Tvö viðtöl

Það voru tveir viðtalsbútar í sjónvarpsfréttunum í gær sem verulega erfitt var að hlusta á - hvor á sinni stöðinni.

Á Stöð 2 var spilað viðtal við Jónínu Ben sem virtist á barmi taugaáfalls. Hún var ekki í nokkru jafnvægi fyrir símaviðtal og margsagði fréttamanninum að hún gæti ekki svarað spurningum hans núna. Samt var þetta spilað. Ekki vegna þess að það bætti neinu við fréttina heldur bara af miskunarleysi - eða vegna þess að fréttamaðurinn sem líklega var búinn að hafa mikið fyrir að ná í Jónínu tímdi ekki að sleppa því að nota efnið.

Á Sjónvarpinu var frétt um sjóskaða. Skúta með tveimur mönnum lenti í hafvillum. Annar fórst en vinur hans bjargaðist. Fréttamaður tók á móti þyrlunni við Borgarspítalann og lét spurningarnar dynja á manninum. Strax í upphafi viðtalsins sagðist hann ekki vilja segja neitt að svo stöddu máli né treysti sér til þess. Samt var haldið áfram að spyrja. - Ég er viss um að íslenskur sjómaður sem væri nýbúinn að sjá eftir félaga sínum í hafið hefði ekki fengið þessa meðferð.

# # # # # # # # # # # # #

Leitin að næsta Loga heldur áfram hér á síðunni. Hægt er að greiða atkvæði í athugasemdakerfinu eða senda mér tölvupóst. Þessi hafa fengið atkvæði:

Freyr Eyjólfsson 2
Kristján Kristjánsson 1
Ómar Ragnarsson 1
Magga Stína 1
Villi naglbítur 1
Gísli Marteinn 1
Broddi Broddason 1
Snorri Már Skúlason 1
Davíð Þór Jónsson 1

Það eru greinilega skiptar skoðanir hjá þjóðinni, enda um mikið hitamál að ræða. Etv. ætti ég að rukka 99,90 kr. fyrir skeytið?

30 Responses to “Tvö viðtöl”

  1. Ólafur Says:

    Páll Magnússon

  2. Finnbogi Says:

    Liggur ekki beint við að þú færir þig sjálfur yfir í spyrilssætið?

  3. Þorbjörn Says:

    Mér líst best á Davíð af þeim sem hér eru taldir upp. Davíð Þór, sko, til að fyrirbyggja misskilning.

  4. ÁJ Says:

    Davíð spurningahöfundur, Stefán sjálfur stjórnandi, það er besta hugmyndin.

  5. Egill/drekinn Says:

    Villi Naglbítur eða Freyr Eyjólfs.

  6. Óli Gneisti Says:

    Á ekki að leita að næsta Stefáni?

  7. Steinþór Says:

    Miklu frekar að reyna fá Davíð Þór sem dómara (þá væntanlega á næsta ári), hann hefur verið að gera frábæra hluti á Grand rokk. Annars lýst mér best á Villa. Væri ekki líka sniðugt að reyna fá Felix frá Skjá einum?

  8. dr Says:

    Er ekki Ónefndi maðurinn tilvalinn í verkið?

    Hann er svo innvígður og innmúraður að hann myndi aldrei leka spurningum Stefáns í liðin.

  9. Daníel Says:

    Er þetta vel borgað jobb?

  10. Dúnja Says:

    Það hafa nú löngum verið uppi raddir um það að það væri þjóðþrifaverk að koma Stefáni Jóni Hafstein úr pólitíkinni og aftur í Gettu betur.

  11. Bens Says:

    Felix Bergsson væri tilvalinn í djobbið.

  12. Torfi Says:

    Davíð þór og villi naglbítur eru góðir kandídatar í djobbið. Tel þó að Gísli með þáttin Út og Suður yrðu góðir…draumurinn væri þó að fá Hemma Gunn…

  13. helga Says:

    Best væri að þessi spurninganördakeppni þar sem fólk rembist við að romsa upp úr sér vita gagnslausri þekkingu í von um fræðg og viðurkenningu á gáfnafari, væri lögð af! Og annað: Þótt fjölmiðlamenn séu oft á tíðum skúnkar og hagi sér eins og þeir kunni ekki almenna kurteisi þá er hægt að segja þeim til varnar í máli Jónínu Ben að það var henni í sjálfsvald sett hvort hún svaraði símanum eður ei - eða hvað? hitt viðtalið er óafsakanlegt.

  14. Jónsi Says:

    Ingvi Hrafn!

  15. Kjarri Says:

    Þorgeir Ástvaldsson er hinn fullkomni kostur. Þarf eitthvað að ræða það frekar?

  16. Hildigunnur Says:

    Ólafur Sigurðsson! Heyrið þið ekki fyrir ykkur hraðaspurningarnar? Haaa?

    nei annars ég hef alltaf saknað Davíðs Þórs, hann aftur!

  17. Guðrún Helga Says:

    Ég er sammála þessu með sjómanninn. Þetta voru í hæsta máta undarleg vinnubrögð.

  18. Sverrir Says:

    Gísli Einarsson væri líklega ágætur spyrill enda heldur hann uppi innlendri dagskrárgerð í Sjónvarpinu um þessar mundir.

    Davíð Þór var góður spyrill og væri örugglega fínn dómari en ég mundi vilja leyfa Önnu Kristínu að spreyta sig fyrst.

    Það væri tilraunarinnar virði að fá Ólaf Sigurðsson sem spyril!

  19. anna Says:

    Ég stakk upp á Kristjáni í gær, en velti þá ekki fyrir mér Frey Eyjólfssyni. Eftir á að hyggja myndi ég fagna honum sem spyrjanda. Hann er frábær útvarpsmaður og af hverju ekki spyrill líka?

  20. anna Says:

    P.s.
    Ég átti von á áminningu 20. september vegna hlutar í SHA. Orð mín standa óhögguð.

  21. Steindór Says:

    Ég skal.

  22. Birkir Says:

    Mér líst vel á Frey… veit samt ekki af hverju enginn stingur upp á Óla Palla? Er hann ekki jafn kjörin og Freyr?

  23. Úlfur Says:

    Óli Palli á það til að stama, ég væri hrifinn af Frey, Kristjáni eða Sigmari, félaga kristjáns úr Kastljósinu, en eitthvað segir mér að það verði Baldvin Bergsson sem fær starfið, mér finnst eins og það eigi að gera hann að næstu stjörnu hjá Sjónvarpinu.

  24. Baldvin Says:

    Þórhallur Gunnarsson, fyrst þeir skiptu á sléttu þá hlýtur hann að fá GB

  25. Örn Úlfar Sævarsson Says:

    AF hverju er stungið upp á svona fáum konum hér? Svo er spurning hvort það verði ekki sami spyrill og verið hefur - og Stöð 2 þurfi að leita að dómara.

  26. Steinþór Says:

    Er það rétt sem ég er að heyra að þó Logi sé kominn yfir til 365 verði hann samt áfram í Gettu betur? Það var einhver að tala um það í Fréttablaðinu í dag. Annars er ég kominn á þá skoðun að kona eigi að vera spyrill. Þá kemur bara upp sama vandamálið og með stytturnar, hver er sú rétt?

  27. Hildigunnur Says:

    ég held mig við sama, Davíð Þór sem spyril, það er búið að ráða Önnu Kristínu sem dómara, engin ástæða til að breyta því. Hugsa að Helga Vala væri flottur spyrill, og svo að setja einhvern sætan strák sem stigavörð?

  28. Hildigunnur Says:

    hmm, þarna var ég að enda við að stinga upp á tveim mismunandi spyrlum. Og svo verður það trúlega bara Logi áfram…

  29. Örn Úlfar Sævarsson Says:

    Tvö nöfn í viðbót: Ilmur Kristjánsdóttir og Valgeir Guðjónsson

  30. Rósa B Says:

    Hey ! Vantar alveg konur á listann hérna…Helga Vala væri fín í þetta ásam fleiri eðalkonum