Stóráfangi

Gærdagurinn var mikill gleðidagur. Þá var skrifað undir kaup á húsnæði fyrir SHA á horni Snorrabrautar og Njálsgötu. Þessi húsakaup hafa verið markmið okkar í mörg ár og núna styttist í að húsnæðið verði tekið í notkun. Þetta er efni til mikilla hátíðarhalda!

Næsta skref er að fjölga hluthöfum. Stefnum að því að hluthafar verði hundrað talsins fyrir lok ársins!

# # # # # # # # # # # # # #

Curtis Davies er orðaður við Fulham og Birmingham. Luton hlýtur að vilja stórfé fyrir leikmanninn. Hann verður næsti Rio Ferdinand - bara betri.

Allt undir fimm milljónum punda væri gjafverð.

7 Responses to “Stóráfangi”

  1. Geir Says:

    Gott mál.

  2. anna Says:

    og hvað á að greiða mikið?

  3. # Says:

    Hluturinn er á 10 þús. krónur.

  4. anna Says:

    Sendu mér áminningu 20. september

  5. Dagur Says:

    Er hægt að græða á þessu hlutahafadrasli?

    Hvenær verður svo partý þar sem krökkum undir lögaldri verður selt áfengi?

  6. # Says:

    Það verður meiri hagnaður af þessum bréfum en deCode.

    Partý fyrir börnin? Stöðugt.

  7. Strumpurinn Says:

    Er ekkert innflutningspartý í nýja húsið?

    Strumpakveðjur :)