Lyklunum skilað

Í kvöld skiluðum ég, Siggi Flosa og Einar Ólafs lyklunum að herbergi SHA í Þinghóli í Kópavogi. Það var reyndar ekki með ráðum gert að formaðurinn, ritarinn og gjaldkerinn mættu í þessa för - það vildi bara svo til að það kom í okkar hlut að bera síðustu mublurnar þaðan.

Ég man ekki hvað við erum búin að vera lengi í Kópavoginum. Fjögur ár líklega. Fyrir þann tíma höfðu stjórnarfundir verið haldnir í heimahúsum og eigur félagsins geymdar um allar trissur. Þótt herbergið í Kópavoginum yrði aldrei annað en geymsla og staður fyrir smáfundi, þá var það mikilvæg ákvörðun. Hún markaði nefnilega upphafið að gagnsókn samtakanna, frá því að vera á hrakhólum í að eignast sómasamlegt aðsetur.

Í kvöld var sömuleiðis traustur hópur félaga samankominn í nýja húsnæðinu á Snorrabrautinni að mála og sparsla. Stefnt er að því að endurtaka leikinn annað kvöld, fimmtudagskvöld, sjálfboðaliðar boðnir velkomnir.

One Response to “Lyklunum skilað”

  1. Flosi Eiríksson Says:

    Takk fyrir sambúðina, farnist samtökunum vel á nýja staðnum

    Flosi, fulltrúi leigusalans.