Prinsipin fjúka

Einu sinni hafði ég þá vinnureglu að eiga ekki bíl sem kostaði meira en svona góð mánaðarlaun. Nú er hún fallin.

Skrifaði í gær undir pappíra sem gera okkur Steinunni að eigendum bláu Súkkunnar hans pabba. Hún leysir þar með gamla Volvoinn af hólmi. Hans verður lengi saknað. Með haustinu þurfum við svo að skipta út Dæhatsjú-dósinni hennar Steinnunar, áður en hún ryðgar í sundur. Hefur komið fram að ég veit fátt leiðinlegra en bílareddingar?

# # # # # # # # # # # # #

Rafvirkinn hefur verið að störfum á Mánagötu og er langt kominn með verkið. Við feðgarnir notuðum tækifærið úr því að allt var hvort sem er í drasli og fjarlægðum dyraumbúnaðinn inn í eldhúsið. Þetta gekk ekki átakalaust – áður fyrr voru hlutir byggðir til að endast. Merkilegast er þó sá aragrúi af nöglum sem notaðir voru til verksins og þar eingum fírtommu-saum, heldur stórum helv. drjólum.

Framkvæmdahugurinn í okkur er greinilega farinn að smitast til annarra íbúa hússins. Hjónin á efri hæðinni – eða öllu heldur barnabarn þeirra – er að breyta bílskúrnum við húsið í íbúð. Í þessum bílskúr bjó um miðja síðustu öld fimm manna fjölskylda í rými sem varla þætti í dag boðlegt fyrir par.

Breytingarnar sem hafa orðið í húsnæðismálum í Reykjavík eru ótrúlegar. Þessar breytingar voru barðar í gegn með samtakamætti verkalýðshreyfingarinnar. Aldrei skal þó vera skortur á fávitum sem reyna að halda því fram að verkalýðshreyfingin hafi aldrei skilað fólki neinu og að enginn hafi bætt kjör láglaunafólks annar en Jóhannes í Bónus.

# # # # # # # # # # # # # #

Ágætis úttekt í Fréttablaðinu í dag á erlendum knattspyrnumönnum í boltanum hér heima. Þar reynist meirihlutinn undir meðallagi miðað við heimamenn.

Fram hefur notað fjóra útlendinga sumar. Hans, sem reynst hefur mjög mikilvægur leikmaður. Kim, sem hefur verið í sífelldum meiðslum en hefði verið öflug viðbót ef hann hefði haldist heill. Ross sem er miðlungsmaður og bætir ekki miklu við leik liðsins. Og loks Danann Bo sem virðist hafa verið kötturinn í sekknum.

# # # # # # # # # # # # #

Ísland og Tuvalu hafa tekið upp stjórnmálasamband. Það gleður Múrinn, sem skrifað hefur ófáar greinar um Tuvalu. Bendi á eina eftir mig, aðra eftir Sverri og þriðju eftir Ármann.

Þá kom Tuvalu talsvert við sögu í grein eftir mig um fána heimsins.

Múrinn gat verið mjög nördalegur á góðum degi.

7 Responses to “Prinsipin fjúka”

  1. pallih Says:

    Muuu!!! Voru þetta einhverji bílapappírar sem ég kvittaði á í gær? Mér þykir það vera köttur í sekk.

  2. Óli Njáll Says:

    Kaupin á Bo eru furuðlegustu knattspyrnuviðskipti í manna minnum. Willum harðneitaði að nota manninn hjá Val og notar frekar Ungfrú Ísland í framlínunni. Þetta verður að flokka sem alger panic kaup hjá ykkur frömmurum, það vissu allir að maðurinn gat ekki skít.

  3. Sverrir Says:

    Mér finnst nú ekkert sérviskulegt að skrifa þrjár greinar um Tuvalu á jafnmörgum árum.

    Mér finnst ólíkt sérviskulegra að birta eina grein á dag um sjónvarpsþáttinn Aðþrengdar eiginkonur – eins og Morgunblaðið gerir.

  4. S.Wonder Says:

    Úé!

    Sunday, 24 July, 2005

    “Paul Furlong, Gareth Ainsworth and George Santos all scored headers as QPR enjoyed a 3-0 friendly win over Iran.

    The Iranians, who have qualified for next year’s World Cup, held QPR at bay until the 41st minute, when Furlong headed Dan Shittu’s cross home.

    Substitute Ainsworth doubled the home side’s lead 14 minutes after half-time, as he headed Lee Cook’s corner.

    And Ainsworth turned provider after 71 minutes, taking the corner which Santos headed to complete the scoring.

    Summer signing Tommy Doherty made his debut for Rangers, playing just over one hour before making way for Marcus Bean.

    Aston Villa trialist Wayne Henderson made an appearance in goal, while Derby trialist Jamie Vincent also played.”

  5. anna Says:

    Hvernig bíl fékk pabbi þinn?

  6. S.Wonder Says:

    Ójá!

    Saturday, 30 July 2005

    QPR 2-1 Birmingham

    “Kevin Gallen, who made his debut for QPR in 1992, marked his testimonial with a goal as 5,801 watched QPR beat Premiership Birmingham at Loftus Road. QPR took the lead when Gallen exchanged a one-two with Marcus Bignot before shooting home from outside the area. Paul Furlong then rounded Maik Taylor to score after a Marc Bircham pass. Jermaine Pennant, who earlier hit the post with a free-kick, scored for the visitors with a penalty after he was fouled by Ugo Ukah.”