Spilagosar
Fyrir skömmu fékk ég nokkur eintök af fótboltaspilinu Spark frá útgefanda, til að koma á vini og vandamenn. Um þessar mundir er ég að fá viðbrögð frá þeim sem fengu spil í hendurnar og þau er býsna góð. Allra harðsnúnustu fótboltanördar segjast reyndar vera fullfljótir að fara í gegnum allt spilaborðið. Þeim er bara bent á að hnika til reglunum - fara tvisvar í gegnum borðið eða e-ð álíka. Aðalmálið er að spurningarnar mælast þokkalega fyrir.
Er enn ekki farinn að heyra neinar sölutölur og hef ekki viljað angra útgefandann með því að spyrja. Hann er með nóg annað á sinni könnu.
Sömuleiðis hef ég ekki hugmynd um hvernig sjónvarpsþátturinn er að mælast. Þar sem Sparkið er á sama tíma og Latibær á RÚV, býst ég við að hann fari framhjá öllum heimilum þar sem krakka er að finna. Er hægt að horfa á þáttinn á netinu? Svona fylgist maður nú illa með sínu eigin efni…
Næsti þáttur verður hins vegar skemmtilegur. Þar mætast fjallmyndarlegir fótboltamenn og alþingismenn.
# # # # # # # # # # # # #
Um daginn labbaði ég fram hjá veitingastað sem ég hafði aldrei heyrt um áður - Indian Mango - á einni hliðargötu Laugavegs. Nafnið vakti athygli mína. Veit einhver lesandi þessarar síðu deili á veitingastaðnum? Er þetta eitthvað til að prófa? Hvernig er verðið?
# # # # # # # # # # # # #
Í fyrramálið þarf Steinunn að mæta á fund í framkvæmdastjórn ÖBÍ, eldsnemma. Fyrir vikið tek ég Ólínu með mér í vinnuna og hef hana á arminum á sama tíma og ég reyni að messa yfir grunnskólabörnum um sögu og eðlisfræði rafmagnsins. Það mun reyna á - ekki hvað síst þar sem nógu erfitt getur verið að halda athygli krakkanna án þess að svona truflun bætist við.
Seinni partinn þarf ég svo að mæta á fund vegna verkefnis sem ég neyddist til að taka að mér, þar sem ég skulda viðkomandi manni greiða.
# # # # # # # # # # # # #
Á fimmtudaginn fer ég í feðraorlof. Þetta verður skringilegasti desembermánuður allra tíma, engin knýjandi verkefni - bara afslöppun og huggulegheit. - Fyrir utan reyndar að stilla upp eitt stk. framboðslista VG fyrir jól, en það tekur sig nú varla að hafa orð á slíkum smámunum.
Og jú - ég þarf líka að semja eitt erindi fyrir hádegisfyrirlestra Sagnfræðingafélagsins, halda úti starfseminni í Friðarhúsi, safna hlutafé fyrir afborgunina um miðjan mánuðinn, semja ritdóm fyrir Sagnir - tímarit sagnfræðinema, undirbúa skóflustungu fyrir þjónustubyggingu Minjasafnsins og búa til skrilljón barmmerki fyrir hin ýmsustu pólitísku samtök.
Með öðrum orðum: tóm afslöppun og unaður.

November 29th, 2005 at 00:50
Njóttu feðraorlofsins!
Og eftirminnilegasta gagnrýnin sem ég hef lesið um umræddan stað er hér:
http://thordis.blogspot.com/2005_11_01_thordis_archive.html#113097103508428159
November 29th, 2005 at 01:00
Já - mig rámar í að hafa séð einhvern Sparkþátt á neti, svo að það hlýtur að vera hægt að kíkja á þá þar.
Hvaða frambjóðandi fær stunguna í sinn hlut?
Til lukku með orlofið - þú nærð örugglega að skella í nokkrar sortir á meðan bleikjan sefur…
November 29th, 2005 at 01:57
Að sjálfsögðu er hægt að horfa á þáttinn á netinu
http://www.skjarinn.is/skjareinn/innlendir_thaettir/thattur/store126/item962/
og svo er vefsjónvarp miklu skemmtilegra en venjulegt sjónvarp, því að maður getur “spólað” yfir auglýsingarnar
November 29th, 2005 at 02:18
Indian Mango: Drullugóður hestaborgari á 1.300 kall, kryddaður af fágun og meðlætið fínt. En biðin var löng. Löööng!
November 29th, 2005 at 08:33
fer á Indian Mango í hádeginu, dómur á eftir. Hef heyrt flesta láta vel af staðnum with the notable exception of Þórdís.
November 29th, 2005 at 09:10
Ég gubba ef einhver segir eða skrifar “hin ýmsustu”. Gubb.
November 29th, 2005 at 10:47
Innfæddir Reykvíkingar kalla reyndar þessa hliðargötu Frakkastíg. Húsið byggði sá mæti maður Kristinn vagnasmiður.
November 29th, 2005 at 11:21
Undarlegt hvernig fólk lítur á þetta fæðingarorlof - ekki vissi ég að ég væri að greiða undir vetrarfrí þeirra sem vilja eignast börn þegar ég greiði í þennan sameiginlega sjóð.
November 29th, 2005 at 11:27
Vetrarfrí - og vetrarfrí…
Ástæðan fyrir því að ég tek t.d. frí í desember en ekki nóvember er sú að það hentar betur á vinnustað sem tekur á móti skólahópum að loka í mánuði þar sem krakkarnir eru hvort sem er í jólafríi.
Svo klára ég orlofið í júní á næsta ári, þegar grunnskólarnir eru farnir í frí og þegar auðvelt er að ráða háskólanema í sumarvinnu til að leysa mig af.
November 29th, 2005 at 12:46
ekki reyna að fara á Indian Mango í hádeginu samt (amk ekki fyrir tólf) við fórum fýluferð áðan
November 29th, 2005 at 13:57
Hvernig væri að smella upp fótboltagetraun með Spark-spil í verðlaun?
November 29th, 2005 at 20:00
Mér finnst Þórhallur því miður eyðileggja þáttinn. Með endalausa aulabrandara- sem hitta síður en svo í mark. Þætti mun sniðugra að fá einhvern reynslubolta í staðinn fyrir Þórhall og setja þetta upp líkara Popppunkti og Gettu Betur. Sviðsmyndin er líka hálf kjánaleg. Spurningarnar eru góðar, frekar léttar, sem er ágætt- því þá geta allir tekið þátt. Vil bara benda á þetta, því þetta liggur svo í augum uppi:)