Hryggur um jólin

Tengdó gaf svínaræktarmafíunni langt nef í jólamatnum og bauð upp á lambahrygg í kvöld. Hann var lostæti. Við vorum sex í matnum: við famelían, tengdó Gvendur og Vigdís.

Komum klyfjuð af gjöfum, enda keppast menn við að gefa barninu föt og leikföng. Steinunn er skriðin upp í rúm að lesa Argóarflísina eftir Sjón. Geri sjálfur ráð fyrir að byrja á Guðrúnu Evu Mínervudóttur á eftir.

Í fyrramálið fyllist kotið svo af fólki. Við bjóðum nefnilega í bröns. Það verður sérstaklega gaman að hitta Þóru systur, sem er nýsloppin heim úr verkfallinu í New York.

Jamm.

One Response to “Hryggur um jólin”

  1. BIRD Says:

    http://mfile.akamai.com/6095/live/reflector:22560.asx?bkup=22557
    Kl. 15 - 16.50 til að hlusta á leikinn. Vonandi kemur þetta ekki of seint…