnar á föstudagskvöldið. Ástæðan er sú að ég sat og horfði á Luton tapa naumlega fyrir Úlfunum í verulega bragðdaufum leik.

Sá á bloggi eins af keppendunum að spurningarnar hefðu þótt með þyngra móti miðað við fyrstu umferð (eins og sést raunar af stigatölunum – Hvanneyri lauk keppni með 6 stig). Samkvæmt mínum heimildamönnum voru spurningarnar á mjög klassískum nótum, enda ekki við öðru að búast hjá nýjum dómara í fyrstu umferð.

Menntaskólinn við Sund átti ekki í neinum vandræðum með sinn andstæðing, enda segja kunnáttumenn að MS sé hæglega eitt af 4-5 bestu liðunum í ár.

Verslingar voru meira spurningamerki. Mér er sagt að þeir hafi verið afar sannfærandi í hraðaspurningum en síðan átt erfitt uppdráttar. Þetta  er raunar gömul saga og ný með Versló-liðin. Þau æfa betur og markvissar en allir aðrir, sem skilar þeim oft frábærum árangri í hraða – en svo er eins og dýptina vanti í þyngri spurningaflokkunum. Ég hef stundum velt því fyrir mér hver útkoman yrði ef hægt væri að sameina það besta frá Versló og MH – iðnina og dugnaðinn frá Versló annars vegar en mannauðinn í MH hins vegar. Það yrði rosalegt lið!

Egilsstaðir unnu víst Norðfirðinga í þriðju keppninni (þótt Textavarpið hafi snúið úrslitunum við). Stigatalan bendir til þess að ME þurfi að vera heppið með drátt til að komast í sjónvarp, en ég sé á heimasíðu ME að það er stelpa í liðinu. Það eitt og sér nægir til að ég óski þeim alls hins besta. Kynjahallinn í þessari keppni er að verða henni verulegur fjötur um fót.

# # # # # # # # # # # # # #

Í athugasemdakerfinu eru menn að spyrja út í villur sem fundist hafa í Spark-spilinu. Auðvitað verð ég að taka á mig ábyrgðina á öllum þeim villum sem slæddust inn í alla aðra flokka en þá sem ég er sérstaklega ekki skráður fyrir. Miðað við hversu hratt verkið var unnið held ég þó að villurnar séu lygilega fáar. – Hringingar að næturlagi, til að spyrja út í spilið eru afþakkaðar. Það er margt skemmtilegra en ölvað fólk að hringja til að ræða vafaatriði í spurningaspili klukkan hálf tvö að nóttu. (Skyldi Dr. Gunni lenda í þessu líka?)

# # # # # # # # # # # # # #

Ég er að drepast í þumalputtanum eftir að hafa gert skrilljón barmmerki fyrir Ung vinstri græn í Reykjavík. Það er eins gott að grísunum takist að koma þessum merkjum í umferð, því ég er smeykur um að puttinn verði aldrei samur aftur!

8 Responses to “Meintur”

  1. anna Says:

    hvenær ætlarðu að gera merkið mitt? Þú veist trönsumerkið mitt!!!!

  2. ÞME Says:

    Hvað um “meintar” ásakanir Mike Newell um mútur! Ekkert verið minnnst á það?!
    Enginn nennir að hlusta á fréttir um dráp Bandaríkjamanna lengur, allir vita að dauðir Írakar eru núna bara dauðir hryðjuverkamenn. Þökk sé George W!

  3. Óli Njáll Says:

    Verzlingarnir eru allir í þriðja og fjórða bekk og því kannski ekki líklegir til stórafreka í ár. En ættu vissulega að verða mjög góðir á næsta ári.

  4. Kári Ólafsson Says:

    Urr !
    Stefán, getur þú ekki notast við þvottabretti í smá tíma ?

    K.

  5. Hermann Baldursson Says:

    “… iðnina og dugnaðinn frá Versló annars vegar en mannauðinn í MH hins vegar. Það yrði rosalegt lið!”
    Skiptu út Versló og MH fyrir Sjálfstæðisflokk og Vinstri-Græn, og erum við þá ekki að tala um næstu ríkisstjórn?

  6. Hrafnkatla Says:

    Þið eruð að tala um að Verslingarnir séru allir á 3 og 4 ári og séu því ekki líklegir til afreka!
    Ég er sem sagt þessi stelpa í Gettu Betur liði ME (þakka stuðning þinn til mín Stefán, það er satt að mikið kynjamisrétti sé í þessu ferli), en ég vil geta þess að við ÖLL ÞRJÚ í liði ME erum á 2. ári! Við erum öll að verða 18 ára á þessu ári en samt ætlum við okkur í sjónvarpið að minnstakosti!

    Bara að segja frá þessu fyrst ég rakst á þessar samræður hér!

  7. Heiða "tengdafrænka" Says:

    Ohhh.. ég ætlaði að koma með þetta en jæja… Þetta er allt ungt og óreynt fólk svo ég held við ættum að gefa þeim allavega eitt klapp og sjá til með afganginn! ;)