Endurvinnsla
Óskaplega bera þessar “sviptingar á fréttastofunum” vott um lítið ímyndunarafl. Sjónvarpið ræður fyrrum starfsmenn Stöðvar tvö og öfugt. Þá eru gamlir fréttamenn fengnir aftur til starfa. Ekkert nýtt, ekkert óvænt, ekkert frumlegt.
Pétur Blöndal sagði um daginn að það fjölmiðlarnir virtust ekki bara vanhæfir til að fjalla um málefni sinna eigin eigenda, heldur líka málefni eigenda annarra fjölmiðla - því að starfsmenn RÚV í dag væru starfsmenn 365 á morgun. Þetta var fyrir viku síðan. Held að Pétur hafi tæpast trúað því sjálfur hversu skjótt spádómur hans myndi rætast.
# # # # # # # # # # # # #
Hin óformlega skoðanakönnun þessarar síðu á því hver ætti að leysa Loga Bergmann af hólmi í Gettu betur, ef hann hættir í kjölfar vistaskiptanna, leiðir í ljós að ýmsir vilja Davíð Þór Jónsson aftur - en flestir kjósa þó Frey Eyjólfsson útvarpsmann á Rás 2.
Þar sem ég veit að blaðamenn lúslesa þessa síðu, mana ég þá til þess að slá upp frétt um málið og koma nafni Freys í umræðuna.
# # # # # # # # # # # # #
Var í viðtali á Morgunvaktinni fyrr í dag vegna forvals VG. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður milli kl. 17 og 21 í kvöld. Svo hefst kosning kl. 9 í fyrramálið og stendur til 21. Partý um kvöldið.

September 30th, 2005 at 13:08
Get ekki ad thvi gert ad mer dettur alltaf Johannes Gunnarsson (a.k.a. Joi neytandi) i hug thegar eg hugsa um hradaspurningarnar. Vaeri ekki snidugt ad fa hann i djobbid?
September 30th, 2005 at 17:30
Hvað með Togga sem var í Singapore Sling? Hann er ótrúlega töff. Eða Arne Aarhus, það er kominn tími á að hann snúi aftur á skjáinn.
October 1st, 2005 at 16:04
Ber það ekki líka vott um stöðnun að engum lesenda þessarar síðu virðist detta í hug að fá konu í spyrils hlutverkið.
Davíð Þór sem dómara, Frey sem stigavörð og Elínu Hirst sem spyril.
October 1st, 2005 at 17:48
Ég elska Pétur Blöndal.