Norskt popp
Hlustaði á BBC World Service í bílnum. Þar var þáttur um norska dægurtónlist - sem ku vera það heitasta um þessar mundir. Norskir rokkarar börmuðu sér yfir því hvað markaðurinn væri lítill og einhver kona frá útflutningsráði norska poppsins útskýrði að tónlistarmennirnir yrðu að syngja á ensku til að eiga séns.
Til marks um þessa rosalegu útrás Norðmanna í músíkinni var talað um Röyksuppan (sem ég kannaðist við) og nokkur önnur hljómsveitarnöfn sem ég hafði aldrei á ævi minni heyrt um. Nú eru tveir möguleikar í stöðunni:
i) Norðmenn eru að leggja undir sig tónlistarheiminn, en ég er sá rati að hafa ekki tekið eftir neinu.
eða
ii) Norðmenn eru ekki að leggja undir sig tónlistarheiminn, heldur varð einhver fréttaritari BBC aðeins of ákafur.
Sá óþægilegi grunur læddist að mér að kannski sé “íslenska innrásin” í dægurlagaheiminum ekki svo ólík þeirri norsku. Við fáum reglulega fréttir af blaðagreinum og útvarpsþáttum í útlandinu um hvað íslenskar hljómsveitir séu að leggja vinsældarlista að fótum sér. Ef til vill koma þessar fréttir útlendingunum álíka spánskt fyrir sjónir og fregnirnar af svölu Norðmönnunum og nýju Aha-ævintýri?

August 18th, 2005 at 09:46
Vinir mínir, Torbjörn Brundtland og Svein Berge, yrðu nú ekki glaðir með að heyra þig misþyrma Röyksopp sem Röyksuppan… Besta norska bandið síðan Aha! var og hét.
-s
August 18th, 2005 at 09:48
Röyksuppan?
August 18th, 2005 at 14:37
Räksoppan?
August 19th, 2005 at 20:14
Jú var ekki Kristján nokkur Jóhannsson Óperusöngvari búinn að vera heimsfrægur í mörg ár hér á íslandi ? , áður enn hið sanna kom í ljós . Að hann var bara heimsfrægur hér á landi og hvergi annar staðar.
August 19th, 2005 at 20:14
Jú var ekki Kristján nokkur Jóhannsson Óperusöngvari búinn að vera heimsfrægur í mörg ár hér á íslandi ? , áður enn hið sanna kom í ljós . Að hann var bara heimsfrægur hér á landi og hvergi annar staðar.
August 20th, 2005 at 13:39
Ég hef reyndar á mp3 bloggunum sem ég les, þar sem fjallað er um allt það nýjasta og hippasta og kúlasta, verið að rekast trekk í trekk á norskt popp síðasta hálfa árið. Þannig að ef maður vinnur við það að fylgjast með tónlist er maður ábyggilega meðvitaður í dag um það að norðmenn eigi slatta af góðum poppurum (aðallega eru þetta reyndar popppíur sem ég hef verið að taka eftir) Svo ég held að þetta sé ekki ímyndun í fréttaritaranum en að þú sért ekki heldur rati.