Þráhyggja
Þráhyggja Fréttablaðsins varðandi R-listans og framtíð hans heldur áfram. Um helgina var stóra fréttin á forsíðu blaðsins að samstarfið héngi á bláþræði. Við lestur fréttarinnar kom hins vegar í ljós að ekki var rasskat að gerast í málinu, engir fundir haldnir eða neitt.
Í dag er stóra forsíðufréttin að það sé allt í gúddí í R-listanum og mikil bjartsýni og einhugur. Ekkert hefur þó gerst í málinu þennan sólarhring sem leið á milli blaðanna.
Hvað ætli Fréttablaðið nái mörgum innihaldslausum forsíðufréttum um R-listann til viðbótar í þessari viku? Spái því að innan þriggja daga verði forsíða blaðsins lögð undir risafyrirsögnina: “R-LISTINN BÝÐUR FRAM - EÐA EKKI…!”
# # # # # # # # # # # # #
Fyrir helgi samþykktu Framsóknarmenn í Reykjavík-norður ályktun um að Salvör Gissurardóttir sé að leggja þá í einelti. Fyndið að ein kona geti lagt heilan stjórnmálaflokk í eineldi. Minnir helst á það þegar ónefndur sauður á Mogganum hélt því fram að vefritið Múrinn væri að leggja Morgunblaðið í einelti. - Þarf eineltispúkinn helst ekki að vera svipaður að stærð og helst stærri en fórnarlambið?
Nema hvað - ég er pínulítið öfundsjúkur út í Salvöru. Enginn stjórnmálaflokkur hefur séð ástæðu til að álykta sérstaklega gegn mér. Samt hefur maður stundum sent Framsókn tóninn. Núna hefur maður þó amk eitthvað til að stefna að.

July 25th, 2005 at 09:33
Go Salvör