Háskólanemar athugið (síðbuið plögg)
Á vormisseri kenndum ég ásamt Sverri Jakobs og Þorsteini Vilhjálmssyni námskeiðið: Þættir úr sögu og heimspeki vísindanna. Aðdragandi þess að við tækjum að okkur kennsluna var stuttur. Það var nánar tiltekið á aðfangadag að gegnið var frá því.
Þessi stutti undirbúningstími setti augljóslega svip á kennsluna hjá okkur, en ég held að útkoman hafi verið fín að lokum.
Við Sverrir kenndum saman í öllum okkar tímum og skemmtum okkur þrælvel. Fljótlega komumst við á þá skoðun að við vildum spreyta okkur aftur á námskeiðinu og vinna áfram með efnið sem við höfum nú undirbúið.
Nú er útlit fyrir að það gangi eftir.
En auðvitað viljum við fá sem flesta nemendur í kúrsinn - og ekki væri verra ef þeir kæmu úr ólíkum áttum.
Námskeiðið hefur verið kennt seint á mánudögum og miðvikudögum (byrjar kl. 16). Hægt er að taka það til 3ja eininga en hugvísindanemarnir (sem nenna sjaldnast að opna bók fyrir minna en fimm einingar) geta tekið það til 5 eininga.
Persónulega botna ég ekki í því hvers vegna svona fáir sagnfræðinemar taka námskeiðið, en þetta kæmi ekki síður að gagni fyrir heimspekinema og fólk úr mannfræði, félagsfræði eða kynjafræði - fyrir utan auðvitað alla raunvísindanemana sem hafa gott af því að fá annan vinkil á fagið sitt.
Nú geri ég ráð fyrir að háskólanemar séu búnir að skrá sig í kúrsa fyrir næsta ár, en þeirri skráningu má alltaf breyta.
Mætið eða verið ferhyrnd.
# # # # # # # # # # # # #
Framarar töpuðu fyrir góðu FH-liði í kvöld. Mínir menn stóðu sig samt með sóma.

July 1st, 2005 at 00:15
Ég get vottað það að þessi kúrs er stórskemmtilegur og fræðandi. Líffræðingar ættu sérstaklega að finna sig vel í honum þar sem miklum tíma er varið í umfjöllun um Darwin, en annars ættu allir að hafa gagn og gaman af.
July 1st, 2005 at 04:43
Á hvoru misserinu er umrætt námskeið?
July 1st, 2005 at 11:40
vor
July 2nd, 2005 at 00:02
er þetta ekki kennt vitlausu megin við Suðurgötuna? Held að það sé klikkið. Sagnfræðinemar nenna vissulega ekki að hreyfa sig fyrir 3 einingar og alls ekki alla leið yfir Suðurgötuna.
July 2nd, 2005 at 15:10
Vá vissi ekki að sagnfræðinemar væru svona latir. Hvað með trúarbragðafræðinga á doktorsstigi? Græða þeir á þessu athyglisverða námskeiði? Að ég nú ekki tali um guðfræðinema….sem ég veit raunar að eru álíka latir og sagnfræðinemar og jafn blautir og jarðfræðinemar.
July 2nd, 2005 at 18:24
Við vorum þarna þrír úr Hugbúnaðarverkfræði og höfðum gaman að. Ég mæli hiklaust með að sitja þennan áfanga, nema kannski fyrir sálfræðinema, þeir eru svo eitthvað feimnir við að vera pómó.
July 2nd, 2005 at 20:39
LOL Örugglega þess vegna sem sálfræinemar völdu sálfræði.
July 3rd, 2005 at 14:12
Komdu sæll,
það eiga ennþá 2500 nemar við HÍ eftir að skrá sig í kúrsa svo það er ennþá nokkur von um að kúrsin fyllist