Archive for September, 2005

Mýtan um þýsku smáflokkana

Wednesday, September 21st, 2005

Enn eru allir fjölmiðlar fullir af þýsku kosningunum, enda virðist stefna í algjöra stjórnarkreppu í landinu. Þessi stjórnarkreppa er kaldhæðnisleg í ljósi þess að þar í landi eru gríðarlega ólýðræðislegar kosningareglur sem fela það í sér að flokkar þurfa að fá mjög hátt hlutfall atkvæða til að fá þingmenn kjörna. Þröskuldur þessi gerir það að verkum að milljónir kjósenda geta lent í því að fá enga fulltrúa á þingi.

Þau rök sem færð hafa verið fram fyrir slíkum þröskuldum (og sem sumir hafa talað fyrir að verði teknir upp hér á landi ef landið yrði gert að einu kjördæmi) eru fyrst og fremst pragmatísk. Í Þýskalandi héldu menn því fram að þröskuldarnir tryggðu að hægt væri að mynda meirihlutastjórnir, en að smáflokkar leiddu til stjórnarkreppu og viðvarandi minnihlutastjórna. Þau rök fara fyrir lítið núna. Líklega væru meiri líkur á að Þjóðverjar gætu myndað starfhæfa ríkisstjórn nú ef enginn hefði verið þröskuldurinn.

Önnur mýta um þýska kosningaþröskuldinn er sú að hann sé afurð fortíðar Þýskalands - að smáflokkakraðak hafi meðal annars komið Hitler til valda. Þetta hefur maður oft heyrt fullyrt og nú síðast skrifar Björn Bjarnason um það á heimasíðu sinni.

Söguáhugamaðurinn Björn hefði þó betur haft fyrir að kynna sér málið aðeins betur áður en hann dró þessa gömlu tuggu fram. Lítum á kosningarnar 1933, þær síðustu áður en Nasistar tóku sér alræðisvald með stuðningi hægrimanna á þýska þinginu.

Fylgi flokkanna var sem hér segir:
Nasistar 43,9%
DNVP (hægrisinnaður samstarfsflokkur nasista) 8%
Jafnaðarmenn 18,3%
Kommúnistar 12,3%
Miðflokkurinn 11,2%
Bæheimski flokkurinn (systurflokkur Miðflokksins) 2,7%

Hinir margumtöluðu smáflokkar voru:
DDP 0,9%
Aðrir 2,7%
Þetta gaf smáflokkum 14 þingmenn af 647.

Í kosningunum í nóvember 1932, sem sömuleiðis voru afar þýðingarmiklar í valdatöku nasista var samanlagt fylgi smáflokka innan við 5% og 25 þingmenn af 584.

1930 voru smáflokkarnir með 20 þingmenn af 577 & 1928 voru þeir 26 af 491 - (þá eru nasistar ekki taldir til smáflokka).

Með öðrum orðum, er útilokað að leita réttlætingar fyrir ólýðræðislegum kröfum um lágmarksfylgi flokka í Þýskalandi í nasískri fortíð landsins. Það stenst enga sögulega skoðun.

# # # # # # # # # # # #

Í kvöld át ég hreindýrshjörtu hjá tengdó. Það er herramannsmatur.

# # # # # # # # # # # #

Luton tapaði fyrir Reading í kvöld og er úr leik í deildarbikarnum. Jæja, við tökum þá bara Uglurnar á föstudaginn í staðinn.

Leitin að gralnum

Tuesday, September 20th, 2005

Vinnudeginum lauk í vettvangsferð í gamla spennistöð. Strákarnir í spennistöðvadeildinni mega eiga það að þeir muna eftir að hringja í Minjasafnið áður en gömlu dóti er keyrt á haugana. Að þessu sinni var um að ræða geymslukompu í Holtunum, þar sem greinilega hafði verið lítill efnislager á sjötta áratugnum.

Það er helst í ferðum sem þessum að safnvörðurinn á Minjasafni OR getur upplifað sig sem Indiana Jones, sem brýst í gegnum frumskóginn í leit að dýrgripum. Þarna var þó ekki að finna neitt sem talist gat í frásagnir færandi - einkum rofa- og tengladót, sem við áttum fyrir og ryðgaða bolta og skrúfur. Helst datt mér í hug að hirða tóma olíudunka, smurningsolíuflöskur o.þ.h. sem ég hefði komið á Árbæjarsafn - en í ljós kom að búið var að stefna Árbæingum á staðinn hvort sem var.

Gat þó ekki stillt mig um að grípa tóman 5 litra terpentínubrúsa merktan Hörpu. Hvað er það við gamlar umbúðir sem gerir þær svona skemmtilegar? - Býst við að ég skelli brúsanum í jarðlínutengivagninn í sýningarsalnum á safninu, innan um gömlu verkfærin. Skyldu jarðlínumenn hafa haft terpentínu með í för? Tja, eigum við ekki bara að segja það…

# # # # # # # # # # # #

Luton spilar úti gegn Reading í deildarbikarnum í kvöld. Held að Hearts sé að leika við Livingston í skoska deildarbikarnum, sem er afskaplega lágt skrifuð keppni. Stóri leikurinn í skoska boltanum til þessa er á laugardaginn: Hearts gegn Rangers. Ég skrifaði Sýn og spurði hvort ekki stæði til að sýna leikinn eða í það minnsta upptöku af honum. Hef engin svör fengið og einhver kappaksturskeppni er auglýst á þessum tíma.

Erfi

Tuesday, September 20th, 2005

Ef keyrt verður yfir mig þveran á morgun, þá vil ég ekki pönsur, rjómakökur og kaffi í erfidrykkjunni. Eftir útför Óla var safnast saman í félagsheimili Rafveitunnar þar sem borið var fram bakkelsi, bjór og hvítvín. Smekkfullt hús og fín stemning. Þetta hefði karlinn kunnað að meta.

# # # # # # # # # # # # #

Í dag fékk ég nýju Luton-treyjurnar í pósti, aðal- og varabúninginn. Sýndi Steinunni þetta fullur stolts. Hún lét eins og sér þættu þetta fínar flíkur. Henni lætur margt betur en að ljúga.

Ég mun klæðast þessu við hvert tækfæri. T.d. á föstudaginn kemur þar sem Luton mætir Sheffield Wednesday í beinni útsendingu á Sky. Kemur þar í ljós hvor Björgvin Ingi, Jói og félagar í Uglunum, stuðningsmannaklúbbi Sheff. Wed. á Íslandi eru menn eða mýs - þora þeir að mæta á Ölver?

# # # # # # # # # # # # #

Fáskrúðsfjarðargöngin eru æði. Jarðgöng eru málið - eins og lesendur þessarar síðu hafa lesið oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.

Stjórnvöld eiga nú þegar að taka ákvörðun um hvar næstu göng á eftir Héðinsfjarðargöngum skulu vera. Það er sanngirnismál að Vestfirðingar fái þau næstu. Held að Hrafnseyrarheiðin liggi þar beint við, auk þess sem líklega verður að bora einhverja stubba á verstu grjóthrunssvæðunum í Óshlíðinni.

Mín fjölskylda veit allt um það hversu háskalegt grjóthrunið getur orðið í Óshlíðinni. Afi var á sínum tíma fararstjóri í rútu sem lenti í grjóthruni þar og tveir fórust. Hann sagði okkur þá sögu aftur og aftur. Í hvert sinn með sama sársaukanum. Þessi harmleikur lagðist á sálina á honum og gat gosið upp þegar minnst varði. Í þá daga var ekki til neitt sem hét áfallahjálp.

Óli

Monday, September 19th, 2005

Í dag verður Ólafur Guðmundsson, vinnufélagi minn til margra ára og góður vinur borinn til grafar.

Ég hef séð á eftir ættingjum, kunningjum, samstarfsfólki úr vinnu og félagsmálum, afa mínum og ömmu. Óli er hins vegar fyrsti eiginlegi vinurinn sem ég missi.

Það er skrítin tilfinning.

Í Mogganum í morgun er stutt minningargrein eftir mig um Ólaf. Ég held ég sleppi því að bæta neinu við hana.

Ég er heldur ekki í stuði til að skrifa neitt í bili um ferðina austur, um fótboltaúrslit síðustu daga, fréttir eða annað slíkt.

Og svo er stokkið af stað…

Sunday, September 11th, 2005

Ekki varð mér mikið úr verki í dag. Hafði stefnt að því að ganga frá kaupum á bílnum þeirra Kjartans og Sylvíu (sem eru flottir bloggarar). Þau eru á leið til útlandsins og þurfa að losna við bílinn sinn og dósin hennar Steinunnar er að ryðga í sundur. Engir bíllyklar skiptu um hendur. Fór þess í stað í vinnuna, þar sem ég lóðsaði hóp hressra Sandgerðinga um Minjasafnið og Elliðaárstöðina. Því næst lá leiðin á félagsfund í Ásatrúarfélaginu þar sem ákveðið var að selja safnaðarheimilið. Vonandi rís hof fyrir söluandvirðið innan tíðar.

Í fyrramálið fer ég til Keflavíkur að horfa á Framara berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Því næst verður flogið austur. Við ætlum að taka síðbúið sumarfrí á Norðfirði, slaka á og keyra Fáskrúðsfjarðargöng. Alltaf gaman að skoða ný göng (sem minnir mig á að ég hef aldrei farið Ólafsfjarðargöngin - synd og skömm).

Ég hef hlakkað til þessarar ferðar í lengri tíma. Stóla á að vikuhvíld fyrir austan sé akkúrat það sem Steinunn þarf til að ná fyrri styrk. Veit líka að tengdapabbi er vitstola af spenningi yfir að fá að sjá Ólínu.

Ekki gera ráð fyrir neinum bloggfærslum hér næstu vikuna.

# # # # # # # # # # # # #

Í gær missti ég einn besta vin minn. Krabbamein er hræðilegur sjúkdómur.

# # # # # # # # # # # # #

Þóra systir er farin að blogga frá Ameríkunni. Skemmtilegt blogg, sem vænta mátti.

# # # # # # # # # # # # #

Luton var óheppið í dag að gera bara jafntefli á heimavelli gegn Úlfunum. Nýr markvörður lærisveina Glenn Hoddle fór víst á kostum og við áttum sláarskot. Erum í 2-4 sæti í deildinni, ásamt Watford. Hvort tveggja er óvænt.

Brellan okkar Gísla

Friday, September 9th, 2005

Aumingja Gísli Marteinn laug upp á sig BA-gráðu. Það er ágætis áminning til sagnfræðinga að taka hóflega mikið mark á uppflettiritum eins og Samtíðarmönnum - upplýsingar í slíkum ritum geta byggst á óskhyggju frekar en raunveruleikanum.

Stóra BA-gráðumálið hlýtur þó að valda mér áhyggjum. Þannig er nefnilega mál með vexti að í símaskránni 1998 er ég titlaður sagnfræðingur. Þessum titli bætti ég inn í skránna í þeirri vissu að mér tækist að útskrifast þá um vorið. Eftir stendur að ég var um nokkurra vikna skeið titlaður sagnfræðingur fyrri hluta ársins - án þess að hafa lokið BA-prófi.

Hver veit nema þessu verði slegið upp í fjölmiðlum eftir einhver ár og ég úthrópaður sem loddari og lygalaupur?

Kúbein

Thursday, September 8th, 2005

Ég er í skralli.

Klukkan níu í morgun hófst ég handa við að undirbúa Mánagötuna fyrir komu Eiríks smiðs, sem setur upp eldhúsinnréttinguna og svefnherbergisskápana frá Axis. Eftir að hann mætti og við vorum búnir að endurraða efninu og taka ákvarðanir um 2-3 vafamál, vatt ég mér í að pilla niður gömlu skápana með kúbeini, skrúfjárni sög og dverghamri.

Skáparnir voru lítið vandamál og ég dútlaði við þetta - hélt að ég þyrfti að drepa tímann. Þá kom að seinni hluta verksins - að rífa niður veggina umhverfis fatahengið á ganginum, sem nú á að verða hluti af nýju skápasamstæðunni. Þessir veggir hélt ég að væru úr léttum krossviðsplötum eða eitthvað álíka. Onei, sú var ekki raunin.

Helvítis skáphliðarnar reyndust jafnrammgerðar og skáparnir í eldhúsinu sem voru að drepa mig fyrr í sumar. Þetta er forskalað með rígnegldu vírneti að framan og aftan umhverfis þrefalt timburlag og með góðri múrhúð. Ég barði á þessu frá 10 um morguninn til að ganga fimm þegar pabbi slóst í hópinn. Um sjöleytið mátti verkinu heita lokið. Held að símalínan inn í svefnherbergið hafi verið meðal þess sem varð undan að láta. Netmál heimilisins verða því tekin til endurskoðunar.

Rosalega bölvaði ég múraranum eða smiðnum sem gekk svona frá innviðum hússins fyrir rúmum 65 árum. Ætli fólk muni ekki í framtíðinni senda álíka kaldar kveðjur þeim smiðum sem fríka út með nýju og fínu naglabyssurnar sínar og skjóta 100 nöglum þar sem 10 ættu að duga?

# # # # # # # # # # # # #

Lesa Norðfirðingar þessa síðu? Ég er jú einu sinni tengdasonur bæjarins…

Ef svo er, væri ágætt að vita hvort Rauða torgið sé með Sky eða hvort íslensku stöðvarnar séu látnar duga - er ekki sýnt talsvert af fótbolta þarna ennþá, það var amk fyrst eftir að staðurinn opnaði.

Hleypur á snærið

Wednesday, September 7th, 2005

Um daginn bloggaði ég um hvað mér litist vel á dagskrá Þjóðleikhússins í vetur. Við Steinunn vorum meira að segja að tala okkur inn á að fjárfesta í einhverju korti - til að tryggja að við hundskuðumst á nokkrar sýningar. Nú virðast þau fjárútlát óþörf.

Heyrði nefnilega í spurningaþættinum hans Ólafs Bjarna að allir keppendur í fjórðungsúrslitum fái gjafakort á nokkrar sýningar í vetur. Spurning hvað verður fyrir valinu - minningarsýningin um Svövu Jakobs er augljóslega fyrsta val. Pétur Gautur kemur sömuleiðis sterklega til greina. Einhvern veginn finnst mér að það sé eitt af þessum stóru verkum sem maður verður að hafa séð. Borgarleikhúsið verður með Manntafl eftir Zweig. Mig langar líka á þá sýningu.

Af drættinum í fjórðungsúrslitin er annars það að segja að ég mæti Davíð Þór Jónssyni. Það er tillhlökkunarefni, því Davíð er snillingur og góður drengur. Annars er þessi keppni Ólafs Bjarna óútreiknanleg. Sigurvegarar í hverri keppni eru að fá þetta 18-19 stig, þar af er einn liður sem vegur langþyngst. Þar spyr Ólafur Bjarni um skáldsögu, höfund og útgáfuár. Þá sjaldan ég hef náð að hlusta á þáttinn er ég annað hvort gjörsamlega týndur í þessum lið og fengi ekkert stig - eða hef þetta alveg á hreinu og fengi fimm eða sex. Allur þátturinn er því í raun bara langur aðdragandi að þessari einu spurningu sem ræður úrslitum.

# # # # # # # # # # # # #

Talandi um keppnir. Nú nota ég orðið “keppni” vítsvitandi í fleirtölu og tala óhikað um “keppnir” í hinu og þessu. Samt er mér sagt að þetta sé vond íslenska og málfarsráðunautarnir á RÚV ærast t.d. ef einhver notar þessa fleirtölumynd.

Nú veit ég að margir góðir íslenskumenn lesa þessa síðu. Gæti einhver góð sál útskýrt fyrir mér hvort og þá hvers vegna ekki er heimilt að tala um “keppnir”? Ef ég fæ ásættanlega skýringu lofa ég því að steinhætta að nota þetta hræðilega orð í fleirtölu.

# # # # # # # # # # # #

Spjallsíða Luton-manna er undirlögð af bölbænum fólks sem vill láta stjaksetja Sven Göran Eriksson. Engu að síður hlakkar í okkur Hötturum, því við áttum tvo leikmenn í Norður-Írska landsliðinu sem setti í kvöld HM-vonir Englendinga í uppnám.

Mínir menn Skotar virðast hafa rankað of seint við sér í keppninni (ath. eintala) og falla væntanlega úr keppni (svo!) eftir jafntefli gegn Ítölum og sigur á Norðmönnum úti í tveimur síðustu leikjum. Spánn er í klemmu í sínum riðli - gæti jafnvel setið eftir á kostnað Bosníu. Þá er Slóvakía í séns að komast í umspil á kostnað Rússa. Annars virðist ekki von á mörgum nýliðum frá Evrópu í ár. Það er í Afríku sem hlutirnir eru að gerast.

# # # # # # # # # # # # #

Það sem af er þessari viku hef ég tekið út sumarfrísdaga í vinnunni (fyrir utan að taka á móti krakkahópum sem búið var að bóka í Rafheima). Tilgangurinn er tvíþættur: að létta undir með Steinunni sem er nýkomin út af Sankti Jó og að reyna að klára þessar endalausu eldhúsframkvæmdir á Mánagötunni.

Síðdegis tókum við á móti eldhúsinnréttingunni og skápasamstæðunni í svefnherbergið frá Axis. Í fyrramálið tek ég svo á móti smiðnum, hjálpa honum af stað og ræðst sjálfur á gömlu skápana með kúbein að vopni. Jafnframt þarf að brjóta niður vegg. Ég bið til Óðins að sá veggur sé úr þunnum spónaplötum en ekki forskalað helvíti eins og skáparnir sem ég var að kljást við í vor. Reiknið þó með þreyttum Stefáni í næstu bloggfærslu.

# # # # # # # # # # # # #

Félagi Stefán Jónsson er mættur á skerið. Því fagna allir góðir menn. Annað kvöld kemur hann í heimsókn - ljómandi verður gaman þá.

# # # # # # # # # # # # #

Og já - Davíð er víst hættur.

Ákaflega margir íslenskir vinstrimenn hafa beðið þessa dags lengi - og talið sér trú um að allt yrði betra þegar Davíð hætti í pólitík. Ég hef alltaf mótmælt því og haldið því fram að Sjálfstæðisflokkurinn verði hættulegri undir stjórn Geirs Haarde. Alltof mörg af þeim slæmu verkum sem íhaldið ber ábyrgð á hafa verið persónugerð í Davíð Oddssyni. Nú, þegar hann er horfinn, eru samstarfsmenn hans til margra ára sem hvítþvegnir. Hægrikratar hafa dillað Geir Haarde í mörg ár í þeirri óskhyggju að hann væri það sem Davíð er ekki. Spurning hvað það mun taka langan tíma fyrir fólk að átta sig á að í raun hefur ekkert breyst.

Hins vegar finnst mér bráðfyndið að Davíð hafi farið í Seðlabankann. Öll þessi ár sem kratana dreymdi um að losna við Davíð úr pólitíkinni (því þeir trúðu því í raun að án hans yrðu þeir stærsti flokkurinn) - datt þeim aldrei í hug að hann nennti að verða sendiherra eða Seðlabankastjóri. Þess í stað fór af stað örvæntingarfullt og illa dulbúið plott að mæra DO sem skáld og rithöfund í veikri von um að hann ofmetnaðist, segði af sér störfum og gengi í Rithöfundasambandið.

Auðvitað blekkti þessi söngur ekki nokkurn mann (sjá þó undantekninguna hér að neðan). Málflutningurinn var álíka brjóstumkennanlegur og þegar Sjálfstæðismenn mættu í spjallþætti fyrir formannskjörið í Samfó og reyndu að ráðleggja krötum að kjósa Össur.

Eini maðurinn sem lét platast til að taka undir að rithöfundurinn DO ætti góðan séns í Nóbelinn var Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Lengi verður fimmtugsafmælisgrein hans um Davíð Mogganum í minnum höfð - einkum málsgreinin um að Jólasálmur Davíðs í Mogganum skömmu fyrr væri á pari við Heyr himna smiður eftir Kolbein Tumason - bara betri.

Með vini eins og Hannes þarf maður ekki óvini.

CSI Selfoss

Tuesday, September 6th, 2005

Það er nú nánast krúttlegt að lesa æsifréttir á borð við þessa af Vísi:

Skemmdarvarga leitað á Selfossi

Vegfarandi á Selfossi tilkynnti um eld í blaðabunka við aðalinngang Fjölbrautaskóla Suðurlands um miðnætti á sunnudagskvöld. Lögregla segir að fundist hafi eldspýta í blaðabunkanum og telur að kveikt hafi verið í. Tjón var óverulegt en vegna hitans kom sprunga í eina rúðu.

- Bíð spenntur eftir niðurstöðum rannsóknardeildarinnar. Kannski finnst DNA úr þrjótunum á eldspýtunni?

# # # # # # # # # # # # # #

Orkuveitan gerði sitt besta til að láta mig sofa frameftir í morgun. Upp úr miðnætti var nefnilega skipt út spenni í spennistöðinni í götunni og rafmagnið tekið af (og útvarpsvekjarinn fokkaðist upp). Minnist þess ekki að hafa séð neina orðsendingu um þessa yfirvofandi framkvæmd, en það er svo sem meira en líklegt að hún hafi farið í tunnuna með öllum ruslpóstinum. Ekki vissi ég að svona verk væru unnin að næturlagi. Það er hörkugóð þjónusta.

Og úr því að ég er að velta fyrir mér framkvæmdum Orkuveitunnar…

Í gær fór ég um framkvæmdasvæðið á Laugaveginum neðan Snorrabrautar þar sem búið er að grafa allt í sundur. Lokun umferðarinnar á þessum stað er meiriháttar mál. Þetta er stórskaðlegt fyrir verslunareigendur og veldur töluverðum töfum á umferð. Í ljósi þessa, skil ég ekki hvers vegna menn nota ekki tækifærið og koma fyrir manngengum lagnastokkum undir götum sem þessum. Með slíkum stokki mætti snarfækka þeim tilfellum þar sem raska þarf umferð með uppgreftri. Svo er líka bara svalt að hafa gangakerfi undir borginni.

Hvernig er þessu t.d. háttað með nýju Hringbrautina? Eru stokkar undir henni, eða mun þurfa að grafa hana margoft upp og loka umferð þegar uppbygging hefst á svæðinu þar fyrir sunnan? Spyr sá sem ekki veit.

Spark

Monday, September 5th, 2005

Í Fréttablaðinu í morgun var fjallað um knattspyrnuspilið og spurningaþáttinn sem ég hef verið að sýsla við upp á síðkastið. Hafði hálft í hvoru búist við að hvort tveggja ætti að vera leyndarmál eitthvað lengur - en nú er hægt að leggja spilin á borðið.

Síðsumars var ég ráðinn í að semja spurningar fyrir borðspil um fótbolta sem kemur út í næsta mánuði. Reyndar hafði málið verið nefnt við mig í vor, en þá var ég á leiðinni í feðraorlof og útgefandinn gat ekki svarað af eða á um hvort ráðist yrði í verkefnið.

Eftir að rásmerkið kom tók við móðir allra spurningasamninga - þar sem ég samdi með aðstoð góðra manna, mörgþúsund spurningar á örfáum vikum í ágúst. Öll kvöld og allar helgar fóru í þetta helvíti, en niðurstaðan varð bærileg - vona ég.

Á lokaspretti þessarar vinnu, hitti útgefandi spilsins stjórnendur Skjás eins og Enska boltans að máli, til að kanna hvort áhugi væri á einhverju samstarfi - t.d. með léttum spurningaleik í tengslum við beinar útsendingar frá leikjum í ensku. Skemmst er frá því að segja að fólkið á Skjánum komst strax að þeirri niðurstöðu að þetta væri spennandi dæmi. Ég labbaði inn á fund í þeirri trú að hugmyndin væri sú að við myndum mæta í stúdíó í hálfleik á 5-6 leikjum, gefa nokkur spil og rabba við lýsendur - en niðurstaðan varð sú að gera átta tæplega hálftíma spurningaþætti. Upptökur skyldu hefjast u.þ.b. hálfum mánuði síðar.

Satt best að segja hafði ég miklar efasemdir um hugmyndina í fyrstu. Eftir að hafa fylgst með því hjá Sjónvarpinu hversu mikil vinna er í kringum þætti á borð við Gettu betur, þótti mér fyrirvarinn fáránlega skammur og hugmyndirnar um uppbyggingu þáttarins í lausu lofti.

Tvennt varð til að breyta þessari skoðun minni. Toppmaður var fenginn í að pródúseta þáttinn. Eftir að spjalla við Benna í kortér, efaðist ég aldrei um að hann vissi hvað hann syngi. Þá varð út að Þórhallur Dan, gamli Fylkismaðurinn sem nú leikur með Fram, myndi sjá um þáttinn með mér. Við Tóti erum talsvert ólíkar týpur, en smullum strax saman.

Um helgina var blásið til leiks. Fjórir þættir teknir upp á laugardeginum og fjórir á sunnudeginum. Markmiðið var að búa til létt og skemmtilegt efni. Spurningarnar voru valdar út frá skemmtanagildi og þáttarstjórnin og dómgæslan tók sömuleiðis mið af því.

Ég er spurningaleikjanörd - og stend við það sem eftir mér er haft í Fréttablaðinu að það er alltof lítið af spurningakeppnum í útvarpi og sjónvarpi. Spurningaleikir af þessu tagi þurfa líka að vera fjölbreytilegir. Það er fínt að hafa keppni eins og Gettu betur, þar sem liðin æfa eina og vitfirringar og menn taka sig háalvarlega, þar sem minnstu dómaramistök leiða til blaðaskrifa og illdeilna. Við ættum líka að hafa einstaklingskeppnir af þessu tagi - í anda Mastermind, eins og Stöð 2 reyndi raunar í árdaga.

Samhliða alvarlegu keppnunum þarf líka að hafa léttari keppnir, þar sem úrslitin eru í aukahlutverki og skemmtanagildið er aðalmálið. Það er einmitt léttleikinn í Popppunkti sem gerir það að verkum að ég hef svo gaman að þeim þætti. Reyndar finnst mér Dr. Gunni taka sjálfan sig of alvarlega í dómarahlutverkinu. Hann hefur margsinnis í þáttunum verið stífur og þver í ójöfnum viðureignum, þar sem hægðarleikur hefði verið að hygla tapliðinu.

Fleiri spurningaleiki í sjónvarp!

# # # # # # # # # # # # #

Í kvöld át barnið sinn fyrsta skammt af graut. Ég sem var einmitt orðinn svo klár í að hita pela…