Ef ég væri Alfreð Þorsteinsson…
…þá myndi ég nota tækifærið og tilkynna um 50% hækkun á heitu vatni og rafmagni núna.
Fyrstu tuttugu mínúturnar af hverjum fréttatíma eru undirlagðar af sápuóperunni um ríka pakkið; hver svaf hjá hverjum og hver stalst í tölvupóst hvers.
Íhaldið í borginni myndi hvorki æmta né skræmta, vegna þess að enginn Sjálfstæðismaður þorir í viðtal þessa daganna af ótta við að fréttamennirnir muni nota tækifærið og spyrja út í Baugs-mál og litlu ljótu klíkuna.
Snjallt - ekki satt?
# # # # # # # # # # # # #
Í hádeginu á morgun verð ég fundarstjóri hjá Sagnfræðingafélaginu. Í fréttatilkynningu segir:
Salvör Nordal, “Örbirgð við allsnægtir”. Fyrirlestur á vegum Sagnfræðingafélags Íslands
Sumir fá ekki sæti við það gnægtarborð sem aðrir njóta. Félagsfræðingurinn og heimspekingurinn Zygmunt Bauman kallar þetta fólk úrhrök nútímans í nýlegri bók. Að mati Baumans hljóta efnahagslegar framfarir og nútímahyggja að leiða til þess að þessum hópi fólks fjölgi sífellt í heiminum. Salvör Nordal, heimspekingur og forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, fjallar um þessi efni í hádegisfyrirlestri Sagnfræðingafélags Íslands þriðjudaginn 27. september. Fyrirlesturinn verður í Þjóðminjasafni Íslands við Suðurgötu í Reykjavík og hefst kl. 12:10. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

September 26th, 2005 at 15:19
Jú, snjallt og enginn nema Alfreð myndi nota svona tækifæri.
September 26th, 2005 at 15:39
Vertu nú ekki að koma hugmyndum í kollinn á honum!
September 27th, 2005 at 01:27
Mér finnst “úrhrök nútímans” vera frekar hart. Samt spurning hvaða betri þýðing er til að á “human waste of modernization” sem er líklegast það sem verið er að þýða og ég vitna hér til úr Ráðstefnuritinu um hnattvæðingu (bls. 35).