Brellan okkar Gísla

Aumingja Gísli Marteinn laug upp á sig BA-gráðu. Það er ágætis áminning til sagnfræðinga að taka hóflega mikið mark á uppflettiritum eins og Samtíðarmönnum - upplýsingar í slíkum ritum geta byggst á óskhyggju frekar en raunveruleikanum.

Stóra BA-gráðumálið hlýtur þó að valda mér áhyggjum. Þannig er nefnilega mál með vexti að í símaskránni 1998 er ég titlaður sagnfræðingur. Þessum titli bætti ég inn í skránna í þeirri vissu að mér tækist að útskrifast þá um vorið. Eftir stendur að ég var um nokkurra vikna skeið titlaður sagnfræðingur fyrri hluta ársins - án þess að hafa lokið BA-prófi.

Hver veit nema þessu verði slegið upp í fjölmiðlum eftir einhver ár og ég úthrópaður sem loddari og lygalaupur?

8 Responses to “Brellan okkar Gísla”

  1. Þórdís Says:

    Ég veit um mann sem var “líffr.” í símaskránni í mörg ár. Það þýddi líffræðinemi.

  2. Jón tröll Says:

    Blessaður vertu, þetta verður ábyggilega í DV á morgun - þú þarft ekkert að bíða í nokkur ár. Kv. af Ströndum.

  3. Sverrir Says:

    Það getur hver sem er kallað sig sagnfræðing. Það er ekki lögverndað starfsheiti.

    Annað mál væri ef þú hefðir kallað þig Stefán Pálsson B.A.

    Þannig að það þýðir ekkert að ljúga upp á sig glæpum!

  4. Jóhanna Says:

    Svona gera menn ekki! (sem mér skilst að séu mjög fleyg orð sem enginn tók sér í munn fyrr en Davíð Oddsson gerði það fyrir nokkrum árum)

  5. Óli Gneisti Says:

    Ég gæti skráð mig sem bókasafns- og upplýsingafræðing í næstu símaskrá og þá verið lögbrjótur, allavega í þær vikur sem líða áður en ég útskrifast og skrepp í Menntamálaráðuneytið.

  6. Finnbogi Says:

    Það er raunar merkilegt hversu fá starfsheiti eru lögvernduð. Ég velti þessu nokkuð fyrir mér þegar ég fékk mér síma í fyrsta skipti og komst að því að hvorki efnafræðingur né túbuleikari (né raunar tónlistarmaður) er lögverndað starfsheiti. Mér taldist til að eina lögverndaða starfsheitið sem ég ber sé farandvinnuvélastjóri og hugðist setja það í símaskrána.
    Á endanum bað ég um að vera óskráður.

  7. kristín björg Says:

    Ég meina - hver trúir spurningahöfundi sem lýgur í símaskrá!

  8. steini Says:

    Þetta er nú alveg týpískt. Þið bræðurnir megið ljúga símaskránna fulla, en ég fékk ekki að vera skráður KR-ingur í símaskránna. Marg reyndi, sendi grilljón meil og skráði það nokkrum sinnum á netið þangað til netaðgangurinn var tekinn af mér. Já það er ekki sama hvort maður heitir jón eða séra guðjón