Jólahreingerning í júlí

Íbúðin er með fínasta móti í dag, enda búið að þrífa hátt og lágt.

María frá Heimaþjónustunni kom í fyrsta skipti í dag og tók til hendinni. Þar sem ég er að fara að vinna aftur eftir feðraorlofið sóttum við um aðstoð við þrifin og ýmis viðvik sem Steinunn á erfitt með. Reyndar grunar mig að einn helsti kosturinn við að fá húshjálp sé að það sparki í rassinn á manni sjálfum að ryðja til þannig að ekki sé allt á rúi og stúi þegar hún mætir á svæðið. Í það minnsta kom ekki til greina að sitja og nördast á netinu meðan á þessu stóð. Fór í pappírsgám og losaði mig við fernur. Hér er hins vegar allt að fyllast af flöskum og dósum, en börnin í hverfinu eru ekki nægilega miklir kapítalistar – í það minnsta bankar enginn uppá til að betla dósir.

3 Responses to “Jólahreingerning í júlí”

  1. Einar Örn Says:

    Það virðist vera landlægur skortur á kapítalistum meðal lítilla barna. Allavegana kemur heldur enginn til mín í Vesturbænum.

    Þessi dósasöfnun hjá mér gekk svo langt að ég hengdi upp tilkynningu, þar sem ég bauð fólki að koma og ná í fjóra poka af dósum. En enginn tók boðinu. Ég kenni þessu helvítis góðæri um.

  2. anna Says:

    Það er þá ekkert góðæri hér í Árbæjarhverfinu. Að minnsta kosti koma krakkarnir úr Fylki reglulega til mín að fá dósir.